Tíminn - 04.10.1973, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 4. október 1973
TÍMINN
5
Þægindi í hdloftunum
1 „Jumbó”-þotunum er . rúmt
um farþegana, eins og sjá má á
þessari mynd. Þessar stóru þot-
ur eru að verða allsráðandi á
löngum millilandaleiðum, svo
sem yfir Atlantshaf, Kyrrahaf,
milli stranda i Bandarikjunum
og viðar. Annars heita þær
Boeing - 747 og eru feikna
stórar. Japanir segjast ætla að
koma fyrir 600 sætum i þessum
þotum og nota þær sem
„strætisvagn” milli borga, en
þá verður tæpast svona rúmt
um farþegana. Þó að
hreyflarnir séu kraftmiklir og
stórir, þá er þess að geta, að
þeir erusamt 40% hávaðaminni
en á öðrum og eldri gerðum af
þotum.
Dýrt spaug
að Idta skapið
hlaupa með
sig í gönur
Rúmenska tennisleikaranum
Ilia Natase varð hált á þvi á
dögunum að missa stjórn á
skapi sinu, það kostaði hann
hvorki meira né minna en átta
hundruð þúsund krónur. Þannig
var mál með vexti, að hann varð
sigurvegari i alþjóðlegri tennis-
keppni, sem fram fór i Ohio i
Bandarikjunum, en varð af
verðlaununum, vegna þess að
hann réðst á dómarann með
skömmum i miðri keppni.
Natase varð ofsareiður, þegar
dómarinn dæmdi sendingu frá
honum ógilda, og hótaði að yfir-
gefa völlinn. Hann skipti siðan
um skoðun, og ákvað að brúka
heldur munn, með fyrrgreind-
um afleiðingum. Dómarinn,
Jim Meakin, stöðvaði leikinn i
tiu minútur, á meðan hann ráð-
færði sig við meðdómendur, en
lét keppendur siðan leika leik-
inn til enda. Aö leik loknum
kvað hann svo upp dóminn:
Natase hélt efsta sætinu, en
peningana fékk hann ekki
★
Evrópu-brauðið
Frá Brussel höfum við fengið
þær fréttir, að nefnd, sem átti að
koma af stað framleiðslu á sér-
stöku brauði, sem selja átti I öll-
um niu Efnahagsbandalags-
löndunum, hafi gefizt upp við að
láta búa sameiginlega brauð-
tegund fyrir öll löndin. Mikill
munur er á hvernig þjóðirnar
vilja hafa sitt daglega brauð.
Frakkar til dæmis eru mjög
hrifnir af grófu og hörðu brauði,
en Englendingar vilja helzt ein-
hvers konar mjúk hveitibrauð.
Þetta finnst okkur hér uppi á Is-
landi skrýtið i meira lagi, þvi að
við köllum hvita hveitibrauðið
— franskbrauð —!
Jafnrétti í geimnum
— Nú alveg á næstunni verður
lokið við að þjálfa ameriskar
konur til geimflugs, sagði geim-
farinn Charles Conrad nýlega i
viðtali við blaðamann. Hann
sagðist búast við, að innan
skamms tima myndi fyrsti
ameriski kvengeimfarinn fara i
geimferð. — Conrad var foringi
I fyrstu Skylabferðinni. Hann
segir, að i fyrstu hafi ekki
margar konur haft áhuga á að
taka þátt i geimferðum en það
hefur breytzt, telur harin, og
ýmisleg tæknileg atriði og
breytingar gera geimferðir nú
orðið ekki eins erfiðar og frá-
hrindandi fyrir konur sem
karla. Þess verður ekki langt að
biða, að amerisk kona svifur i
geimnum, sagði Conrad.
Alvarlegar
ósakanir
á hendur Brandts
Hver er hinn raunverulegi faðir?
Sinibaido Apollini, sem er
fertugur ttali, heldur þvi fram,
að hann sé faðir Carlos Ponti
yngra. Móðurina, Sophiu Loren,
kannast allir við, og hingað til
hefur fólk ekki verið að gera sér
grillur útaf faðerninu.
Apollini þessi hefur lagt fram
kröfu þess efnis, að föðurréttur
★
hans verði viðurkenndur á þeim
forsendum, að hann hafi lagt til
sæðið, sem siðan hafi verið
sprautað i Sophiu.
Þar til i september i fyrra var
Apollini i itölsku lögreglunni, en
eftir misheppnaða tilraun til að
ræna „syni sinum”, var hann
★
rekinn úr starfi og hefur siðan
dregið fram lifið með þvi að þvo
upp leirtau á litlu veitingahúsi.
Siðan þetta gerðist hefur
drengsins verið vandlega gætt.
Og Ponti hjónin eru þögul sem
gröfin. Engum hefur tekizt að fá
þau til að tjá sig um þetta
leiðindamál, hvorki til né frá.
★
Vestur-þýzka tfmaritið Wirt-
schaftwoche birti nýlega
hneykslisgrein um Willy
Brandt. Þar var þvi haldið
fram, að maðkar væru i mys-
unni I sambandi við veitingu
friðarverðlauna Nóbels á sið-
asta ári, en sem kunnugt er, var
það einmitt Brandt, sem hlaut
þau.
t þessari harðorðu grein segir
fullum fetum, að i það minnsta
tveim af fimm nefndarmönnum
hefði verið mútað til að greiöa
atkvæði með Brandt. Einnig var
látið i það skina, að
leyniþjónustur nokkurra vest-
rænna rikja ynnu nú að þvi að
komast til botns i þessu
leiðindamáli.
Það sakar kannski ekki að
geta þess, að ekki var vika liðin
frá britingu greinar þessarar,
þegar aðalritstjóri Wirtschaft-
woche tók sig til og sendi Brandt
skriflega afsökunarbeiðni.
Nú skal hórið
vera stutt
Nýjustu fréttir af hárgreiðslu
frá miklu hárgreiðslu-
meistaramóti i Dússeldorf i
Þýzkalandi eru þær, að nú á
hárið að vera stuttklippt og
greiöslurnar einfaldar. Þetta er
ekki ósvipuð greiðsla og var
kölluð „drengjakollur” hér 'fyrr
á árum og vakti þá heilmikið
umtal og hneykslun margra.
Þessi greiðsla er á fagmáli
kölluð „skyline”. Hún er fyrst
komin frá London, en hefur
verið tekið tveim höndum i
Þýzkalan'di og fá nú margir
siöir, fagrir lokkar að fjúka
fyrir skærum rakaranna, — og
er sagt, að langt sé siðan svo
mikið hafi verið að gera á
rakarastofum i Þýzkalandi og
biða nú rakarar um allan heim
spenntir eftir hinni nýju hár-
greiðslutizku.