Fréttablaðið - 31.12.2004, Qupperneq 2
2 31 desember 2004 FÖSTUDAGUR
Formaður Rafiðnaðarsambandsins:
Kínverjarnir verða 300 innan tíðar
VERKALÝÐSMÁL Forysta verkalýðs-
hreyfingarinnar telur að Impregilo
stefni að því að ráða 300 Kínverja
hingað til lands á næstu vikum, ekki
bara 150 eins og sótt hefur verið um
leyfi fyrir. Forysta verkalýðshreyf-
ingarinnar ræðir málið og hyggur á
viðbrögð eftir helgi.
Guðmundur Gunnarsson, for-
maður Rafiðnaðarsambandsins,
segir að 150 Kínverjar „séu bara
byrjunin. Það liggur í loftinu að Kín-
verjarnir verða 300 eftir rúman
mánuð eða svo. Þetta er bara fyrsta
skrefið,“ segir hann og telur um
árás á íslenskan vinnumarkað að
ræða.
Guðmundur segir að Impregilo
hafi lagt til atlögu við launakerfið í
samstarfi við stjórnvöld. Það eigi að
keyra niður laun og velferð í stærra
máli en áður hafi þekkst. Hann vitn-
ar í sjónvarpsmynd fyrir jól um það
„hvernig fjölþjóðleg fyrirtæki nýta
sér vesæld launamanna og barna í
Kína og leggja líf þeirra og heilsu í
rúst. Þetta er nákvæmlega sama tó-
bakið. Þetta er það sem félagsmála-
ráðherra Íslands stendur fyrir.“
- ghs
HAMFARIR Svíar krefjast þess að
Laila Freivalds utanríkisráð-
herra segi af sér. Hún liggur und-
ir ámæli fyrir að hafa farið á
óperusýningu á sunnudagskvöld-
ið eftir að flóðið varð. Sendiráðið
í Bangkok hafi látið vita um flóð-
in aðfaranótt sunnudags. Um
morguninn hafi verið ljóst að
hundruð hafi látið lífið og að 15
þúsund Svíar hafi verið á svæð-
inu. Ættingjar hafi hringt í utan-
ríkisráðuneytið. Starfsmenn
sendiráðsins í Bangkok hafi farið
á svæðið en utanríkisráðherrann
hafi ekki verið
látinn vita fyrr
en rétt fyrir há-
degi á sunnudag.
Hún hafi svo
ákveðið að sjá óp-
e r u s ý n i n g u n a
„Góði uppreisn-
armaðurinn“ á
sunnudagskvöld
þó að tala látinna
hafi numið um 10
þúsund. Ráðherr-
ann segist ekki
hafa hugsað út í
að það væri kannski ekki við
hæfi að sækja slíka sýningu við
þessar aðstæður.
Starfsmenn sendiráðs Svía eru
líka harðlega gagnrýndir. Svíar
sem hafa haft samband við sendi-
ráðið segjast hafa fengið þau svör
að haft yrði samband. Það hafi
aldrei orðið. Aðrir segjast hafa
fengið þau svör frá sendiráðs-
starfsmönnunum að þeir hafi það
jafn slæmt og það fólk sem leitar
eftir aðstoð.
Í vefmiðlum birtast neyðaróp
frá slösuðum Skandinövum í
löndunum við Indlandshaf,
beiðni um aðstoð og flutning
heim. Fyrstu Norðmennirnir og
Svíarnir lentu rétt fyrir hádegi í
gær og var búist við að straum-
urinn yrði stöðugur. Slasaðir og
börn voru látin ganga fyrir. Svíar
búast við að hafa ferjað allt sitt
fólk heim á þriðjudag og Norð-
menn á sunnudag. Björgunarað-
gerðir Finna hafa gengið vel.
Finnarnir voru færri en Norð-
mennirnir og Svíarnir.
Skandinavísku þjóðirnar eru
harmi slegnar. Búið er að lýsa yfir
þjóðarsorg í Noregi og Svíþjóð á
nýársdag. Fánar verða dregnir í
hálfa stöng og skorað á almenning
að gera slíkt hið sama. Fyrirtæki í
Svíþjóð senda stuðning í stórum
stíl á hamfarasvæðið, lyf, fatnað,
teppi og aðrar nauðsynjar sem
geta komið sér vel við björgunar-
störfin. Samtök atvinnulífsins í
Svíþjóð hafa skorað á fyrirtæki að
senda peninga eða annan stuðning.
