Tíminn - 04.10.1973, Síða 24

Tíminn - 04.10.1973, Síða 24
24 TÍMINN Fimmtudagur 4. október 1973 Hans Fallada: Hvaðnú.ungi maður? 95 Þýðing Magnúsar Ásgeirssonar ar ætti bara aö voga sér aö stlga fæti sinum inn I þetta hús fram- ar!” ,,Þaö þarf frúin ekki aö óttast! — En þaö voru þessi sex mörk!” Og þarna koma þau! Tveir þriggja marka peningar eru lagö- ir efst á grindina. Pinneberg veröur aö láta þá liggja þar, þangaö til frúin er horfin meö hundum sinum, þvi aö annars heföu villidýrin rokiö á höndina á honum. Þegar hann hefir tekiö peningana, tekur hann hattinn ofan aftur og hneigir sig meö ýtr- ustu kurteisi fyrirhinni reiöu frú, sem stendur fyrir utan dyrnar. „Jæja, ég þakka yöur hjartanlega fyrir frú!” Þegar Pinneberg heldur heimleiöis með vagninn með Dengsa I eftirdragi og sex mörkin i vasanum, veit hann vel, að Pússer myndi veröa ánægö með framkomu hans, en hvaö stoðar þaö, þegar hann kveinkar sér sjálfur undan meöferöinni, sem hann hefir oröiö fyrir? Hvert ein- asta sáryrði, sem frúin I skraut- hýsinu sagöi viö hann, hvert augnatillit og hvern andlitsdrátt hennar man hann. Þaö nagar hjartarætur hans og kvelur hann. Ef hann heföi nú veriö hreinræktaður, stéttvis öreigi heföi þaö getað styrkt mann- gildisvitund hans aö kreppa hnef- ana og bölva I sand og ösku öllu þessu helvitis stórborgaradóti! En Pinneberg er ekki annað en umkomulltill smáborgari, sem hefir dreymt um þaö ,,að komast áfram” og veröa einhvern tima, „annaö meira”. Hvernig er hægtað búast við þvi, aö hugsanir hans og tilfinningar séu nú breyttar — jafnvel þótt hann hafi alltaf veriö aö smækka og lækka? Af hverju eiga Pinnebergshjónin ekki heima þar sem þau eru skrif- uð? — Myndabúð Jóakims Heil- butt — Nú er Lehmann búinn að fá „reisupassa”. Tveimur stundum siöar hefir Pinneberg lokiö viö aö búa til miödegisverö og boröaö hann ásamt Dengsa. Siðan hefir hann komiö Dengsa I rúmiö, og nú stendur hann á bak viö eldhús- huröina og biður þess, aö Dengsi sofni. Dálitil stund liður. Dengsi kallar I sifellu: „Pebb — pebb” meö sinum mýksta gælurómi. En Pinneberg stendur grafkyrr og biöur. Hann er mjög órólegur og kviöinn yfir þvi, aö hann nái ekki lestinni i tæka tiö. Ef svo færi, má hann búast viö, aö búiö veröi aö loka skrifstofunni, sem greiöirhonum kreppustyrkinn, og þá fær hann engan styrk þessa viku. „Pebb — pebb!” kallar Dengsi. Pinneberg gæti farið og ætti aö gera það. Hann hefir bundiö Dengsa fastan I rúmiö, svo aö öllu er óhætt. En Pinneberg er nú alltaf hálf-hræddur um barnið. Hann myndi veröa órólegur allan daginn, ef hann væri ekki viss um, aö drengurinn væri sofnaður áöur en hann fer frá honum. Loksins sofnar Dengsi og Pinneberg fer hljóðlega út og læs- ir dyrunum á eftir sér. Hann tek- ur á rás yfir merkurnar. A hlaup- unum hossast nýjar áhyggju- hugsanir upp og niöur i höföi hans: Þaö var auövitað hreinasta vitleysa af þeim að halda gömlu ibúöinni hjá Puttbreese i heilt ár eftir aö hann varö atvinnulaus. — Þaö var i rauninni alger brjálsemi! — En hins vegar var ekki svo auövelt að flytja sig þaö- an með þeirri vissu, að næsta ibúð yrði enn lélegri og fátæk- legri. En fjörtiu mörk á mánuöi, þegar maöur fær niutiu mörk alls — þaö er fullmikiö. — Auövitaö höfðu þau ekki ver- iö meö öllum mjalla! Þetta gat ekki