Tíminn - 21.10.1973, Blaðsíða 36

Tíminn - 21.10.1973, Blaðsíða 36
36 TÍMINN Sunnudagur 21. október 1973. Nú er varla hægt aft sjá, að Petra er fædd meö skarft I vör. Hér situr hún i fangi mömmu. Hún fæddist með hræðilegt andlitslýti Nú getur hin fimm ára gamla Petra Tall brosaft. Þegar hún koin i heiminn I aprfl 1968 var hún með skarft i vör, klofinn góm og klofna efri vör. Fyrstu þrjá mánuðina, sem Petra liffti, grét hún dag og nótt, foreldrum sínum til mikillar skelfingar. Hún grét vegna þess, aft hún gat sama og ekkert sogift. Þegar Rosa-Lill Tall hafði fætt fyrsta barnið sitt, spurði hún auðvitað hvort það væri vel skapað. En hún fékk ekkert svar og henni var ekki sýnt barnið. Hún var lögð inn á einkastofu, og þar lá hún og hugsaði hið versta. Hún sá fyrir sér hræðilegar myndir af barninu, sem hún hafði fætt i heiminn, Þegar Petra litla var sett i fyrsta sinn i rúmið til hennar, varð það næstum léttir, að barnið hafði „aðeins” skarð i vör — að visu á háu stigi, — og bæði gómurinn og efri vörin voru klofin. Petra Ingrid Agneta Tall fædd- ist 18. april 1968. Móðirin, Rosa- Lill Tall, var aðeins 19 ára og faðirinn, Stefan Hallberg, var tvitugur. Þau buggu i Mariefrad, og hún vann hálfan daginn f verk- smiðju, en hann lagði stund á tölvumötun og tölfræði við há- skólann f Stokkhólmi. Ungu hjónin urðu óneitanlega fyrir áfalli, þegar þau sáu Petru. Rósu-Lill létti, vegna þess að hún hafði haldið að barnið væri enn hræðilegra vanskapað, meðan henni var ekki sagt neitt, og hún lá og beið. En léttirinn blandaðist skelfingu, þegar hún horfði á litlu veruna, sem lá og grét við hliðina Petra litla fæddist meft skarft i vör, klofinn góm og klofna efri vör. Skurðaftgerftirnar gjörbreyttu henni. á henni. Hún varð að snúa sér undan i smástund. Svo tók hún barnið I fangið, þrýsti sér að þvi og hugsaði. Sjálfsagt er hægt að gera á henni uppskurð. Skarðið verður saumað saman, svo að það sést næstum ekkert. Það var kannski ennþá erfiðara fyrir Stefan að taka þessu. Hann var stifur og taugaspenntur, þegar hann sá dóttur sina i fyrsta skipti. Hann starði á barniðog leit siðan undan. Og hann skammað- ist sin fyrir að haga sér svona. Telpan var hraust og vel sköpuð fyrir utan andlitslýtið, en hann gat ekki horft á hana aftur, ekki i fyrsta skiptið, og leið ákaflega illa. Fyrstu þrjá mánuðina grét Petra dag og nótt, svo að foreldrarnir voru næstum búnir að missá vitið. Hún grét af þvi að henni tókst ekki að sjúga nóg, hvorki brjóst móðurinnar né pel- ann. Allt rann út úr munninum á henni. Þegar hún fékk matinn, varð Rosa-Lill næstum að láta mjólkina drjúpa ofan i hálsinn á henni. Það tók miklu lengri tima en við eðlilegar aðstæður, og Rosa-Lill var alltaf dauðuppgef- in. Hún varð oft að sitja uppi á nóttunni og hugga Petru. Petra gat ekki einu sinni sogið á sér fingurna, þvi þeir runnu jafn- harðan út úr munninum á henni. Þetta var erfiður timi fyrir ungu hjónin. En Rosa-Lill er sterk að eðlisfari, og gafst ekki svo auð- veldlega upp. Henni þótt auðvitað ákaflega vænt um barnið sitt, og hún byrjaði að lita björtum aug- um á vandamálið. Það var langt um liðið siðan henni fannst Petra ófrið, og hún vandist erfiðleikun- um. Það var aðeins eitt, sem hún átti erfrtt með: Þegar ættingjar og vinir komu til að lita á Petru, þá gláptu þeir á barnið og urðu vandræðalegir, og Rosa-Lill þoldi það mjög illa. Þegar Petra var þriggja mánaða, var hún skorin upp i fyrsta sinn. Stefan og Rosa-Lill höfðu komizt i samband við Tord Skoog, prófessor i Uppsölum, sem er sérfræðingur i nýrri aðferð til að lækna andlitslýti. Aðferðin byggist á að aðstoða likamann við uppbyggingarstarfsemina, sem er mikil hjá ungum börnum. Beinhimna klofna gómsins getur framleitt nýtt bein, sem kemur yfir klofann. Náttúran byggir upp. Náttúran annast sjálf uppbygginguna, þegar sér- fræðingurinn hefur komið henni af stað. Petra er þriðja barnið, sem er skorið upp eftir þessari aðferð. Hún varðfimm áraiapril á þessu ári. Það er varla hægt að sjá, að gómurinn og vörin hafi verið klofin. Og ekkert heyrist á mæli hennar. Petra hefur verið rannsökuð af læknum viðsvegar að úr heimin- um, sem hafa áhuga á að fylgjast með þvi, hvaða árangur aðgerðin hefur haft. Petra dregur fram albúm með fjölskyldumyndum. — í þessu eru margar myndir af mér, áður en ég var „löguð” segir hún. Nokkrar aðgerðir hafa verið gerðar á henni, og ennþá á að gera einhverjar i viðbót. Rétta á tannstöðuna, og þegar hún verður þrettán ára, á að laga nefnið litilsháttar. En þetta eru aðeins smámunir. Það hefur aldrei reynzt erfitt að fá Petru til að leggjast inn á sjúkrahús, en i hvert skipti, sem hún kemur heim aftur, hefur hún verið óþægari en áður, pissað i buxurnar og vaknað á hverri nóttu. Þessi tfmabil hafa reynt mjög á þolinmæði foreldranna, en þau standa aldrei lengi yfir. Félagarnir furðu lostnir. Petra hefur aldrei átt i erfið- leikum með samskipti við börnin á götunni. Rosa-Lill hefur séð hana sýna börnunum götunni upp I munninn á sér, og þau standa furðu lostin i kringum hana. Rosa-Lill og Stefan þorðu varla að trúa þvi, að Petra gæti orðið jafn lagleg og raun ber vitni. Þau lita öll i myndaal- búmið, og Pet'ra segir: — Sjáðu aumingja litlu telpuna. Þetta er Petra, áður en hún var skorin upp. — Þetta hefur verið mjög áhuga- vekjandi, segir Rosa-Lill. — Meira áhugavekjandi heldur en ef allt hefði verið i lagi. Við höfum lifað þetta sameiginlega, öll þrjú. Þegar Petra kom heim úr fyrsta uppskurðinum, þriggja mánaða gömul, hafði hún pappa- hólka um handleggina, svo að hún klóraði sig ekki i saumuðum munninum. A hverju ári færðast um 100.000 börn i heiminum með andlitslýti og skarð i vör. Nýja aðferðin er nú notuð við hundruð barna i Uppsölum, og er á góðri leið með að verða sú mest notaða i heimin- um. (Þýtt og endursagt. — gbk. Petra getur nú brosaft eins og önnur börn. Þaft á afteins eftir aft gera á henni nokkrar minni háttar aftgerftir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.