Tíminn - 04.10.1973, Blaðsíða 26

Tíminn - 04.10.1973, Blaðsíða 26
26 TÍMIXN Fimmtudagur 4. október 1973 aö skora undir lokin i siöari hálf- leik. Þegar aöeins fimm minútur voru til leiksloka fékk Steinar knöttinn fyrir opnu marki. Steinar fór illa að ráði sinu þá, þegar hann ætlaði að þruma knettinum i netið — skot hans smaug stöngina. Með réttu hefði Steinar átt að senda knöttinn með rólegu skoti i netið, þvi aö hann hafði góðan tima til að athafna sig. Sjö minútum áður komst Steinar einn inn fyrir vörn og skaut úr erfiöri aðstöðu. Bobby Robertson varði vel skotið frá honum — missti knöttinn, sem barst til Friðriks 'Ragnarssonar. En áður en Friðriki tókst að skjóta, var hann pressaður af tveimur varnarmönnum Hibs. Maður hafði það á tilfinningunni, að þarna hefði dómarinn átt að dæma vitaspyrnu. Guðn'i Kjartansson var bezti maður Keflavikurliðsins, hann átti frábæran leik og hélt hinum hættulega Alan Gordon, marka- kóngi Hibs og Skotlands, algjör- lega niðri. Gordon þessi er stór- hættulegur skallamaður og reyndu kantmenn Hibs mikið að gefa háar sendingar inn á hann. Gordon átti fimm skalla að marki i leiknum, en hann var óheppinn og einnig var Þorsteinn ólafsson, markvörður Keflvikinga, vel á verði. Hann varði mjög vel i leiknum. Strax á 2. min. varði hannskot frá O’Rourke glæsilega i horn. O’Rourke skaut þá frá markteigshorni. A 16. min. siöari hálfleiksins varði Þorsteinn skalla frá Gordon, með þvi að slá knöttinn yfir þverslá. A 27. minútu kom svo meistaraleg markvarsla hjá Þorsteini, þegar hann varöi glæsilega langskot frá miðveröinum Jim Black. Black skaut hörkuskoti utan af velli — knöttturinn stefndi i netið, út við stöng. Þorsteinn var fljótur að átta sig á hlutunum og kastaði sér og náði knettinum við mikinn fögnuð áhorfenda. Keflavikurvörnin gerði þaö, sem hún gat til að stöðva sóknar- lotur Hibs og henni tókst m jög vel að brjóta sóknarlotur Hibs á bak aftur. Veikasti bletturinn hjá Keflavik- HJÖRTUR ZAKARIASSON... sést hér skalla knöttinn I markið hjá Hibernian og ná l:0forustu fyrir Keflvikinga i gærkvöldi. Skallamark Hjartar færði Keflvíkingum forustu gegn Hibs Keflvíkingar gerðu jafntefli 1:1 gegn skozku snillingunum úr Hibs á Laugardalsvell- Leikmenn liðanna áttu erfitt með að fóta sig á hálum vellinum inum í gærkvöldi. GEYSILEG fagnaðar- bylgja braust út á Laugar- dalsvellinum í gærdag þeg- ar Keflvíkingar náðu for- ustunni gegn hinu sterka Hibernian-liði í UEFA- keppni. Það var ólafur Júlíusson, sem tók eina af sínum hættulegu horn- spyrnum á 35. mínútu fyrri hálfleiks. Knötturinn fór vel fyrir markið, þar sem Hjörtur Zakaríasson kom á fleygiferðog hentisér fram og skallaði knöttinn í netið. anna, sást ekki á Laugar- dalsvellinum. Jöfnunarmark Hibs kom á 18. min. siðari hálfleiksins, þegar óbein aukaspyrna var dæmd á Keflvikinga inn i vitateig. O’Rourke tók spyrnuna og sendi knöttinn út i vitateig til John Blackley, sem spyrnti aö mark- inu. Hirti Zakariassyni tókst aö bjarga á linu — knötturinn barst til Pat Stanton, fyrirliða Hibs, sem sendi knöttinn i netið. Þetta mark var nokkuð ódýrt og hefðu Keflvikingar getað komið i veg fyrir þaö, ef þeir hefðu verið ákveðnir. Steinar Jóhannsson, hinn markheppni miðherji Keflavfkur- liðsins, fékk tvö gullin tækifæri til Kef Ivíkingar voru fljótirað fagna markinu, þegar knötturinn fór inn fyrir marklínuna og þegar dóm- arinn benti á miðjuna ætl- aði allt um koll að keyra á áhorfendapöllunum, enda ekki nema von. Það er ekki á hverjum degi, sem islenzkt lið nær forustu i Evrópukeppni. Leikurinn i gær var ekki sérstaklega vel leikinn, þar sem leik- menn liðanna áttu erfitt með að fóta sig á þungum Laugardalsvellinum, sem var glerháll eftir miklar rigningar síðustu daga. Hibs náði aldrei að sýna listir sínar og hið skemmti- lega spil, sem Hibs sýndi á Easter Road í fyrri leik lið- STEINAR JÓHANNSSON.. sést hér skjóta skotinu, sem strauk stöngina.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.