Tíminn - 04.10.1973, Qupperneq 18

Tíminn - 04.10.1973, Qupperneq 18
18 TÍMINN Fimmtudagur 4. október 1973 Grafsiðir og umbúnaður látinna eru eitt af þvi sem verið hefur með ýmsu móti hjá mannkindinni i ald- anna rás. Forfeður okkar urpu hauga yfir látna vini og vandamenn og lögðu hjá þeim vopn og vistir, svo að þá þyrfti ekki að skorta neitt á eilifðarlandinu. Má nærri geta, að oft hefur það verið ærinn kostnaður og fórn, þegar dýrindis vopn eða gamlir ættargripir voru grafnir i jörð með dauðum mönnum! Við, nútimamenn förum öðru visi að. Við gröfum ekki dýrgripi með hinum látnu, en reynum i staðinn að gera legstaði þeirra sem veglegast úr garði. Þó eru þeir menn til, sem telja slikt fánýtt. Einu gildir, hvar skrokknum af manni er hoiað niður, segja þeir. Látum hina dauða jarða sina dauðu, segja aðrir. En það er eitt, sem furðu mörgum sést yfir: Heimildagildi vel merktra grafreita. Stór kirkjugarður, þar sem hvert leiði er vandlega merkt með fæðingar- og dánardægri þess, sem þar liggur, er i raun og sannleika opin bók. Hann er manntal — þjóðskrá gegninna kynslóða. Það er þvi sannarlega ekki út i bláinn, að lögð hefur verið aukin áherzla á það á siðari árum að varðveita grafreiti og auka heimildagildi þeirra með þvi að skýra upp gamalt letur, þvo það upp og hreinsa. Með þessu þjóðþrifaverki hafa einkum tveir menn unnið, þeir er hér koma við sögu. Annar er Aðalsteinn Steindórsson, umsjónarmaður kirkjugarða á íslandi, hinn er Marteinn Daviðsson, terrasso- og mósaiklagningamaður, oft kallaður listmúrari, og það ekki að ástæðu- lausu. í spjalli þvi, sem hér fer á eftir, verður litillega minnzt á handaverk þeirra félaganna, og verður þó margt látið kyrrt liggja, sem ástæða væri um að ræða. Lesmál: Valgeir Sigurðsson Myndir Gunnar V. Andrésson Kirkjugarðurinn, — heimild um hina látnu, vitnisburður um hirðusemi þeirra, sem lifa — Rætt við Aðalstein Steindórsson, umsjónarmann kirkjugarða á íslandi Þeir eru vel aö því komnir aö fá sér sæti f tröppunum. Hér sést glöggt, hvernig þetta mannvirki er i lag- inu. Fjórir slikir þrepastigar liggja upp aö grafreitnum. Gangstlgarnir mynda kross, þegar upp er kom- iö.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.