Tíminn - 14.07.1974, Síða 7
Sunnudagur 14. júli 1974.
TÍMINN
7
Frummyndin, sem er I Sankti Jakobskirkju I Innsbruch.
AAYNDLIST Á
vefi. Þær finnast á heið-
um Suður-Englands og
einnig á vinekrum i
Austurríki. Það var
nálægt Innsbruch i
Austurriki, að heit
trúhneigð landsmanna
knúði þá snemma á
átjándu öld til að
uppgötva það, að unnt
var að nota köngullóar-
vefi þessa til merkilegra
hluta.
Leifar skordýrsins voru
hreinsaðar af vefnum. Siðan var
hann vættur i mjólk, og þá var
hægt að mála á hann með vatns-
litum og pensli úr hrossa-
gauksfjöðrum.
Elztu myndirnar á köngullóar-
vef málaði Elias Prunner (um
1730),og voru þær eftirlikingar af
helgimyndum. Vinnan á þeim var
svo fin, að þær sáust jafn vel
hvorum megin sem horft var á
þær, ef þær voru hafðar á milli
tveggja glerplantna. Prunner
taldi sig ekki skapandi listamann,
en færni hans i gerð slikra mynda
laðaði að nemendur og
eftirlikjendur.
Listgrein þessi lifði eins lengi
og bezti nemandi hans Jóhann
Burgmann (d. 1825). Um sjötiu
slik málverk frá þessu timabili,
sumt landslagsmyndir, hafa
fundizt i kirkjum i Austurriki og
Bæheimi, opinberum söfnum og
einkasöfnum. Flestar myndir
Burgmanns sjálfs eru áletraðar,
og stundum er litil mynd af
KÖNGULLÓARVEF
KÖNGULLÆR, sem arhús (Agelena Labyr-
kenndar eru við völund- inthica), spinna þykka
Byrjunin. Könguló I vef sinum
Frummyndin eftir Peter Paul Kirckebner I Ferdinandssafni.
köngulló i horni þeirra. Sagt er að
hann hafi einnig sett hnetur i
mjólkina.sem hann bleytti vefina
með,til að fá oliukennda áferð á
myndirnar. Stærð þeirra
takmarkaðist af stærð vefjanna,'
venjulega voru þessi málverk
innan við 19x15 cm.
Reynt var að endurvekja þessa
listgrein um 1870, og á þessu sið-
ara skeiði kom bezti málarinn
fram, Trager. Hann var siðastur
þessara málara og gerði einkum
myndir á þéttan vef, sem lirfu-
tegund spinnur (Hyponomeuta
evanymellus).
Eina vel bekkta mvndin i Eng-
landi úr hópi austurriskra mynda
úr köngullóarvef er af guðsmóður
með jesúbarnið, römmuð inn
milli tveggja þunnra glerplatna i
dómkirkjunni i Chester. Hún er
eftirmynd af oliumálverki eftir
Lucas Cranach frá 16. öld, sem er
einn af dýrgripum kirkju heilags
Jakobs i Innsbruch.
Frú Dennistoun innanhússarki-
tekt, sem var i tizku meðal
Lundúnabúa fyrir um fimmtiu
árum, átti aðra mynd af heilögum
Andrési að kanna uppskeru sina
ásamt þrem englum.
Þriðju myndina á W.S.
Bristowe, sem er mikill
áhugamaður um köngullær.
Hann keypti hana nýlega á
uppboði i Hove. Myndin er af
fallegri en dapurlegri stúlku,
Filippinu Welser frá Augsburg,
sem Habsborgarar útskúfuðu er
hún giftist Ferdinandi syni Ferdi-
nands erkihertoga af Áusturriki.
Siðar hlaut hún fyrirgefningu og
bjó hamingjusöm með manni sin-
um i Ambraskastala nálægl Inns-
bruch, og það orð komst á meðal
ibúanna að hún væri dýrlingur.
Hún lézt árið 1580.
Oliumálverkið, sem var fyrir-
myndin, fannst i Ferdinandssafn-
inu i Innsbruch. Það málaði Paul
Kirckebner um 1830, en engar
spurnir eru um að hin myndin
hafi verið máluð um svipað leyti.
Gerð hennar bendir til að höfund-
urinn sé A. Trager. Myndin er
máluð á silki áðurnefndrar lirfu.
Randolf Berens kom með
myndina til Englands 1896. Þótt
myndin sé ekki gömul er hún
mjög vel gerð og ótrúlega fögur.
Myndin i Chester dómkirkju er
ómerkt og kom til Englands á 19.
öld. Rannsókn kann að leiða i ljós
að hún sé máluð á siðara timabil-
inu.
Guðsmóöir með barnið i Chesterdómkirkju á Englandi eftirliking
af oiiumálverki frá 16.öld.
Fiiippina Welser máluö á köngulóavef.
Ein af myndurn Jóhanns Burgmann dagsett 1784, sem er á
Ferdínandssafninu 1 Innsbruch.