Fréttablaðið - 15.12.2004, Side 8
8 15. desember 2004 MIÐVIKUDAGUR
BLAIR Í LEIKFIMI
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, tók
þátt í leikfimitíma í kvennaskólanum Wa-
verley í Peckham í London í gær. Blair var
þar til að kynna átak í byggingu íþrótta-
mannvirkja við skóla, en markmið þess er
að hver nemandi í breskum grunnskólum
verði minnst fjóra tíma í leikfimi í viku
hverri áður en áratugurinn er úti.
LANDBÚNAÐUR Á næstunni verður
fargað um 350 fullorðnum kindum
auk ásetningsfjár á bænum Aust-
urhlíð í Biskupstungum vegna
riðusmits sem þar greindist í
tveimur kindum í liðinni viku. Að
sögn Sigurðar Sigurðarsonar, sér-
fræðings yfirdýralæknisembætt-
isins í sauðfjársjúkdómum, er
hjörðin á bænum sú stærsta í
sveitinni, losar um 400 fjár.
Sigurður segir að beitt sé nýrri
aðferð við greiningu þannig að
smit komi nú fyrr fram en áður.
Hann segir riðuna í Austurhlíð af
tegund sem hér hefur greinst
áður, en í haust kom upp ný teg-
und af riðu í Gýgjarhólskoti í
Biskupstungum sem ekki hefur
greinst hér áður. „Þar fannst af-
brigði sem fundist hefur áður í
Noregi og virðist ekki jafnsmit-
andi og eldri gerðin sem hér er
þekkt,“ segir hann.
Sigurður segir vísbendingar
um samspil snefilefna í umhverfi
og hversu auðveldlega kindur
smitast af riðu. „Menn vita ekki
nógu vel hvað breytir eðlilegu
próteini skepnunnar þannig að úr
verður smitefni. Komið hefur í
ljós að meira mangan er í fé og
umhverfi bæja þar sem riða hefur
ekki fundist,“ segir hann, en bæt-
ir við að rannsaka þurfi betur
tengslin við riðusmitið, því um
gæti verið að ræða samspil mang-
ans við önnur efni. - óká
Bílar keyptir á uppboði á ebay
Fjöldi einstaklinga velur nú að kaupa sér bíla á netinu í stað þess að kaupa þá af bílasölum eða umboðum
hérlendis. Fólk leitar helst til Bandaríkjanna þar sem dollarinn er mjög hagstæður fyrir innkaup þar.
BÍLAR Sprenging hefur orðið í inn-
flutningi einstaklinga á bílum frá
Bandaríkjunum. Bíleigendur eru
nú í auknum mæli farnir að not-
færa sér netið til að kaupa sér bíl
og panta sér jafnvel bíl á upp-
boðsvefnum ebay.com. Dæmi eru
um að menn hafi borgað hundruð-
um þúsunda króna minna fyrir
bílana með því að kaupa þá sjálfir
í Bandaríkjunum en þeir hefðu
borgað fyrir þá hérlendis.
Jónas Þór Steinarsson, fram-
kvæmdastjóri Bílgreinasam-
bandsins, segir að þessi áhugi ein-
staklinga á bílakaupum í Banda-
ríkjunum haldist í hendur við lágt
gengi dollarans. Hann segir að
vissulega fylgi því áhætta að
kaupa bíl á netinu. Dæmi séu um
að menn hafi óafvitandi keypt bíla
sem hafi lent í tjóni og séu skráð-
ir tjónabílar. Það geti reynst
mönnum dýrkeypt því erfitt geti
verið að losna við slíka bíla.
Fréttablaðið ræddi við mann
sem keypti sér nýlega bíl á ebay
og sagðist hæstánægður. Maður-
inn, sem vildi ekki láta nafns síns
getið, segist sjálfur hafa farið út
og skoðað bílinn áður en hann hafi
gengið endanlega frá kaupunum.
Hjá embætti Tollstjórans í
Reykjavík fengust þær upplýs-
ingar að innflutningur einstak-
linga á bifreiðum frá Bandaríkj-
unum hefði aukist talsvert undan-
farna mánuði. Þegar verið er að
flytja inn bíl að utan borga ein-
staklingar þrenns konar opinber
gjöld: vörugjald, virðisaukaskatt
og um þrjú þúsund króna úr-
vinnslugjald.
