Fréttablaðið - 08.12.2004, Side 45
33MIÐVIKUDAGUR 8. desember 2004
FRÉTTIR AF FÓLKI
Stærsti leikurinn sem hefur komið
á Xbox-leikjavélina var lengi vel
Halo. Engin annar leikur hefur
náð sömu hæðum og hann fyrr en
nú. Halo 2 tekur við forystuhlut-
verkinu af forvera sínum með nýj-
ungum og viðbótum fyrir seríuna.
Master Chief mætir aftur í
sögufléttuna eftir að hafa eyðilagt
risastóran dularfullan hring í út-
geimi sem var í rauninni ofur-
vopn. Illu geimverurnar í Coven-
ant eru nú á leið til jarðarinnar og
þarf Master Chief að bjarga
heimaplánetunni sinni frá innrás
þeirra.
Söguþráður Halo heldur áfram
í Halo 2 þar sem kafað er dýpra í
merkingu hringsins og tengsl hans
við The Covenant. Ég mun ekki
fara í smáatriði söguþráðsins og
eyðileggja fléttuna fyrir spilurum.
Í rauninni er leikurinn spilaður
frá sjónarhornum tveggja karakt-
era í leiknum, hvor úr sínu liðinu.
Sagan tvinnast saman og skýrist æ
betur þegar líður á leikinn enda er
söguþráðurinn keyrður áfram
með leiknum atriðum milli verk-
efna og einnig er hægt að fræðast
meira með því að hlusta vel á öll
þau samtöl sem eiga sér stað í
leiknum. Það er mikill hasar í
leiknum og mikið af óvinum inni á
skjánum í einu.
Gervigreindin er frábær, óvinir
jafnt sem vinir vinna saman í orr-
ustum og það gerir gæfumuninn á
örlagastundu. Umhverfi leiksins
er til fyrirmyndar með mikilfeng-
legum heimum sem eru mjög sjón-
rænir og gefa leiknum mikið
vægi. Hljóðvinnsla er einnig vel
af hendi leyst með sérhönnuðum
hljóðbönkum fyrir öll umhverfis-
hljóð, vopnahljóð og allt annað
sem viðkemur sándinu. Tónlistin
er með epískum undirtóni, glymj-
andi gítarsólóum og rokki sem
virkar ágætlega fyrir hasarinn.
Mesta sjokkið við Halo 2 er
hversu stuttur hann er. Auk þess
magnast sjokkið við það hvernig
leikurinn endar. Þó svo að það
tæki mig smá tíma að jafna mig þá
komst ég að þeirri niðurstöðu að
leikurinn skilar sínu hlutverki.
Ekki má gleyma fjöldaspilunar-
möguleikanum sem ekki verður
farið út í hérna.
franzgunnarsson@hotmail.com
Ofurhasar um allan heim
VÉLBÚNAÐUR: XBOX
FRAMLEIÐANDI: BUNGIE
ÚTGEFANDI: MICROSOFT
NIÐURSTAÐA: Ofurhasar á jörðu sem í geimi.
Master Chief kemur sterkur inn í áframhaldandi
sögu á epískum mælikvarða um fyrirbærið
Halo. Skemmtilegar nýjungar dæla nýju lífi í
seríuna sem er ein sú vinsælasta í dag. Frábær
leikur sem hefði mátt vera lengri.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
INNRÁS PLAYBOY Michael Nussbaum,
stjórnarformaður Shanghai Entertainment
Ltd., flutti ræðu á ráðstefnu Playboy-
klúbbsins í Shanghæ fyrir skömmu. Play-
boy hyggst nú herja á Kína með vörur sín-
ar og ætlar meðal annars að opna nudd-
stofu, veitingastaði og stærsta diskótek
landsins, að sögn talsmanna þess.
Betri myndir en þú
átt að venjast!
Sími 588 7669 www.sonycenter.is
Þegar þú kaupir stafræna myndavél
hjá okkur í Kringlunni færð þú 256 MB
minniskort með fyrir aðeins
995,-
Venjulegt verð er 9.995,-
Þú sparar 9.000,-
DSC-P120
*Miðað við 12 jafnar vaxtalausar greiðslur á Visa eða Mastercard skuldabréf. 0,5% stimpilgjald bætist við samningsfjárhæðina og greiðist með jöfnum greiðslum yfir samningstímann.
