Fréttablaðið - 15.12.2004, Page 44
Athyglin beinist að Íslendingum
Den Danske Bank hyggst kaupa National Bank of
Ireland. Breskir fjölmiðlar höfðu komist á snoðir
um að norrænn banki hygði á kaup. Það er til
marks um umræðuna í Bretlandi að breskum
blaðamönnum dettur Ísland fyrst í hug þegar rætt
er um Norðurlönd og viðskipti.
Í Danmörku kveður hins vegar við annan tón. Berl-
ingske Tidende heldur áfram að ýta undir þá skoð-
un að íslenskt efnahagslíf standi ekki á neinum
grunni og engar eignir séu á bak við kaup Íslend-
inga í Danmörku. Þannig tókst blaðamönnum Berl-
ingske að rugla saman söluhagnaði KB banka og
söluvirði hlutar í Baugi. Með því tókst þeim að
lækka markaðsvirði Baugs um hátt í 90 prósent.
Einhverjir hafa að undanförnu reynt að leiðrétta
rangfærslur dönsku blaðamannanna, en haft lítinn
árangur. Þannig voru ummæli Atla B. Guðmunds-
sonar hjá Greiningu Íslandsbanka af Bloomberg frá
3. nóvember um að sjá mætti einkenni hlutabréfa-
bólu þýdd á dönsku þannig að sjá mætti „öll“ ein-
kenni bólu. Þegar reynt var að leiðrétta þetta
reyndi danski blaðamaðurinn að sannfæra við-
mælanda sinn um að ekki hefði verið hægt að
þýða ummælin öðruvísi á dönsku. Það er kannski
ekki nema von að umræðan verði ruglingsleg á
tungumáli sem ekki gerir greinarmun á hugtökun-
um allir, sumir og engir.
Spenntir hagsmunaaðilar
Eigendur hlutabréfa í Geest eru spenntir þessa
dagana af væntingum um hagnað vegna yfir-
tökutilboðs Bakkavarar. Fleiri hafa hagsmuna að
gæta, að sögn Financial Times. Þannig
er nokkur spenna í dýragarðinum í
Edinborg þar sem ísbirnir hafa notið
þess sem fellur af borð-
inu við gerð fiskrétta
hjá Geest. Einnig
munu maðkar í
Hampshire áhyggjufullir
af framvindu mála, en þeir
hafa notið afskurðar af sal-
atframleiðslu fyrirtækisins.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 3.335
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 197
Velta: 4.937 milljónir
+0,02%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Hlutabréfasjóðurinn ICEQ var
skráður í Kauphöllinni í gær.
Sjóðurinn er settur saman úr
eignum í sömu félögum og
mynda Úrvalsvísitöluna.
Yfirtöku Kögunar á Opnum
kerfum er lokið. Alls samþykktu
eigendur 97,16 prósent hlutafjár í
Opnum kerfum tilboðið. Opin
kerfi verða afskráð úr Kauphöll-
inni.
Alþjóðleg samtök banka ætla
að styðja Samtök banka og
verðbréfafyrirtækja sem vilja að
EFTAdómstóllinn skeri úr um
lögmæti starfsemi Íbúðalána-
sjóðs.
Burðarás hefur enn aukið
hlut sinn í sænska bankanum
Carnagie og á nú um fimmtung
hlutafjár.
28 15. desember 2004 MIÐVIKUDAGUR
Kauphöll Íslands stóð fyrir
kynningu á íslenskum fyrir-
tækjum í London. Vaxandi
áhugi er á Actavis enda bú-
ist við skráningu félagsins í
Kauphöllinni í London
fyrrihluta næsta árs.
Mikill áhugi var hjá breskum
fjárfestum á nokkrum af leiðandi
fyrirtækjum í Kauphöll Íslands.
Kauphöllin stóð fyrir kynningu á
íslenskum fyrirtækjum í London.
Augu fjárfesta beindust að Acta-
vis, enda fyrirhugað að félagið
verði skráð í kauphöllina í London
á næsta ári. Slíkt hefur þó ekki
verið tilkynnt í Bretlandi, en lík-
legt að breskir fjárfestar hafi
nasaþef af fyrirætlunum félags-
ins. Breskir fjárfestar voru
einnig áhugasamir um að kynna
sér önnur fyrirtæki sem kynntu
starfsemi sína. Auk Actavis
kynntu Burðarás, Flugleiðir, KB
banki, Íslandsbanki, Landsbank-
inn og Marel starfsemi sína.