Sjá einnig síðu 10
ghs@frettabladid.is
Nýársdagur:
Flaggað í
hálfa stöng
HAMFARIR Ákveðið hefur verið að
flaggað verði í hálfa stöng við op-
inberar stofnanir á nýársdag til
þess að votta hinum látnu í nátt-
úruhamförunum við Indlandshaf
virðingu.
Einnig verður flaggað í hálfa
stöng við opinberar byggingar í
Noregi, Svíþjóð og Finnlandi.
Mælst hefur verið til þess að al-
menningur geri slíkt hið sama og
votti þannig fórnarlömbum flóð-
anna virðingu sína að því er fram
kemur í frétt frá forsætisráðu-
neytinu. ■
Heildarafli á árinu:
Minnsti afli
síðan 1998
SJÁVARÚTVEGUR Afli íslenskra skipa
á árinu 2004 er áætlaður 1.725
þúsund lestir samkvæmt Fiski-
stofu. Það er minnsti afli síðan
árið 1998 þegar aflinn var 1.678
þúsund lestir.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Fiskistofu verður heildaraflinn í
ár um 255 þúsundum lestum
minni en árið 2003. Heildarafli
botnfisks verður hins vegar að-
eins meiri en í fyrra og munar
töluvert um aukinn þorskafla sem
er áætlaður 221 þúsund lestir mið-
að við 200 þúsund í fyrra.
Afli uppsjávartegunda minnk-
ar verulega frá fyrra ári eða úr
1.431 þúsund lestum árið 2003 í
1.171 þúsund lestir í ár. Heildar-
afli skel- og krabbadýra minnkar
einnig milli ára. Áætlað er að afla-
verðmæti árið 2004 verði svipað
og árið 2003 miðað við fast verð.
- th
,,Í vefmiðl-
um birtast
neyðaróp
frá slösuð-
um Skand-
inövum í
löndunum
við Ind-
landshaf.
Tímaritaútgáfan Fróði:
Knútur
hættur
VIÐSKIPTI Knútur Signarsson sem
tók við starfi framkvæmdastjóra
Fróða í haust er hættur störfum.
Hann hverfur aftur til starfa hjá
Odda, sem er stærsti hluthafinn í
Fróða.
Ekki hefur verið upplýst hver
taki við starfi framkvæmdastjóra
í fyrirtækinu en að sögn Knúts
eru breytingar á útgáfu hjá Fróða
ekki fyrirhugaðar.
Oddi keypti Fróða af Magnúsi
Hreggviðssyni í haust og hefur
síðan farið í gegnum fjárhagslega
endurskipulagningu sem meðal
annars fólst í því að flytja rekst-
urinn í nýtt félag á nýrri kenni-
MENGUNARVARNARGIRÐING SETT UPP
Setja þurfti upp varnargirðingu til þess að
koma í veg fyrir að olía sem lak í Patreks-
höfn kæmist út úr höfninni.
Patreksfjörður:
Olía lak í
höfnina
MENGUN Mengunarvarnargirðing
var sett upp umhverfis smábáta-
höfnina á Patreksfirði í fyrra-
kvöld eftir að í ljós kom að olía
hafði lekið í höfnina. Óttast er að
nokkuð hundruð lítrar af olíu hafi
lent í höfninni að sögn lögreglu.
Ekki var vitað í gær hvað olli
lekanum en allir bátar og lausir
tankar verða rannsakaðir að sögn
lögreglu. Megna olíulykt leggur
af höfninni enda um hráolíu að
ræða. ■
Söfnunarsíminn er 907 2020
Með því að hringja í söfnunarsímann leggur þú fram 1.000 kr. til hjálparstarfsins
í Asíu. Einnig er hægt að leggja fram fé með kreditkorti á www.redcross.is,
eða millifærslu á bankareikning 1151-26-000012, kt. 530269-2649.
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
kostar birtingu auglýsingarinnar
„Nei, ég er ekki leið á að bíða eftir
þessum áramótum.“
Hansína Ásta Björgvinsdóttir er bæjarstjóri í Kópa-
vogi. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar hafa gagn-
rýnt að Hansína fái greiddan einn mánuð í biðlaun
en hún er ráðin bæjarstjóri til sex mánaða.