Stamina tæknin hjá
Sony tryggir þér lengri endingu
á hleðslu og eins fljótari endur-
hleðslu ásamt rauntíma í notkun.
12 mánaða greiðslur
vaxtalaust.
Þú veist hvað þú borgar
mikið á mánuði.
Carl Zeiss linsa.
Einn stærsti linsu fram-
leiðandi í heiminum
framleiðir linsurnar fyrir Sony.
DSC-T3
5.495 krónur á mánuði vaxtalaust
eða 65.940 krónur staðgreitt.*
5.1 Megapixels effective Super HAD CCD myndflaga • Carl
Ceiss Vario-Tessar linsa • Linsan innbyggð í vélinni • 2.5" litaskjár
4.995 krónur á mánuði vaxtalaust
eða 59.940 krónur staðgreitt.*
5.1 Megapixels effective Super HAD CCD myndflaga • Carl Zeiss
Vario-Tessar linsa • 3x optical aðdráttur (6x digital aðdráttur)
Tölvuleikja-
fréttir
Nýjasta leikjavélin Nintendo DS
kom á markaðinn í Japan 21. nóv-
ember síðastliðinn. Áhugi fyrir vél-
inni var minni en búist var við.
Fáar rafeindaverslanir opnuðu
fyrr en vanalega og raðir í þær
styttri en gengur og gerist.
Ástæðan virðist liggja í því að
útgáfudagurinn var á virkum degi
og framboð á vélinni nægilegt eða
hálf milljón eintaka sem er mun
hærri dreifingartala en þau
200.000 stykki sem Nintendo hafði
áætlað að dreifa.
Frá útgáfudegi hefur vélin nán-
ast selst upp og Nintendo hefur því
tekið til bragðs að opna nýja verk-
smiðju til að annast eftirspurn.
Vegna stórra pantana hjá smá-
söluaðilum mun Nintendo fram-
leiða milljón eintök fyrir áramót og
hækka alþjóðaframleiðsluna úr
fjórum milljónum í fimm milljónir
eintaka.
Útgáfa samskonar leikjavélar
frá Sony, PSP, kemur á Japans-
markað síðar í mánuðinum og hafa
talsmenn Sony sagt að aðeins
200.000 þúsund vélar verði fáan-
legar á fyrsta söludegi.
World Of Warcraft frá Blizzard
sló sölumet í Norður-Ameríku með
240.000 eintök seld á fyrsta sölu-
degi. 200.000 spilarar skráðu sig
inn á netþjón Blizzard samdægurs
og hundrað þúsund spilarar voru
komnir í leikinn í lok vinnudags.
Warcraft-leikjaserían er gríðar-
lega vinsæl um allan heim þar sem
spilarar lenda í miklum ævintýrum
í heimakynnum Azeroth. World Of
Warcraft er gríðarstór rauntíma-
heimur þar sem þúsundir spilara
koma saman á netinu í ævintýra-
leit. ■
MTV hefur endurnýjað samningsinn við Simpson-systurnar. Því
verður framleidd ein sería í viðbót af
þætti Jessicu Simpson og eiginmanns
hennar Nick Lachey, Newlyweds.
Einnig mun þáttur Ashlee Simpson
mæta aftur á skjáinn eftir áramót. Sá
heitir The Ashlee Simpson Show og
fjallar um tilraun hennar til að
koma söngferli sínum á skrið.
Þegar Newlywed-þættinum
lýkur mun Nick Lachey svo
eignast sinn eigin þátt þar
sem hann reynir við sólófer-
il.
Matt Damon grátbað framleiðend-ur Ocean's Twelve að láta sig fá
minna hlutverk í framhaldsmyndinni
en þeirri fyrri vegna þess hversu þreytt-
ur hann var eftir langa vinnutörn.
Damon eyddi mestum tíma þessa árs í
Evrópu að leika í myndinni The Bourne
Supremacy og fór beint á tökustað
Ocean's Twelve án nokkurrar hvíldar.
„Ég bað um minna hlutverk
í þetta sinn. Ég vildi vinna
minna vegna þess að ég var
mjög þreyttur eftir The Bo-
urne Supremacy,“ sagði
Damon.
44-45 (32-33) skrípó 7.12.2004 18:44 Page 3