Tíminn - 20.12.1974, Side 11
Föstudagur 20. desember 1974.
TÍMINN
11
Kynna
íslenzkar
matvörur
— d matvælasýningu í París
Sjötta SIAL sýningin var haldin
i Paris fyrir skömmu. Sýning
þessi er ein stærsta matvælasýn-
ing I heiminum haldin annað
hvert ár i Paris. Á sama staö og
tima eru fleiri sýningar, t.d.
umbúöasýning, mjólkurafurOa-
sýning o.fl.
Auk þess eru ýmsar ráðstefnur
og fyrirlestrar i tengslum við
sýninguna, sem er mjög fjölsótt,
bæði af frönskum og erlendum
gestum.
Sölustofnun lagmetis tók nú i
fyrsta sinn þátt i SIAL.Lögð var
megináherzía á að kynna islenzk-
an kaviar og þorsklifur. Einnig
var kynnt loðna og lifrarpasta,
sem eru nýjar vörur á markaðin-
um. Var S.L. eina fyrirtækið sem
haföi loðnu á boðstólum og vakti
hún mikla athygli.
1 tengslum við sýninguna hélt
islenzka sendiráðið i Paris boð
fyrir blaðamenn og helztu kaup-
endur, þar sem framreitt var is-
lenzkt lagmeti. S.L. væntir góðs
árangurs af þátttökunni þrátt
fyrir erfiðar viðskiptaaðstæður i
Frakklandi vegna tollmála.
Dagsbrún aðili að
samninganefnd ASÍ
A fundi Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar 15. des. s.l. var sam-
þykkt að félagið gerðist aðili að
samninganefnd þeirri, sem kjör-
in var á fundi sambandsstjórnar
ASÍ hinn 1. desember, en nefnd-
inni er ætlað að hafa forystu um
samningamál verkalýðsfélag-
anna.
A Dagsbrúnarfundinum var
ennfremur mótmælt þeim ráð-
stöfunum stjórnvalda að afnema
með lagaboði þau ákvæði i frjáls-
um samningum verkalýðsfélag-
anna, er kveða á um verðlagsbæt-
ur á kaup.
„Jafnframt leggur fundurinn
áherzlu á, að hafa verði vakandi
auga með þróun atvinnumála”
segir einnig i ályktun þeirri, sem
samþykkt var á fundinum og sú
krafa sérstaklega undirstrikuð,
að haldið verði uppi fullri og stöð-
ugri atvinnu fyrir alla”.
Nýjar bækur frd
bókaútgdfunni Hildi
Fjórar bækur koma út hjá
bókaútg. Hildi. Þrjár þeirra eru
skáldsögur eftir höfunda, sem
fyrir löngu eru kunnir meðal is-
lenzkra lesenda.
LÆKNIRINN A SVANEY er eftir
danska rithöfundinn Ib H. Cav-
ling. Þetta er ástarsaga og þarf
ekki að kynna höfundinn fyrir is-
lenzkum lesendum, þvi að þetta
er 17. bókin, sem út kemur eftir
hann á islenzku, enda er Cavling
einn af vinsælustu skemmti-
sagnahöfundum á Norðurlöndum.
A kápu bókarinnar segir, að hún
fjalli um unga stúlku, sem er
læknir að mennt. Hún ræður sig
sem lækni á Svaney eftir að hafa
orðið fyrir vonbrigðum i ástamál-
um. Fólkið á þessari litlu eyju er
einkennilegt á marga lund. Það
eru einkum tveir eyjaskeggja,
sem verða örlagavaldar i lifi
ungu stúlkunnar: ungt tónskáld,
laglegur maður og mikið kvenna-
gull og maður, sem flutzt hefur
frá Afriku, þar sem hann hafði
misst konu sina og barn i upp-
reisn blökkumanna, einrænn
maður sem hefur litið samneyti
við aðra eyjaskeggja. Fleiri
koma við sögu og lýsir Cavling
þessu litla samfélagi af glögg-
skyggni hins reynda sögumanns.
LEYNDA KONAN er eftir ensku
skáldkonuna Victoriu Holt. Þetta
er 10. skáldsagan, sem út kemur á
islenzku eftir Victoriu Holt. Það
er einkenni á sögum hennar, aö
fortiðin, sem i dulúð sinni er
smám saman leidd fram á sögu-
svíðið, orkar sterkt á örlög sögu-
persónanna. Hinn sérstæði hæfi-
leiki höfundarins til að flétta
saman nútið og fortið samfara ó-
venju frjóu imyndunarafli, gefur
sögum hennar þann dulúöuga
blæ, sem gert hefur hana að ein-
um allra vinsælasta skemmti-
sagnahöfundi i Englandi um ára-
bil.
UNG STÚLKA A RÉTTRI LEIÐ
er saga fyrir ungar stúlkur eftir
norsku skáldkonuna Margit
Ravn. Sögur Margit Ravn voru
svo vinsælar hér á landi fyrir
30—40 árum, að þar kom enginn
samjöfnuður til greina. Þessi
saga er sú 11. sem Bókaútgáfan
Hildur gefur út i annarri útgáfu af
sögum hennar, og sýnir það
glöggt, að lifsmagn þeirra hefur
ekki dofnað, enda er hressilegur
frásagnarmáti og heilbrigt lifs-
viðhorf hinnar norsku skáldkonu,
samfara næmleika hennar á til-
finningalif ungra stúlkna, þess
eölis að ekki fyrnist, þótt timarnir
breytist.
DRAUMABÓK, draumráðningar
og leiðarvisir til að spá i spil og
bolla, er nú komin út i annarri út-
gáfu hjá Hildi, en fyrri útgáfan
seldist upp á skömmum tima.
Bibi Gunnarsdóttir tók bókina
saman. Það þarf naumast að lýsa
þessari bók fyrir þeim, sem hafa
áhuga á draumum og drauma-
ráðningum, eða gaman hafa af
þvi að spá i spil eða bolla. Þeir
munu geta sótt margvislegan
fróðleik i þessa bók.
Desemberhefti
Samúels komið út
Timaritið Samúel, desember-
blað, er komið út. Er nú liðið eitt
ár frá þvi að það hóf göngu sina i
breyttri mynd, en áður hét blaðið
Samúel og Jónina og fjallaði
meira um popp. Nú er hinsvegar
ekkert popp að finna i blaðinu.
Af efni blaðsins má m.a. nefna
samtal við grinistann Birgi
Bragason, myndskreytta grein
um félag vélhjólaeigenda, grein
um Robert Redford og Paul New-
man, nokkur viðtöl og greinar um
bila.
Upplag Samúels hefur vaxið
stöðugt og er nú komið i 15 þúsund
eintök. Hefur blaðið komið út
annan hvern mánuð til þessa, en á
næsta ári er fyrirhugað að koma
þvi út mánaðarlega.
HLJÓAATÆKJADEILD
Laugavegi 66 * Sími 1-43-88