Upphæð vörugjalds fer eftir
vélarstærð. Ef bíllinn er með
minna en tveggja lítra vél þá er
greitt 30 prósenta vörugjald en ef
bíllinn er með meira en tveggja
lítra vél þá er vörugjaldið 45 pró-
sent. Vörugjaldið er greitt af upp-
hæð sem samanstendur af kaup-
verði bílsins í Bandaríkjunum,
flutningskostnaði og úrvinnslu-
gjaldinu. Virðisaukaskatturinn,
sem er 24,5 prósent, leggst síðan
ofan á heildarupphæðina, það er
eftir að vörugjaldið hefur bæst
við kaupverð, flutningskostnað og
úrvinnslugjaldið.
trausti@frettabladid.is
Landspítali:
Nýtt og öfl-
ugt ómtæki
HEILBRIGÐISMÁL Nýtt og mjög öfl-
ugt segulómtæki var tekið í notk-
un á röntgendeild Landspítala -
háskólasjúkrahúss í Fossvogi í
gær.
Jón Kristjánsson, heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra, tók
nýja tækið formlega í notkun.
Með tilkomu þess stígur LSH
stórt skref sem hátæknispítali og
háskólasjúkrahús. Í útboði er gert
ráð fyrir kaupum á öðru sambæri-
legu tæki sem verður á Landspít-
ala við Hringbraut. Það verður
notað við rannsóknir á börnum,
krabbameinssjúkum og ýmsum
fleiri sjúklingahópum. - jss
TÍÐ DAUÐSFÖLL FANGA Að meðal-
tali annan hvern dag fremur fangi
sjálfsmorð, er myrtur eða deyr
við vafasamar kringumstæður í
breskum fangelsum, samkvæmt
nýrri úttekt. Yngstur til að fremja
sjálfsmorð var sextán ára piltur.
SIGURÐUR SIGURÐARSSON
Sérfræðingur yfirdýralæknisembættisins varar bændur við allri verslun með og skiptum á
sauðfé milli bæja vegna hættunnar á sauðfjárriðusmiti. „Enn verður að undirstrika varnað-
arorð við því að hýsa eða fóðra fé frá öðrum og láta vita undir eins ef eitthvað grunsam-
legt kemur upp,“ segir Sigurður.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/M
YN
D
/G
VA
Sauðfjárriða í Biskupstungum:
Fé fargað í Austurhlíð
GRAND CHEROKEE TIL SÖLU Á EBAY
Þessi jeppi er aðeins einn af þúsundum
bíla sem eru til sölu á vef ebay.
GRAND CHEROKEE LIMITED
ÁRGERÐ 2003
Ebay Ísland
Kaupverð 1.350.000 3.816.000
Flutningur 180.000
Úrvinnslugjald 3.000
Vörugjald (45%) 690.000
Virðisaukaskattur
(24,5%) 545.000
Endanlegt verð 2.768.000 3.816.000
Bíllinn sem um ræðir er 8 cyl., sjálfskipt-
ur með leðursætum og miklum staðal-
búnaði. Verð hér er viðmiðunarverð hjá
Bílgreinasambandinu.
PALLBÍLAR VINSÆLIR
Bandarískir pallbílar eru algengari en
verið hefur. Samkvæmt upplýsingum
tollstjóra er helsta skýringin sú hversu
lágt vörugjaldið er af þessum bílum.
Pallbílarnir eru flokkaðir sem atvinnu-
bifreiðar og bera því lægri vörugjöld
en einkabifreiðar, eða aðeins 13 pró-
sent. Líklegt er að þessu verði breytt
því eins og greint var frá í Fréttablað-
inu fyrir mánuði er fjármálaráðuneyt-
ið að skoða til hvaða ráðstafana megi
grípa til að tryggja að ökutæki sem
bera þrettán prósenta vörugjald verði
einungis notuð í atvinnuskyni.
■ EVRÓPA