Tíminn - 04.10.1973, Page 25
Fimmtudagur 4. október 1973
TÍMINN
25
Eyja-
menn
töpuðu
í Vestur-
Þýzka-
landi
Mönchengladbach
vann þá 9:1
Vestmannaeyingar
töpuöu 9:1 fyrir v-þýzka
meistara liðinu Borussia
Mönchengladbach i gær-
kvöldi í Evrópubikar-
keppni bikarmeistara.
Leikurinn fór fram í
Vestur-Þýzkalandi. Þessi
órangur er nokkuð góður
hjó Eyjamönnum. ef það
er haft í huga, að þeir
töpuðu 7:0 fyrir
Þjóðverjum ó Laugardals-
vellinum. Ekki gótum við
aflað okkur nónari upp-
lýsinga um leikinn í gær-
kvöldi og verður því sagt
nónar fró honum í blaðinu
ó morgun.
augnablikum. Tvivegis hafbi is-
lenzka landsliðið tvö mörk yfir i
siðari hálfleik, og þegar u.þ.b. 7
minútur voru til leiksloka skildu
þrjú mörk á milli liðanna, 13:10.
Virtist þvi fátt geta komið i veg
fyrir islenzkan sigur, jafnvel
ekki, þótt Norðmenn minnkuðu
bilið með þvi að skora 11. mark
sitt. Þá voru 3 minútur eftir og
tveggja marka munur.
En Norðmenn áttu ,,hauka i
horni”, þar sem sænsku dómar-
arnir voru. Er ástæðulaust að
rekja aftur þátt þeirra á siðustu
minútum leiksins.
Mörk islenzka landsliðsins i
gærkvöldi skoruðu: Axel 4, Jón H.
3, Ólafur og Hörður 2 hvor, Jón
Karlsson og Viðar 1 hvor.
Norska landsliðið átti
hauka í horni, þar sem
sænsku dómararnir voru
— björguðu Norðmönnum frá tapi, en síðari landsleik íslendinga og Norðmanna
lauk með jafntefli, 13:13. íslenzka liðið hafði tveggja marka forskot, er þrjár
mínútur voru til leiksloka.
ÍSLENZKA landsliðið i
handknattleik var að-
eins feti frá sigri gegn
Norðmönnum i siðari
landsleiknum i hand-
knattleik, sem leikinn
var i Moss i gærkvöldi.
Þegar aðeins tæpar 3
minútur voru til leiks-
loka stóðu leikar 13:11
islenzka liðinu i vil, og
Björgvin Björgvinsson i
dauðafæri á linunni, en
brotið á honum. Áhorf-
endum til mikillar furðu
dæmdu sænsku dómar-
arnir á Björgvin i stað
þess að dæma vitakast á
Norðmenn. Og upp úr
þessu ranglega dæmda
aukakasti skoruðu
Norðmenn og minnkuðu
bilið i eins marks mun,
13:12. En þetta var ekki
eina „afreksverk”
sænsku dómaranna, þvi
að varla hafði islenzka
liðið hafið leik á miðju,
fyrr en þeir höfðu dæmt
knöttinn af þvi. Og
þannig tókst Norðmönn-
um með hjálp Svianna
að jafna stöðuna rétt
fyrir leikslok og urðu
lokatölur 13:13.
Frammistaöa islenzka lands-
liðsins í gærkvöldi var góð, langt-
JÓN HJALTALIN... átti góðan leik i gærkvöldi gegn Norðmönnum.
um betri en i fyrri landsleiknum.
Mestu munaði, að nú voru fleiri
leikmenn en Axel virkir. Til að
mynda nýttist Jón Hjaltalin vel
sökum þess, að Norðmenn settu
mann til höfuðs Axel, en þrátt
fyrir það varð hann markhæstur
islenzku leikmannanna, eins og i
fyrri leiknum, en hann skoraði 4
mörk.
