Tíminn - 04.10.1973, Side 7

Tíminn - 04.10.1973, Side 7
Fimmtudagur 4. október 1973 TÍMINN 7 GRUNDIG SatellitlOOO Hér kynnum við tæki, sem á engan sinn líka, GRUNDIG Satellit 1000/TR6002. Hlutlaus vestur-þýzk prófunarstofnun, sem nýlega kannaði sérstaklega 14 helztu „Weltempfang“ (heimsmóttöku) útvarpstækin, sem fáanleg eru á vestur-þýzkum markaði, komst að þeirri niðurstöðu, að aðeins eitt þessara tækja ætti skilið óskaeinkunnina „Sehr gut“, eða MJÖG GOTT/ FULLKOMIÐ, þ.e. GRUNDIG Satellit 1000/TR6002. Við þetta er raunar litlu hægt að bæta, en hér eru þó fáeinar grundvallar upplýsingar: 20, já tuttugu, bylgjur (17 stuttbylgjur, langbylgja, miðbylgja og FM bylgja). Samfellt og órofið bylgjusvið frá 10 upp í 187 m. 7 watta útgangsstyrkur. „Band-spread“. 2 ,,superphon“ hátalarar. Tækið gengur hvort heldur sem er fyrir rafhlöðum eða 110—240 volta straumi. — Við látum þetta nægja, en kjarni málsins er sá, að Satellit 1000/TR6002 er óviðjafnanlegt viðtæki, sem býður upp á móttöku á hundruðum eða jafnvel þúsundum útsendinga af öllu tagi. Þegar hinir frábæru og einstæðu eiginleikar Satellit 1000/TR6002 eru hafðir í huga er verðið, kr. 53.740,00, heldur ekki svo hátt. Aðeíns loftskeytastöðin i Guf unesi nær f leiri stöðvum. NESCOHF LEIÐANDI FYRIRTÆKI Á SVIÐI SJÓNVARPS-, ÚTVARPS- OG HLJÓMTÆKJA. LAUGAVEGI 10. SÍMAR: 19150 - 19192

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.