Tíminn - 21.10.1973, Blaðsíða 10
10
TÍMINN
Sunnudagur 21. október 1973.
r / j
L. / 1
g
svið, sem opnaðist með brélinu
góða, en eitthvað var samt flutt
inn af skrani, en áherzlan var
lögð á innlendar framleiðsluvör-
ur.
,,Standard”-bréf til Jap-
an
Svo bar til, að við sjaum litla
auglýsingu i vikublaðinu Tima
frá Japan þar sem auglýstir voru
Bridgestone hjólbarðar.
Við ákváðum nú að senda þeim
bréfið góða, eða „standard” fyr-
irspurnina. Fór bréfið eins og
hvert annaö venjulegt fyrir-
spurnarbréf til Japan. En nú
skeði nokkuð- Við fáum fallegt
svarbréf frá Bridgestone og jafn-
framt fengum við senda 16 kassa
af allskonar öskubökkum, kata-
lógum, pennum og aúglýsinga-
drasli. t>eir kunnu sem sé sitt fag
þarna fyrir austan. Jafnframt
fengum við verðlista og við at-
hugun, þá kom i ljós, að verð
Bridgestonehjólbarðanna var al-
veg ótrúlega lágt, miðað við þá
hjólbarða, er hér voru seldir. Eg
held satt að segja, að mönnum
hér hafi bara ekki litizt á blikuna,
að þetta hlyti að vera eiinhver
misskilningur með verðin frá
Bridgestone.
Fékk ég þó tvo aðila til að
kaupa dekk. Hrafn Jónsson og
Gúmbarðann hr. Keypti Hrafn
fyrir lOOOdollara, en Gúmbarðinn
fyrir 500 dali, en þá var allt háð
gjaldeyris- og innflutningsleyf-
um.
Hað er sannast mála, að við
haftakerfið og bankana réði ég
ekki neitt, hafði hvorki af að státa
ætt né auði og naut ekki virðingar
i kerfinu. Loks var þessi
innflutningur gefinn frjáls og þá
setti ég heilsiðu auglýsingar i
dagblöðin og auglýsti þessa stór-
lækkun á hjólböröum frá Japan.
----Þar með fóru hjólin að snú-
ast með Bridgestone undir biln-
um.
Við pöntuðum og seldum fyrir
150.000 dollara fyrstu þrjá
mánuðina, 'sem var ofsafé i þá
daga.
En það merkilega við þetta allt
saman var það, að við og þá
tækin hala rekið hann til skamms
tima með miklum glans.
JMJ hafði verzlað mikið við
okkur i Burkna og vona ég að
hann hafi ekki séð eftir þeim
kaupum.
Ilolf byrjar heildsölu
Ég byrjaði sölumennsku aðal-
lega með innlendar iðnaðarvörur,
en vildi reyna innflutning á vör-
um lika. Min sterka hlið voru ekki
erlend verzlunarbréf. Eg fór nú i
prentsmiðju og fékk prentað fall-
egt og tilkomumikið bréfsefni
með adressu og öðru finirii og
jafnframt f6kk ég eitthvert séni,
sem ég hafði verið með i
verzlunarskólanum og fékkst við
bréfaskriftir til að útbúa fyrir
mig „standard” verzlunarbréf,
eða bréflega fyrirsprun. Siðan fór
ég niður i verzlunarráð og „pikk-
aði út” allskonar firmu i Evrópu,
aðallega á ttalfu og á Spáni. 011
þessi fyrirtæki fengu sent þetta
sama fyrirspurnabréf frá Holf
Johansen og companý og nú
bókstaflega rigndi bréfum yfir
okkur utan úr heimi og það var
svo sannarlega vitt viðskiptasvið,
sem við vorum komnir á. Við gát-
um nú boðið allt milli himins og
jarðar: tanngarða frá Spáni og
kafarabúninga frá ttaliu, svo eitt-
hvaðsé nefnt, en viðhöfðum talið,
að við værum að skrifa vefnaðar-
vöruframleiðendum, eða textil-
firmum, eins og það heitir á fag-
máli.
Millirikjaviðskiptin gengu
heldur dræmt, þrátt fyrir viðtækt
Aslaug Agústsóttir, vélritunarstúlka og simastúlka.
Þótt einn hjólbarði virðist í fljótu bragði vera svipaður öðrum hjólbarða, verður stærsti hjólbarðasali
landsins að geyma margar tegundir og stærðir á lagerum sinum. Hér er starfsmaður hjá Rolf Johansen
og co mcð stærsta og minnsta hjólbarðann, sem þar var I svipinn. Þetta er þó langt þvi frá stærsti — eða
minnsti hjólbarðinn, sem fyrirtækið selur.
Unnur Halldórsdóttir við telcx. Með þessum fjarritara eru pöntuð snjó-
dekk og önnur dekk fyrir eina milljón dala á ári. cif.
Bridgestone verksmiðjurnar
stórlækkuðu verð á hjólbörðum á
tslandi. Aðrir framleiðendur urðu
að lækka verð sinna hjólbarða til
samræmis eftir því, sem þeir
gátu.
Japanskir hjólbarðar —
Stöðugt verðlag
bá er það og athyglisvert, að á
þessum þrettán árum, sem liðin
eru siðan Bridgestone hjól-
barðarnir komu á islenzka
markaðinn, þá hafa þeir aðeins
hækkað um 11% á 13 árum. Sú
hækkun er vegna hækkunar yens-
ins japanska gagnvart dollarn-
um. Japanska verðið stendur i
stað og sýnir fátt betur snilli
þeirra þarna fyrir austan.
Arið 1972 seldum við hjólbarða
fyrir 987000. dollara, en það mun
vera um 49% af hjólbarða-
innflutningi landsins. Með öðrum
orðum má segja að annaðhvort
dekk i landinu sé Bridgestone.
Frá þvi að Bridgestóne verk-
smiðjurnar fengu „standard”
bréfið góða frá okkur, er mikið
vatn runnið til sjávar. Ég hefi
heimsótt Japan og menn frá
fyrirtækinu hafa farið þangað til
skrafs og ráðagerða og þeir hafa
haft menn hér til dvalar i lengri
og skemmri tima, til að skipu-
leggja og útfæra hjólbarðasöluna
hér.
Nú fara ekki nein bréf lengur á
milli, nema jólakort. Nauðsynleg
viðskipti fara fram á telex. Þeir
vita nákvæmlega hvernig hlutirn-
ir gerast á Islandi og við hvernig
þeir vinna og skilningur og traust
er á báða bóga.
Enotómó forvitri?
Satt að segja skildi ég aldrei,
hvernsvegna þeir kusu að gera
mig að umboðsmanni sínum hér á
landi, þar eð öflug fyrirtæki sótt-
ust eftir framleiðslu þeirra, að
selja hana hér á landi. En
Enotomo, sem er einn af toppun-
um í Bridgestone, sem er stærsti
framleiðandi hjólbarða i Asiu,
sagði þegar hann sá „standard-
bréfið”,. þennan gerum við að
umboðsmanni. Hann á eftir að
gera stóra hluti fyrir Bridgestone
á Islandi.
Hann er sagður sjá lengra en
aðrir menn, eins og svo margir
Asiubúar. Að vera forvitri er það
þvi kallað.
Gunnlaugur Jónsson, skrifstofumaður.