heldur blessazt til lengdar. Það hlaut að fara svo, að það drægist fram yfir gjalddaga að borga húsaleiguna. Og þegar nokkur timi hafði liðið þannig sýndi meistari Puttbreese sig lik- legan til að standa við þau orð, sem hann sagði, þegar þau fluttu sig i húsnæöið: „Ef eitthvað skyldi standa á borguninni, skuluö þið fá ókeypis flutning. Ég skal sjálfur sjá um hann alla leiö út á gangstéttina!” Þessa fyndni sina endurtók hann oft meö alls konar viöaukum og oröabreytingum, unz hann hót- aöi einn góöan veðurdag að snúa gamninu upp i alvöru. Þá varö Pinneberg i örvæntingu sinni hugsað til Heilbutts, sem hafði sagt, að ef hann setti nokkurn tima verzlun á laggirnar sjálfur, skyldi Pinneberg vera sá fyrsti sem hann réöi til sin. Annars haföi Pinneberg ekki dottið i hug I alvöru, að Heilbutt væri orðinn sá bógur, þegar hann fór aö leita aö heimilisfangi hans daginn eftir hina alvarlegu hótun Putt- breeses. Hann varö þvi I senn undrandi og glaöur, þegar hann komst aö þvi, eftir margvislegar fyrirspurnir hjá húsmæörum Heilbutts að frá ýmsum timum og athugunum á manntalsskránni, að I hjarta bæjarins, I einu af beztu verzlunarhverfunum, væri veglegt spjald, sem gaf til kynna, að þar væri „Myndabúð Jóakims Heilbutts”. Og það stóö heima; Heilbutt hafði þarna sina eigin verzlun. Hann lét ekki bugast af fyrstu raun, karlinn sá. Nú, þegar Pinneberg hugsar til þess, hvern- ig Heilbutt tók á móti honum þá, og hvernig hann hefir reynst hon- um siöan, er hann upp meö sér af þvi að geta kallað Heilbutt vin sinn. Jóakim Heilbutt haföi ekki gleymt gamla loforðinu. Þaö fyrsta, sem hann geröi, var aö bjóða Pinneberg stöðu. Að visu var ekki um annaö kaup að ræða en ágóðahlut af sölu. Pinneberg átti að veröa umferðasáli eða eins konar umboðsmaður fyrir myndabúðina. Þegar Heilbutt lét i ljós hryggð sina yfir þvi, að hið nýstofnaða fyrirtæki hans gæti ekki borið þau útgjöld aö hafa mann á föstum launum, fannst Pinneberg, að hann yröi að reyna þetta, bara til aö sýna þakklæti sitt. Þvi að málið horfir nefnilega þannig við, að „vörurnar”, sem Heilbutt verzlar með, eru nektar- myndir. Sem elheitur fylgismað- ur nektarhreyfingarinnar hefir hann — i stað þess að láta burt- reksturinn hjá Mandel verða sér að varnaði — blátt áfram tekið það til bragðs að skapa sér nýja atvinnu úr ást og aödáun annarra á hinu óhjúpaða. Hið fágæta og frábæra einka- safn af nektarmyndum, sem Heilbutt hafði safnað meðan hann var hjá Mandel, var grund- völlurinn undir þeirri verzlun, sem hann rak nú. Það var lfka tilætlunin, að Pinneberg gengi á milli væntanlegra skiptavina firmans og byði þeim eftirmyndir af þessum dásemdum. En þvimiður, — hann verður að viöurkenna þaö andvarpandi nú, þegar hann lituryfir farinn veg — að hann var ekki hæfur til starfs- ins. — Og þó er hann sannfærður enn I dag um það, að það var leikur aö hafa peninga upp úr þessu. Ekki var það samt af þvi, að Pinneberg væri svo teprulegur og óframfærinn. Hreint ekki! En hann hefir hlotið að vanta þann eldmóð hrifningarinnar, sem Heilbutt sjálfur var fullur af. Það fór alveg út um þúfur! 1517 Lárétt 1) Skipulag,- 6) Alfa.- 10) Friður.- 11) 45,- 12) Fugl.- 15) Hanki,- Lóðrétt 2) Bandalag.- 3) Leyfi,- 4) Tæplega,- 5) llát,- 7) Þýfi,- 8) NIÖ.