Bakkavör hætti við vegna yfir-
tökuviðræðna á Geest. Auk fjár-
festa mættu viðskiptablaðamenn
helstu fjölmiðla á kynninguna og
fengu innsýn í starfsemi íslensku
fyrirtækjanna.
Halldór Kristmannsson, for-
stöðumaður innri og ytri sam-
skipta hjá Actavis, segir að
bresku fjárfestarnir hafi sýnt fé-
laginu mikinn áhuga. „Það mættu
margir í fundarherbergi Actavis
og það var gerður mjög góður
rómur að kynningunni,“ segir
Halldór. Hann segir að ekki liggi
fyrir neinar dagsetningar um
fyrirhugaða skráningu Actavis í
erlendri kauphöll. „Formleg
kynning á fyrirtækinu mun hefj-
ast þegar liggur fyrir hvenær
stefnt er að skráningu félagsins.“
Róbert Wessman, forstjóri
Actavis, segir þessa kynningu
mjög gott framtak hjá Kauphöll
Íslands og búast megi við því að
fyrirtækið verði með fleiri kynn-
ingar á starfseminni á næstunni.
„Saga Actavis breiðist hratt út og
við finnum aukinn áhuga með
hverjum deginum sem líður,“ seg-
ir Róbert. Hann segir ánægjulegt
að taka þátt í slíkri kynningu með
íslenskum útrásarfyrirtækjum.
Actavis frestaði skráningu
sinni á erlendan markað fram yfir
næstu áramót. Þótt ekki liggi
fyrir endanleg ákvörðun um
hvenær félagið verði skráð á
markað er búist við því að það
verði á fyrrihluta ársins. Við
skráningu er lögð fram ítarleg
skráningarlýsing sem lýtur að öll-
um helstu þáttum í rekstri félags-
ins. Líklegt er að þá muni liggja
fyrir uppgjör fyrstu mánaða
næsta árs. Seinnihluti vetrar eða
snemma næsta vor er því líkleg-
asti tíminn fyrir skráningu
félagsins í kauphöllinni í London.
Formleg kynning hefst líklega
um það bil tveimur mánuðum
áður en skráning er fyrirhuguð,
en búast má við að umfjöllun í
Bretlandi fari stigvaxandi á næst-
unni. „Við finnum fyrir miklum
áhuga á Actavis og íslenskum
fyrirtækjum,“ segir Halldór.
Hann segir að fyrirtækið finni
fyrir því að umfjöllun um við-
skipti Íslendinga í London skili
sér í vaxandi áhuga á Actavis.
haflidi@frettabladid.is
Lífeyrissjóðir eiga nú 962
milljarða og hefur verðmæti
eigna þeirra hækkað um 138
milljarða frá áramótum.
Mikil hækkun á hlutabréfa-
markaði vegur þar þyngst.
Lífeyrissjóðirnir íslensku hafa
ekki farið varhluta af uppgangi á
innlendum hlutabréfamarkaði.
Eignir þeirra hafa hækkað um 138
milljarða króna í ár einkum vegna
mikilla hækkana á verði hluta-
bréfa í íslenskum fyrirtækjum.
Heildareignir íslenskra lífeyr-
issjóða voru 962 milljarðar króna.
Það er ívið meira en sem nemur
árlegri landsframleiðslu Íslands.
Í Morgunkorni greiningar-
deildar Íslandsbanka segir að
íslensku lífeyrissjóðirnir hafi í ár
fært eignir sínar í auknum mæli í
erlend verðbréf en að þær fjár-
festingar hafi skilað lélegri ávöxt-
un. Kemur þar til að verðbréfa-
markaðir í nágrannalöndunum
hafa ekki skilað mikilli ávöxtun
auk þess sem styrking á gengi
krónunnar dregur úr verðmæti
eigna í öðrum gjaldmiðlum.
Þar kemur einnig fram að
nokkuð virðist hafa verið um að
sjóðsfélagar hafi greitt upp lán
sín. Líklegasta skýring þessa er
fjölgun valkosta við fjármögnun
íbúðarhúsnæðis.
Stærstur hluti eigna lífeyris-
sjóðanna er bundinn í skuldabréf
en það hlutfall hefur þó lækkað úr
56,5 prósentum í byrjun árs í 53,2
prósent í lok október. - þk
vidskipti@frettabladid.is
Peningaskápurinn…
Actavis 38,00 -0,52% ... Bakkavör
24,30 +0,41% ... Burðarás 12,00 - ... Atorka 5,75 - ... HB Grandi 7,40
+1,37% ... Íslandsbanki 11,10 +0,45% ... KB banki 442,50 +0,57% ...
