Tíminn - 21.10.1973, Síða 7
Sunnudagur 21. október 1973.
TÍMINN
7
Rolf Johansen, stórkaupmaður i skrifstofu sinni aö Laugavegi 178. Margt hefur á dagana drifið, siðan hann aðeins 10 ára gamall gerðist starfs-
maður hjá Kaupfélaginu á Reyðarfirði og hann hleypti heimdraganum og fór i Samvinnuskólann i Reykjavik. Skin og skúrir hafa skipzt á i lifi
hans og nú stjórnar hann sinu stóra innflutningsfyrirtæki og er hæsti skattgreiöandi landsins i hópi einstaklinga.
Texti:
Jónas
Guðmundsson
Ljósmyndir:
Gunnar V.
Andrésson
Johansen á Reyðarfirði, en ég ber
nafn þess siðarnefnda, eins og sjá
má. Rolf kaupmaður var Norð-
maður og það var amma min
Kitty Falkner Johansen lika. bau
voru frá Stafangri og Bergen, en
fluttust hingað til lands og gerð-
ust Islendingar mjög ung.
Afi minn var fyrst starfsmaður
hjá Sigurd Johansen á Seyðis-
firði, en settist siðan að á Reyðar-
firði og gerðist þar kaupmaður og
útgerðarmaður og þar voru rekin
fyrirtæki, unz Kaupfélag Héraðs-
búa keypti eignirnar fyrir nokkr-
um áratugum.
Gott fyrir stráka að al-
ast upp á Reyðarfirði
Ég fæddist á Reyðarfirði árið
1933 og ólst upp við sjó og land.
Faðir minn Thulin Johansen, var
starfsmaður hjá Kaupfélaginu og
varð það, eftir að það yfirtók
eignir fjölskyldunnar. I þá daga
voru aðeins tveir vinnuveitendur
á Reyðarfirði, kaupfélagið og
Vegagerðin og ef menn fengu ekki
vinnu hjá öðrum hvorum þeirra,
þá fluttu þeir bara burtu. Ég fyrir
mitt leyti er feginn, að við skyld-
um verða kyrr á Reyðarfirði, þvi
að þar var gott að vera fyrir
stráka og gott að alast upp.
Það var ákveðið að ég skyldi
verða verzlunarmaður. En það
gekk nú hálf skrykkjótt. Ég fór i
verzlunarskólann en féll þar eftir
tveggja vetra nám, öllum til sárr-
ar hrellingar. Svo veiktist ég i
baki og átti i þvi i eitt ár — meira
og minna. Aðallega þó meira, þvi
mér leið djöfullega.
Keyrði traktor dag og
nótt
Svo var mál með vexti að ég var
nýbyrjaður innan búðar i
kaupfélaginu, þegar Þorsteinn á
Reyðarfirði, kaupfélagsstjóri
fékk fyrsta traktorinn. 1 þá daga
voru innanbúðarmenn látnir taka
þátt i heyskap og hverju sem til
féll, þegar litið var að gera i
kaupfélaginu. Þá var ég gerður
að fyrsta traktorsstjóra Reyðfirð-
inga, en þetta var litil Farmall
dráttarvél, sem þeir höfðu keypt.
Ég hafði geysilegan áhuga á
traktornum og keyrði hann nætur
og daga út og suður við heyskap
og allan fjandann og þá gaf bakiö
sig. Tveir hryggjarliöir gengu á
misvixl, annar til vinstri og hinn
til hægri og þar með var ég
kominn i rúmið og endi bundinn i
eitt skipti fyrir öll á feril hins
efnilega traktorsstjóra hjá
Kaupfélagi Héraðsbúa á Reyðar-
firði.
Þótt illa hefði farið um
verzlunarskólann, var það ekki
vandi minn eða fjölskyldunnar að
gefast upp. Var ég nú sendur i
Samvinnuskólann og þar var ég i
eitt ár. Það var 1952, held ég, en
það var siðasta árið, sem Jónas
Jónsson frá Hriflu var skóíastjóri
þar.
Jónas frá Hriflu stór-
kostlegur
Jónas frá Hriflu var stórkost-
legur maður og liklega einn bezti
maður sem ég hefi kynnzt. Alveg
sama þótt hann hafi sett báða af a
mina á hausinn. Hann hafði mikil
og djúp áhrif á nemendur sfna.