En það, sem ánægjulegast var
við leik islenzka liðsins i gær-
kvöldi var sú staðreynd, að
varnarleikurinn var góður, en
þaðer nokkuð, sem ekki var búizt
við fyrirfram. Sömuleiðis sannaði
Gunnar Einarsson, markvörður,
að hann er verðugur arftaki
Hjalta Einarssonar & Co., en i
leiknum i gærkvöldi varði hann
ekki siður vel en i fyrri lands-
leiknum.
Fyrri hálfleikur var mjög jafn
og i hálfleik stóðu leikar svo, að
hvort lið um sig hafði skorað 8
mörk. En i siðari hálfleik lék ekki
vafi á þvi, að islenzka liðið var
sterkara. Nokkuð losnaði um Jón
Hjaltalin, þegar norsku leik-
mennirnir höfðu sérstakan gæzlu-
mánn til að reyna aö stöðva Axel
’Axelsson, skoraði Jón tvö gull-
falleg mörk á þýðingarmiklum
Vertíðarlok hjd golfmönn-
um um næstu helgi
Bændagliman í golfi hjá flcstum golfklúbbum landsins fcr fram n.k.
laugardag. Þegar þcssi keppni fer fram er jafnan mikið um að vera á
völlunum enda er þetta sfðasta keppni ársins.
Frá þvl að fyrst var farið að
leika golf hér á landi, hefur það
verið hefð I öllum golfklúbbum að
Ijúka keppnistimabilinu ár hvert
með stóru móti, sem frá upphafi
hefur borið nafnið BÆNDA-
GLÍMA.
í þetta mót hafa allir kylfingar,
sem kylfu geta valdið, mætt og þá
jafnan verið glatt á hjalla. Þessi
árlega Bændaglima fer að þessu
sinni fram n.k. laugardag og nú I
fyrsta sinn fer hún fram hjá öllum
golfklúbbunum — a.m.k. á Suður-
Iandi — á sama degi og sama
tima.
1 Bændaglimu er skipt i tvö !ið
og fer einn bóndi fyrir hvoru liði.
Er honum m.a. falið að gefa liðs-
mönnum sinum stuðning á allan
hátt og nota til þess öll tiltæk ráð.
Keppnin á laugardaginn hefst
hjá öllum klúbbunum um kl.
13.00. Hjá þeim klúbbum, sem
vitað er að hafa Bændaglimuna,
þá verða þessir menn bændur:
Hjá Golfklúbbnum Nessf Hauk-
ur Jónasson iæknir og Pálmi
Theodórsson verzlunarmaður.
Hjá Golfklúbbi Reykjavikur,
Halldór Sigmundsson tæknifræð-
ingur og Guðjón Einarsson skrif-
stofustjóri. Hjá Golfklúbbi Suöur-
nesja Jóhann Benedikstsson mál-
arameistari og Brynjar Vilmund-
arson útgerðarmaður. Hjá Golf-
klúbbnum Leyni Akranesi Þor-
steinn Þorvaldsson vélstjóri og
Alfreð Viktorsson húsasmiður, og
hjá Golfklúbbnum Keili i Hafnar-
firði þeir Ingimundur Arnason
skrifstofumaður og Ólafur H.
Ólafsson matsveinn.
Ekki er búið að ákveða hverjir
verða bændur hjá Golfklúbbi
Vestmannaeyja, en Bændaglima
GV fer fram á velli GR i Grafar-
holti að þessu sinni.
Þar sem allir klúbbarnir halda
mótið á sama tima hefur verið á-
kveðið að halda lokahóf eða
,,töðugjöld” allra klúbbanna i
Atthagasal Hótel Sögu .á laugar-
dagskvöldið. Þar munu kylfingar
kveðja golfárið 1973 með glensi og
gamni og er búizt við húsfylli, þvi
menn hafa margs að minnast og
frá mörgu að segja að lokinni ver-
tið og einnig frá „afrekum” dags-
ins, sem eflaust verða glæsileg,
eins og alltaf i BÆNDAGLIM-
UNNI.