Tíminn - 20.12.1974, Qupperneq 5
Föstudagur 20. desember 1974.
TÍMINN
5
FRÆÐSLUFERÐIR
SKÓLABARNA
TIL REYKJAVÍKUR
Undanfarin ár hefur mennta-
málaráðuneytið gengizt fyrir list-
kynningu I skólumeftir þvi sem fé
hefur verið veitt til, en einkum
hefur það náð til skóla sunnan-
lands og annarra en á barna-
fræðslustigi. Nú hefur ráðuneytið
með góðri aðstoð Flugfélags ts-
lands boðið þremur hópum 12 ára
barna til Reykjavikur f fræðslu-
ferð. Fyrsti hópurinn (33) var frá
Norðfirði. Komu þau 16. og héldu
heim 19. nóvember. í fyigd með
þeim var skólastjórinn, Gisli Sig-
hvatsson. Næsti hópur (34) var úr
Norður-Þingeyjarsýslu. I fylgd
með þeim var Angantýr Einars-
son, skólastjóri á Raufarhöfn. Sá
hópur kom 19. og hélt heim 21.
nóvember. Þriðji hópúrinn (30)
var frá Patreksfirði og Tálkna-
firði og kom 20. og fór heim 22.
nóvember. 1 fylgd með þeim var
Daði Ingimundarson, skólastjóri
á Patreksfirði.
— Gestirnir komu með flugvél
frá Flugfélagi tslands og gistu á
Hótel Esju meðan þeir dvöldust i
Reykjavik. Þeim var sýnt Sæ-
dýrasafnið, Náttúrugripasafnið,
Þjóðminjasafn, Listasafn Islands
og Ásgrimssafn, Sögusýningin á
Kjarvalsstöðum (Island — Is-
lendingar), farið i heimsókn i
sjónvarpið, drukkið súkkulaði i
boði menntamálaráðherra, Vil-
hjálms Hjálmarssonar, i Ráð-
herrabústaðnum, Tjarnargötu 32,
Alþingi heimsótt og ræddu forseti
Sameinaðs Alþingis, Asgeir
Bjarnason, og skrifstofustjóri Ai-
þingis, Friðjón Sigurðsson við
gestina, sýndu þeim húsið og
veittu margvislegan fróðleik um
Alþingi að fornu og nýju. Börnin
frá Norðfirði sáu „Kardimommu-
bæinn” i Þjóðleikhúsinu, en
barnasýningar voru ekki þá daga,
sem hinir gestirnir dvöldust i
Reykjavik. Þá var skemmtisam-
koma i Æfinga- og tilraunaskóla
Kennaraháskólans, þar sem að-
komubörnin hittu jafnaldra sina
úr þeim skóla. Þetta voru mjög
ánægjulegar heimsóknir, sem
vonandi reynist unnt að halda
áfram i einhverjum mæli, en hér
var um tilraun að ræða.
SÖGUSÝNINGIN
SÝND ERLENDIS
1 tilkynningu frá menntamála-
ráðuneytinu kemur i ljós, að
rikisstjórn og þjóðhátiðarnefnd,
hafa fallizt á, að sá efniviður
Sögusýningarinnar á Kjarvals-
stöðum (tsland — Islendingar)
sem ekki var fenginn að láni,
skuli vera til reiðu handa utan-
rikisráðuneyti og menntamála-
ráðuneyti til þess að setja saman
sýningu, er komið verði á fram-
færi erlendis með aðstoð sendi-
ráða Islands.
Einnig að þessi efniviður Sögu-
sýningarinnar verðinotaður til að
setja saman sýningu, eina eða
fleiri, og komið yrði á framfæri
innanlands i félagsheimilum eða
skólum.
Unnið er að undirbúningi slikra
sýninga, undir handleiðslu Einars
Hákonarsonar, listmálara, sem
stjórnaöi gerð Sögusýningarinn-
ar.
Auglýsing um kosningu
til fulltrúaþings F. í. B.
9. grein laga félagsins:
„Félagsmenn búsettir I hverju hinna 6 umdæma, sem
talin eru I 3. grein, skulu kjósa fulltrúa til fulltrúaþings,
F.l.B. sem hér segir:
Umdæmi nr. I.
Umdæmi nr. II.
Umdæmi nr. III.
Umdæmi nr. IV.
Umdæmi nr. V.
Umdæminnr. nr. VI.
Vesturland
Norðurland
Austurland
Suöurland
Reykjanes
Reykjavlk
ognágr.
4 aðalfulltrúa og
4 varafulltrúa.
4 aðalfulltrúa og
4 varafulltrúa.
4. aðalfulltrúa og
4 varafulltrúa.
4 aðalfulltrúa og
4 varafulltrúa.
6 aðalfulltrúa og
4 varafulltrúa,
20 aðalfulltrúa og
10 varafulltrúa.
Alls 42 fulltrúar og 30 varafulltrúar.
Kjörtlmabil fulltrúa er 2 ár og miðast við fulltrúaþing.
Skal helmingur fulltrúa kjörinn árlega.
Uppástungur um fulltrúa eða varafulltrúa, sem félags-
menn vilja bera fram, skulu hafa borizt félagsstjórninni I
ábyrgöarbréfi fyrir 15. janúar það ár, sem kjósa skal.
Kjörnir fulltrúar skulu alltaf vera I kjöri.
Komi ekki fram uppástungur um fleiri en kjósa skal
verður ekki af kosningu.
Með uppástungum um þingfulltrúa, sem kjósa skal I
hverju umdæmi, skulu fylgja meðmæli eigi færri en 15
fullgildra félagsmanná úr þvl umdæmi, en I VI. umdæmi
skulu meðmælendur eigi vera færri en 30 fullgildir félags-
menn þar.
1 framangreindri tölu meðmælenda má telja þá, sem
stungið hefur verið uppá sem þingfulltrúum.
Berizt eigi uppástungur úr einhverju eða einhverjum
umdæmum skoðast fyrri fulltrúar þar endurkjörnir, nema
þeir hafi beðizt skriflega undan endurkjöri”.
Samkvæmt þessu skulu uppástungur um HELMING
þeirrar fulltrúatölu, sem i 9. grein getur, hafa borizt aðal-
skrifstofu F.I.B., Armúla 27, Reykjavlk, I ábyrgðarbréfi
fyrir 15. janúar 1975.
Reykjavík 19. desember 1974.
F.h. stjórnar Félags Islenzkra bifreiðaeiganda.
Einar Flygenring, framkvæmdastjóri.
Skoðid
r
LEIKFÖNGIN OG
GJAFAVÖRURNAR
sem Jólamarkaðurinn
hefur upp ó að bjóða
Athugið að
margar vörur eru enn
ó gamla, góða verðinu
Opið til kl. 10 í öllum deildum
Vandaðor og fallegar hillueiningar
sem hægt er að raða upp
EFTIR ÞÖRFUM HVERS OG EINS -
Ert þú líka í vandræðum með
hljómflutningstækin ?
Þó er þetta rétta lausnin -
Komið og kynnið ykkur verð og greiðsluskilmóla
Verzlið
þar sem
úrvalið er
mest og
kjörin bezt
húsið
Tökum að okkur gerð
FRYSTI- OG KÆLIKLEFA
í sambýlishúsum og verzlunum •
Gerum fullnaðartilboð í efni
(einangrun, allar vélar, hurðir o. fl.)
og vinnu
Ármúla 38 - Sími 8-54-66