Um þetta leyti var hann auðvitað
hættur þeim opinberu störfum,
sem hann er kunnastur fyrir hjá
þjóðinni, en mér er mississtætt,
að þegar dægurmálin bar á góma
i samtölum eða i skólanum, þá
svaraði hann okkur á sérstakan
hátt, dró fram sagnfræðilegar
hliðstæður og likingar og tengdi
liðandi stund á ógleymanlegan
hátt. Ég held að ég verði ávallt
mikill aðdáandi Jónasar frá
Hriflu og tel að hann hafi oftar
haft rétt fyrir sér en hitt.
Ég byrjaði verzlunarstörf að-
eins 10 ára gamall, en þá var ég
eins konar lagerstrákur i
kaupfélaginu. Siðan eftir 3-4 ár
var ég gerður að aöstoðar-
verzlunarstjóra i járn- og gler-
vörudeild og ári siðar að deildar-
stjóra i sömu deild þá aðeins 14
ára.
Innanbúðar á Reyðar-
firði — kol til bænda
Ég var strax orðinn kaupmaður
og upphefð min var stór. Þor-
steinn á Reyðarfirði var þá auð-
vitað kaupfélagsstjóri, en hann
var eins konar konungur Austur-
lands þá og alla sina tið. Það fór
vel á með okkur og ég bar djúpa
virðingu fyrir honum og geri enn.
Á þessum árum voru aðrir
viðskiptahættir og atvinnuhættir
en núna er. bað voru aldrei
notaðir neinir peningar á Reyðar-
firði. Allt var skrifað, bara skrif-
að og aldrei kvittað fyrir og menn
læstu ekki húsum sinum þá á
Reyðarfirði, heldur var þetta eins
og ein fjölskylda allt saman og
menn börðust har i erfiðu árferði
fyrir sér og sinum. Allir áttu belj-
ur og sauðfé og höfðu vinnu hjá
áðurnefndum aðilum, kaupfélag-
inu eða vegagerðinni.
Eitthvað hefur velgengnm í
kaupfélaginu stigið mér til höf-
uðs, þvi að allt i einu var ég tekinn
úr deildarstjórastöðunni og settur
á vörubil til að keyra kol til bænd-
anna. Það gekk ágætlega og
bændur fengu sin kol i logandi
hvelli, þvi ekki var áhuginn minni
i kolunum, en i járninu og glerinu
og svo fór ég i samvinnuskólann.
Samvinnuskólinn — Til
sjós með Hvassafelli
Með Samvinnuskólanum urðu
nokkur þáttaskil i lifi minu, en að
námi loknu gerðist ég sjómaður.
Um þetta leyti þótti þaö mikill
heiður að komast til sjós á milli-
landaskipi og fengu færri en
vildu. Var ég svo heppinn að fá
pláss á gamla Hvassafellinu hjá
Bergi Pálssyni skipstjóra. Þóttist
maður aldeilis hafa dottið i lukku-
pottinn.
Ég held að mér hafi aldrei likað
vistin á sjó. Ég hafði aldrei verið
á sjó fyrr og var auðvitað til að
byrja með látinn bursta skó,
hreinsa klósett og þvo Ieirtau og
ég dróst áfram eins og þreytt
verkakona um skipið. En ég var
samt fljótur að læra á hlutina um
borö. Þeir kölluðu mig þá
„sveitamanninn”, sem mér er
mikill heiðuraðnú. 1 þá daga var
mikiö verzlaö til sjós og til að
forðast misskilning, skal þess
getið, að annar gjaldeyrir var T
heiminum þá og önnur gjaldvara
og allt var selt og allt var keypt
eftir flóknu kerfi og alþjóðlegum
sjómannasiðum, en ekki verið i
neinu smygli, eins og nú gerist
stundum. Gömul skyrta og gaml-
ir skór voru gjaldmiðill þá i
heiminum og ég var auðvitað
kjörinn til allra hluta, þvi ég var
svo lipur i allri sölumennsku og
virðing min fór vaxandi i skipinu
og eftir eitt ár var ég orðinn
fullgildur háseti og kominn i
bezta tveggja manna klefann hjá
hásetunum og haföi virtasta
manninn um borö, Magnús Þor-
leifsson frá Hrisey, að klefanaut.
Það voru miklir timar.
Öfundaði yfirmennina á
skipinu — Þykir vænt
um algebruna
Um þetta leyti var ég alvarlega