Fréttablaðið - 28.10.2004, Síða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R
SMS
LEIKUR
EINTAK Á 199 KRÓNUR?
Sendu SMS skeytið
BTL TBF á
númerið 1900
og þú gætir unnið!
12. hve
r
vinnur!
Ótal
auka-
vinning
ar!
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 199 kr/skeytið
Kem
ur 5
.nóv
.
PC CD-ROM
PC CD-R
OM
INNIHELDUR
ÍSLENSKU
DEILDINA!
SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Til kvenna
Ég þarf að viðurkenna svolítið. Éggeri það í þeirri von að það losi
mig undan synd minni. Að viður-
kenna mistök mín hefur reynst mér
vel við að losna undan þeim og hefur
hjálpað mér að gera betur. Þannig er
mál með vexti að ég er haldinn kven-
fyrirlitningu. Ég veit ekki hvaðan ég
fékk hana en ég er haldinn henni.
Mér hefur oft fundist þið röfla þegar
þið eruð að segja eitthvað.
Ég hef skipt ykkur í tvo megin
hópa: Stelpur og kellingar. Femínista
hef ég átt erfitt með að þola.
Ég hef haldið að fegurðardrottningar
séu undantekningalaust heimskar. Ég
hef líka haldið að ófríðar konur væru
oftar en ekki lesbíur. Oft hef ég verið
þeirrar skoðunar að konur sem eru
mjög ákveðnar væru tæfur. Jússur,
buddur, tussur, kelling, belja, ljóska
og stelpufífl eru allt orð sem ég hef
notað um ykkur. Ég hef haft rangt
fyrir mér, verið þröngsýnn, fáfróður
og ósanngjarn.
Ég var að tala við dóttur mína um
daginn. Hún var að segja mér frá því
að þegar verið er að velja í lið í skól-
anum þá séu stelpur alltaf valdar síð-
ast. Þetta fékk mig til að hugsa. Ég
held að konur séu fórnarlömb ákveð-
ins hugsunarháttar sem þær gera sér
smátt og smátt grein fyrir í æsku. Í
heimi sem metur karlmennsku og
styrk meira en kvenleika og mýkt fá
þær snemma á tilfinninguna að þær
séu ekki nógu góðar; að þær séu eitt-
hvað gallaðar. Gott dæmi er megrun-
ardýrkunin í kvennablöðunum. Glað-
ar konur stæra sig af því að hafa
misst ákveðið magn af kílóum og er
gefið í skyn að það sé lykillinn að
hamingju þeirra í dag. Inní blaðinu
er svo mynd af þeim þegar þær voru
feitar og óhamingjusamar. Hvaða
áhrif ætli þessar greinar og myndir
hafi á litlar stelpur?
Konur eru eins misjafnar og þær
eru margar. Flestar af bestu og gáf-
uðustu manneskjum sem ég hef
kynnst á ævinni eru konur. Mamma
mín er kona. Konan mín er líka kona.
Einnig dætur mínar og tengda-
mamma. Systir mín. Kona. Sú mann-
eskja sem ég tel að hafi gert mest
gagn í heiminum á síðustu öld er að
mínum dómi móðir Teresa. Kona.
Ég bið allar konur afsökunar á
framkomu minni og fordómum. Ég
skammast mín og lofa að breytast.
Ég vona að þið getið fyrirgefið mér.
Ég bara vissi ekki betur. Gangi ykkur
allt vel í framtíðinni.
JÓNS GNARR
BAKÞANKAR
64 (48) bak 27.10.2004 22:10 Page 2