Tíminn - 04.10.1973, Page 30
30
Fimmtudagur 4. október 1973
Ævintýralegur dagur
Það var mikil til-
hlökkun og spenningur
hjá krökkunum i Eiki-
bæ, en það er smáborg i
Frakklandi. Það stóð
yfir markaður i bænum,
og i kjölfar hans fylgdu
allskonar sýningar og
skemmtanir. Það voru
dýrasýningar, sælgætis-
sölur, hringekjur, smá-
bilabrautir og margt
fleira skemmtilegt.
Jónas og Jana litla
ætluðu lika á
markaðinn. Þau söfnuðu
saman smápeningunum
sinum og fengu að opna
sparigrisina sina,
byrjuðu svo á að
kaupa sér stóra sleiki-
pinna og gengu svo glöð
af stað sleikjandi og
K
U
B
B
U
R
Hún barði
mig með
ástarblómasveig.
Jónas við stýrið og
Jana horfir hrifin á.
sjúgandi stóru sleiki-
pinnana sina.
Fyrst fóru þau að
hringekjunni og Jónas
bað að fá að riða á
trylltasta hestinum, og
valdi sér einn, sem var
froðufellandi og villtur á
svip og ótemjulegur.
Hann fiýtti sér á bak, en
Jana horfði á. ,,Þú skalt
halda þér fast, svo þú
dettir ekki”, sagði Jana
þegar hesturinn fór af
stað og prjónaði og jós.
Jónas hrópaði og æpti
af gleði og þóttist vera
kúreki frá Villta
vestrinu.
Þvi næst fóru þau til
mannsins, sem seldi
blöðrur. Það voru allar
tegundir af blöðrum, og
voru máluð andlit á
sumar, en dýr eða
myndir á aðrar. Þau
keyptu sér fallegar
blöðrur og hlupu og léku
sér með þær, en allt i
einu kom vindhviða og
þær fuku i háaloft og
hurfu út i bláinn.
„ „Ég verð nú
svangur af þessum
hlaupum”, sagði Jónas,
þvi að nú sá hann sölu-
búð, þar sem seldar
voru rjómakökur. „ Ég
ætla að fá eina af
þessum stóru kring-
lóttu” sagði Jónas. Jana
keypti sér lika fallega
köku. Þau stóðu nú
þarna með finu
kökurnar i höndunum og
borðuðu þetta góðgæti,
og að siðustu sleiktu þau
puttana, þó að þau vissu
vel, að þau ættu ekki að
gera það, heldur ná i
vasaklútana og þurrka
sér. En það var ómögu-
legt að láta nokkuð fara
til spillis af þessu sæl-
gæti.
Næst fóru þau i skot-
tjaldið. Þar gátu þau
fengið að skjóta i mark.
Þau skemmtu sér við
það dálitla stund og loks
var Jónas svo heppinn
að hitta alveg i mark og