Landsbankinn 11,90 -0,83% ... Marel 48,00 -0,83% ... Medcare 5,91 -
1,34% ... Og fjarskipti 3,09 -0,32% ... Opin kerfi 27,60 - ... Samherji
10,50 -3,67% ... Straumur 9,80 - ... Össur 75,50 -0,66%
Búist við skráningu
Actavis með vorinu
Grandi 1,37%
Hlutabréfasj. Búnaðarb. 0,99%
SÍF 0,83%
Samherji -3,67%
Kögun -2,13%
Medcare -1,34%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
nánar á visir.is
og hvað segir þú?
Hluthafafundur Og Vodafone
Og Vodafone (Og fjarskipti hf.) boðar til hluthafafundar sem
haldinn verður í Ársal Radisson SAS Hótel Sögu við
Hagatorg, í dag, miðvikudag kl. 16.00.
Á dagskrá fundarins verða eftirtalin mál:
1. Fundarsetning.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Tillaga þess efnis að stjórn félagsins hafi heimild til
útgáfu nýrra hluta að nafnverði 809.614.941 kr. vegna
kaupa á öllu hlutafé Íslenska útvarpsfélagsins ehf.
og Fréttar ehf.
4. Kosning varamanns í stjórn félagsins.
5. Önnur mál.
Dagskrá og fundargögn eru hluthöfum til sýnis á skrifstofu
félagsins, Síðumúla 28, Reykjavík, fram að fundi.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar eru afhentir á fundarstað.
Stjórn Og fjarskipta hf.
ÍSLEN
SK
A
A
U
G
LÝ
SIN
G
A
ST
O
FA
N
/SIA
.IS O
G
V
2
6
7
6
3
1
2
/2
0
0
4
Elfar á förum frá Eskju
Elfar Aðalsteinsson, starf-
andi stjórnarformaður
Eskju, hefur selt allt hlutafé
sitt í félaginu og hyggst ein-
beita sér að eigin útgerð.
Kristinn Aðalsteinsson og
Þorsteinn Kristjánsson, stjórn-
armenn og eigendur Eskju á
Eskifirði, hafa gert samning um
kaup á öllu hlutafé Elfars Aðal-
steinssonar, starfandi stjórnar-
formanns og meðeiganda
þeirra. Í kjölfarið lætur Elfar af
stjórnarformennsku. Í tilkynn-
ingu félagsins kemur fram að
hluthafafundur verði haldinn á
næstunni og ný stjórn skipuð.
Elfar er sagður ætla að snúa
sér að nýjum verkefnum, m.a.
að eigin útgerð. „Ég hef stýrt
Eskju síðastliðin fjögur ár og
haft af því mikla ánægju enda
hafa síðustu misseri verið tími
uppbyggingar og reksturinn
gengið vel. Ég vil þakka öllu
starfsfólki fyrirtækisins fyrir
þeirra framlag og þolinmæði í
umbreytingum síðustu ára um
leið og ég óska því og eigendum
velfarnaðar í framtíðinni,“ er
haft eftir honum.
Eskja á Eskifirði gerir út
þrjú fiskiskip og rekur bæði bol-
fiskvinnslu og mjöl- og lýsis-
vinnslu í landi. Að sögn eigenda
Eskju telja þeir að fjölmörg
tækifæri felist í rekstrinum og
að framtíðarstaða félagsins sé
sterk. - óká
ELFAR AÐALSTEINSSON
Breytingar standa fyrir dyrum í eigenda-
hópi sjávarútvegsfyrirtækisins Eskju á Eski-
firði. Starfandi stjórnarformaður og með-
eigandi fyrirtækisins hefur samið um sölu
á hlut sínum og er á förum frá fyrirtækinu.
Eignir lífeyrissjóða stóraukast
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/RÓ
B
ERT
LÍFEYRISSJÓÐIR EFLAST Gott árferði í Kauphöll Íslands hefur styrkt lífeyrissjóðina. Nú
nema heildareignir þeirra 962 milljörðum króna.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM
VAXANDI ÁHUGI Róbert Wessmann forstjóri og Halldór Kristmannsson, forstöðumaður
innri og ytri samskipta hjá Actavis, finna fyrir vaxandi áhuga á fyrirtækinu meðal breskra
fjárfesta og fjölmiðla.