Fréttablaðið - 15.12.2004, Blaðsíða 25
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 6
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 150 stk.
Keypt & selt 43 stk.
Þjónusta 43 stk.
Heilsa 11 stk.
Heimilið 16 stk.
Tómstundir & ferðir 5 stk.
Húsnæði 23 stk.
Atvinna 14 stk.
Tilkynningar 5 stk.
Góðan dag!
Í dag er miðvikudagurinn 15. des.,
350. dagur ársins 2004.
Reykjavík 11.16 13.23 15.30
Akureyri 11.31 13.08 14.44
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Helgi Pétursson heldur í þá hefð að
lesa jólakortin á Þorláksmessukvöld
eftir að tréð hefur verið skreytt.
„Við höfum gjarnan lagt mikið upp úr
Þorláksmessukvöldi og það verið hátíðis-
dagur hjá okkur,“ segir Helgi Pétursson
tónlistarmaður með meiru, og má segja að
það liggi vel á honum þessa dagana og
jólastemningin sé farin að segja til sín.
„Fyrir utan að reyna að komast eina ferð
niður Laugaveginn, eftir veðri, þá höfum
við í raun og veru gengið þannig frá að
jólin séu komin á Þorláksmessukvöld,“
segir Helgi og hugsar með hlýjum hug til
þeirra stunda sem hann á með fjölskyld-
unni þegar þau sitja saman og lesa kortin.
„Okkur hefur fundist eðilegt að gera það
rétt áður en jólin fara í hönd og höfum gert
úr þessu skemmtilega kvöldstund, eftir að
búið er að skreyta jólatréð og pakka inn
gjöfum. Þá er gjarnan einn úr fjölskyldunni
fenginn til að lesa þau, þetta hefur alltaf
þótt skemmtilegur siður og þó það hafi ver-
ið að fækka í heimili þá hafa menn haft orð
á því að koma á Þorláksmessukvöldi til að
taka þátt í þessu,“ segir Helgi en bætir við
að sérstakar veitingar séu ekki á boðstólum
þetta kvöld, nema þá auðvitað skatan.
„Frúin er af vestfirskum ættum þannig
að það er skata á Þorláksmessu hjá okkur
við misjafnar undirtektir, en ég hef lært að
borða þetta með henni og tekið mig föstum
tökum í þeim lærdómi. Mér leist illa á í upp-
hafi en finnst ljómandi núna,“ segir Helgi
hlæjandi en bætir við að börnin séu ekki
jafnhrifin af skötunni.
„Það eina sem varpar skugga á hátíðar-
höldin hvað börnin varðar er vestfirsk elda-
mennska frúarinnar,“ segir Helgi en er
á sama tíma sannfærður um að börnin
gætu ekki hugsað sér Þorláksmessu án
skötunnar. kristineva@frettabladid.is
Skata og jólakort
á Þorláksmessu Jólatré bernsku minnar ersýning í handverksmiðstöð-inni Punktinum við Kaup-
vangsstræti á Akureyri. Sum
jólatrén eru nýskreytt en önn-
ur líta út eins og þau komu af
háaloftinu. Að sögn Höddu í
Punktinum hefur sýningin
vakið upp margar tilfinningar
og mikið þakklæti og jafnvel
orðið til þess að fólk er farið
að skreyta híbýli
sín aftur með
þessum gömlu
trjám. Sýningin
stendur fram til
21. desember
og er opin alla
virka daga kl.
13-17 og mánu-
dags- og mið-
vikudagskvöld kl. 19-22. Hægt
er að skoða trén á síðunni
punkturinn.akureyri.is/is-
lensk_jolatre.htm
10 Hertz er
nafnið á há-
degis- og
miðnætur-
tónleikum
sem Margrét
Sigurðardótt-
ir sópransöngkona og Gunn-
hildur Einarsdóttir hörpuleik-
ari flytja í Vídalínskirkju og
Víðistaðakirkju á næstu dög-
um. Á dagskránni er aðventu-
og jólatónlist frá ýmsum lönd-
um. Hádegistónleikarnir eru í
Víðistaðakirkju 16. desember
og í Vídalínskirkju 18. desem-
ber og hefjast þeir klukkan
12. Miðnæturtónleikarnir hefj-
ast klukkan 23.30 og eru í
Vídalínskirkju 17. desember
og í Víðistaðakirkju 21.des-
ember. Aðgangseyrir er 900
kr. en börn, eldri borgarar og
öryrkjar fá ókeypis inn.
jol@frettabladid.is
Helgi Pétursson heldur í þann sið að lesa jólakortin með fjölskyldunni á Þorláksmessukvöld.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
LIGGUR Í LOFTINU
fyrir jólin
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS JÓLIN KOMA FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Hvort sef ég af
því að ég er
þreytt á því að
vera vakandi eða
vaki af því að ég
er þreytt á að
vera sofandi?
Lítil og sæt jólatré
BLS. 5
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L