SPURNING DAGSINS
Hansína, ertu orðin leið á að bíða?
GUÐMUNDUR GUNNARSSON
Formaður Rafiðnaðarsambandsins telur
að umsóknin um Kínverjana 150 sé
bara byrjunin. Hann kveðst hafa heim-
ildir fyrir því að þeir verði orðnir 300
eftir mánuð eða svo.
M
YN
D
/F
RÉ
TT
AV
EF
U
R
IN
N
T
ÍÐ
IS
UTANRÍKISRÁÐHERRA Á HAMFARASVÆÐUM
Laila Freivalds, utanríkisráðherra Svía, í heimsókn á hamfarasvæðunum við Indlandshaf.
Krafist er afsagnar ráðherrans þar sem hún og ríkisstjórnin hafi seint og illa komið til hjálpar.
VIÐSKIPTI Bankaráð Íslandsbanka
fundaði í gærmorgun um ákvörð-
un Bjarna Ármannssonar for-
stjóra um að víkja Jóni Þórissyni
aðstoðarforstjóra úr starfi.
„Bjarni gerði grein fyrir mál-
inu og við ræddum það. Niður-
staða okkar er sú að forræði
Bjarna í þessu máli er ótvírætt.
Hann ber ábyrgð á því að ráða
starfsmenn til bankans og sjá um
starfslok þeirra. Þetta var því
rætt okkur til upplýsingar en ekki
til ákvörðunar,“ segir Einar
Sveinsson formaður bankaráðs Ís-
landsbanka.
Innan stjórnarinnar er ekki ein-
hugur um ákvörðun Bjarna en
töluverður meirihluti er sáttur við
þessa ráðstöfun.
Komið hefur fram að ráðning
Sveins Hannessonar í stöðu úti-
bússtjóra hafi haft úrslitaþýðingu
um ákvörðun Bjarna en ráðningin
var ekki borin undir forstjórann.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er ástæða þess að sú
ráðning fór illa í Bjarna ekki síst
sú að Sveinn hefði í gegnum starf
sitt hjá Samtökum iðnaðarins stutt
setu Víglundar Þorsteinssonar í
stjórn Íslandsbanka.
Litlir kærleikar hafa verið milli
Víglundar og Bjarna en Víglundur
vék úr stjórn bankans fyrir
skemmstu. - þk
BJARNI ÁRMANNSSON OG EINAR SVEINSSON
Formaður bankaráðs Íslandsbanka segir mannahald í bankanum vera á forræði Bjarna Ár-
mannssonar forstjóra og því hafi ákvörðun hans um að reka aðstoðarforstjórann einungis
verið rædd til kynningar á fundi bankaráðs.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Bankastjórn Íslandsbanka fundaði um brottrekstur:
Málið á forræði Bjarna
Þjóðarsorg í
Skandinavíu
Gríðarleg óánægja er með framgöngu sænskra og norskra stjórnvalda
eftir hamfarirnar í löndunum við Indlandshaf um jólin. Búið er að lýsa
yfir þjóðarsorg í Noregi og Svíþjóð á nýársdag.
Rauði kross Íslands:
50 milljónir
hafa safnast
FLÓÐBYLGJAN Um fimmtíu milljónir
króna höfðu í gærkvöld safnast í
söfnun Rauða kross Íslands fyrir
fórnarlömb náttúruhamfaranna í
Asíu.
„Íslendingar hafa tekið með ein-
dæmum vel við sér,“ segir Konráð
Kristjánsson, verkefnisstjóri hjá
Rauða kross Íslands. „Ég þori að
fullyrða að í skyndisöfnun sem
þessari hafa aldrei safnast jafn
miklir fjármunir á jafn skömmum
tíma enda um að ræða stærstu
hjálparbeiðni sem Rauði krossinn
hefur sent út um áratuga skeið.“
Alls hafa um tuttugu þúsund
manns hringt í söfnunarsímann 907-
2020 og gefið þannig þúsund krónur.
Fjölmörg fyrirtæki hafa síðan lagt
sitt af mörkum til söfnunarinnar. -ht