- 9) Kró,-13) Miðdegi,- 14) Vigt,- Ráðning á gátu No. 1516 1) Kónga.- 6) Ukulele.- 10) RR,- 11) Ar,- 12) Sólskin,- 15) Stara.- Lóðrétt 2) öku,- 3) GFE.- 4) Þursa.- 5) Þerna.- 7) Kró.- 8) Lás,- 9) Lái,- 13) Let.- 14) Kór,- zmzwl ii Tr ama Hi/ELL G Við fáum að ; ^ á Marsbúaskipi Það er svei mér.. ^En erum við gestir <t.eða fangar? É 1 —*x/'Raeninginn, var pao nann '^Þúslóstviðræningjann.Skot - v sem siappmeð þýfið? hljóp úr byssunni, kannske hitti það Jim. Þaö er möguleiki. " Ég hélt, að ég hefði rotað hann, en þegar ég sneri mer við, þá stökk hann út.‘ HeldurðuTaðW'Viö viljum ég hafi látiðl sannleikann', hann sleppa?/ V Zokko. lilÍ II. I Fimmtudagur 4. október 7.00 Morgunútvarp Veður- fregnir kl. 7.00 8.15 og 10.10 Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00 Morgunbæn kl. 7.45. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Guðni Kolbeinsson les fyrsta hluta sögunnar „Nafnlausu eyjunnar” eftir Ingólf Jónsson frá Prests- bakka. Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög á milli liða. Morgunpopp ki. 10.25: Carole King syngur. Fréttir kl. 11.00 Hljómplötusafnið (endurt. þáttur G.G.) 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 A frivaktinni Margret Guðmundsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 Siðdegissagan: „Hin gulina framtið” eftir Þor- stein Stefánsson Kristmann Guðmundsson les (10). 15.00 Miðdegistónleikar: Gömul tónlist Kammersveit Bath-hatiðanna leikur Svitu nr. 4 i D-dúr eftir Bach: Yehudi Menuhin stj. Manfred Kautzky og Kammersveitin i Vin leika óbókonsert i G-dúr eftir Karl Ditters von Ditters- dorf: Carlo Zecchi stj. Alexandre Lagoya og Andrew Dawes leika Kon- sertsónötu fyrir gitar og fiölu eftir Paganini. Virtuosi di Roma leika Konsert I a- moll eftir Vivaldi/Bach: Renato Fasani stj. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Popphornið 17.05 Tónleikar. Tilkynn- ingar. 18.30 Fréttir. 18.45 Veðurfregnir. 18.55 Tilkynningar. 19.00 Veðurspá. Daglegt mál Helgi J. Halldórsson cand.mag. flytur þáttinn. 19.10 Landslag og leiðir: t ógöngum Erindi eftir dr. Harald Matthiasson. Ólafur Haraldsson flytur. 19.35 Gestur i útvarpssaj: Vera Lengyel frá Banda- rikjunum leikur á pianó verk eftir Karl Philipp Emanuel Bach, Johannes Brahms, Menaham Avidom og Ben-Haim. 20.05 Leikrit: „Það er tómt mál að tala um það” eftir Don Haworth Þýðandi: Torfey Steinsdóttir. Leikstjóri: Gisli Halldórs- son, Persónur og leikendur: Georg, Hjalti Rögnvalds- son., Fred, Þorsteinn Gunnarsson., Smith, Arni Tryggvason., Jones Erlingur Gislason., Harris, Baldvin Halldórsson., Crocker, Hákon Waage., Aðrir leikendur: Sigriður Hagalin, Margrét ólafs- dóttir, Rúrik Haraldsson og Harald G. Haralds. 20.55 „Lif og ástir kvenna”, lagaflokkur eftir Robert Schumann Christa Ludwig syngur. Gerald Moore leikur á pianó. 21.20 Ljóðaþýðingar eftir Yngva Jóhannesson Herdis Þorvaldsdóttir leikkona les. 21.35 Ungverskir dansar eftir'- Johannes Brahms Sinfóniu- hljómsveit ungverska út- varpsins leikur, György Lehel stj. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Eyjapistill 22.35 Manstueftir þessu?Tón- listarþáttur i umsjá Guð- mundar Jónssonar pianó- leikara. 23.20 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. TIMINN ER TROMP *

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.