Fréttablaðið - 31.12.2004, Page 6
6 31 desember 2004 FÖSTUDAGUR
SLYSFARIR Tuttugu og þrír hafa lát-
ist í umferðarslysum það sem af
er árinu. Jafnmargir létust í um-
ferðinni í fyrra en voru 29 árið
2002. Sigurður Helgason, hjá Um-
ferðarstofu, segir mesta árangur-
inn undanfarin ár hafa verið í
fækkun þeirra sem slasast alvar-
lega.
Átta létust í umferðinni í júlí,
ágúst og september. „Það er svo
skrítið að stór hluti banaslysa
verður um hábjartan dag þegar
skilyrði eru hvað best. Þá er eins
og fólk keyri hraðar, taki meiri
áhættu,“ segir Sigurður. Hann seg-
ir jafnframt áberandi að þeir út-
lendingar sem deyja í umferðinni
hér eru oft ekki í bílbeltum. Að
meðaltali látast 24 í umferðinni ár
hvert og var fjöldi banaslysa fyrir
tuttugu árum svipaður og hann er
nú þó umferðin sé helmingi meiri.
„Hvert slys er einu slysi of mikið.
Mesti árangurinn virðist vera í
fækkun slasaðra. Ég hef á tilfinn-
ingunni að færri hafi slasast alvar-
lega í umferðinni í ár heldur en í
fyrra sem þó var besta árið í tutt-
ugu ár,“ segir Sigurður. Á síðasta
ári slösuðust 145 alvarlega en árið
1984 voru þeir 419 talsins. Sigurð-
ur segir mestu muna um bílbeltin
og öruggari bíla og nefnir tilvik
þar sem fólk stígur lítið eða óslas-
að út úr gjörónýtum bílum.
Langflest banaslysa verða í
dreifbýli innan við eitt hundrað
kílómetra fjarlægð frá Reykjavík.
Hraðinn er meiri úti á þjóðvegun-
um en Sigurður segir hraðan þó
vera skaplegri í nágrenni við höf-
uðborgina en á móti komi meiri
umferð. Hann segir árekstra og
útafakstra vera mest áberandi
þegar horft er til banaslysa síðasta
árs.
hrs@frettabladid.is
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
VEISTU SVARIÐ?
1Hvaða frægi Hollywood-leikari hefurverið hérlendis undanfarna daga?
2Hvað heitir evrópska svikamyllan semSamtök verslunar og þjónustu vara
við?
3Hver varð í öðru sæti í kjörinu umíþróttamann ársins?
Svörin eru á bls. 62
ÚTSALAN
HEFST Á MÁNUDAGINN
Opnum kl. 08.00
20-40% afsláttur
og Hafnargötu, Keflavík
AFHENDING ENDURSKINSMERKJA
Anna Berglind Finnsdóttir og Guðríður
Guðmundsdóttir, félagar í björgunarsveit-
inni Hérað á Egilsstöðum, og Sigríður Sig-
þórsdóttir lögreglumaður.
Austurland:
Endurskin til
útivistarfólks
LÖGREGLA Sýslumannsembættin á
Seyðisfirði og Eskifirði hafa hafið
átak í notkun endurskinsmerkja.
Reynt verður að ná til þeirra sem
stunda útivist í skammdeginu.
Hægt verður að fá endurskins-
merki án endurgjalds á flugelda-
mörkuðum björgunarsveitanna á
Austurlandi. Eins munu vera merki
í öllum lögreglubílum eftir 1. janúar
og munu verða afhent þeim sem
sjást endurskinslausir, ef þeir sjást
þá. Átakið er samstarfsverkefni
lögreglunnar, VÍS og björgunar-
sveita Slysavarnarfélagsins Lands-
bjargar. - hrs
HÖFNUÐU Á VEGHEFLI Engin slys
urðu á fólki þegar fólksbíll hafn-
aði á veghefli á Holtavörðuheiði
um hádegisbil í gær. Fólksbíllinn
er mikið skemmdur og þurfti að
draga hann af vettvangi með
kranabíl.
GEKK TIL BYGGÐA EFTIR BÍLVELTU
Maður um fertugt gekk til byggða
og braust inn í veiðihús til þess að
biðja um aðstoð eftir að hann
velti bíl sínum í Burstafellsbrekk-
um ofan við Vopnafjörð snemma í
gærmorgun. Lögregla kom mann-
inum undir læknishendur en hann
var kaldur og blautur auk þess
sem hann hlaut smávægileg
meiðsl við bílveltuna.
BANASLYS Í UMFERÐINNI ÁRIÐ 2004
10.01. 24 ára karlmaður ökumaður fólksbíls Suðurlandsv. við Gunnarshólma, Kópav.
02.02. 64 ára karlmaður ökumaður fólksbíls Höfðabakki í Elliðaárdal, Reykjavík
18.02. 45 ára kona farþegi í fólksbíl Norðurlandsv. v. Húnsstaði, Torfalækjarhr.
20.02. 13 ára stúlka farþegi í fólksbíl Vesturlandsv. við Laxfoss, Borgarbyggð
20.02. 13 ára stúlka farþegi í fólksbíl Vesturlandsv. við Laxfoss, Borgarbyggð
30.02. 76 ára karlmaður farþegi í fólksbíl Akraneshöfn, Akranes
30.02. 74 ára kona ökumaður fólksbíls Akraneshöfn, Akranes
19.05. 52 ára karlmaður ökumaður fólksbíls Reykjanesbr. v. Kúagerði, Vatnsleysustr.
26.05. 89 ára kona fótgangandi Spítalastígur, Reykjavík
04.06. 42 ára karlmaður ökumaður bifhjóls Garðabraut, Garður
07.06. 25 ára karlmaður ökumaður bifhjóls Þingvallav. við Skálafellsafl., Mosfellsbær
11.07. 21 árs karlmaður ökumaður fólksbíls Vesturlandsv. við Varmá, Mosfellsbær
15.07. 15 ára stúlka fótgangandi Bíldudalsvegur, Vesturbyggð
20.07. 38 ára tékknesk kona farþegi í fólksbíl Vatnsnesv. við Valdalæk, Húnaþing vestra
24.07. 45 ára þýskur karlm. farþegi í fólksbíl Krísuvíkurvegur við Vatnsskarð, Grindavík
03.08. 36 ára karlmaður ökumaður vörubifr. Krossanes, Akureyri
30.09. 17 ára karlmaður ökumaður fólksbíls Biskupstungnabraut við
Þrastarskóg, Grímsnes- og Grafningshr.
10.10. 23 ára karlmaður ökumaður fólksbíls Þjórsárdalsvegur skammt frá
Skriðufelli, Skeiða- og Gnúpverjahr.
10.10. 35 ára brasil. karlm. farþegi fólksbíls Þjórsárdalsvegur skammt frá
Skriðufelli, Skeiða- og Gnúpverjahr.
17.10. 34 ára pólskur karlm. ökumaður fólksbíls Norðurlandsv. við Varmahlíð, Skagafjörður
05.11. 85 ára karlmaður ökumaður fólksbíls Reyðarfjarðarháls, Fjarðarbyggð
27.11. 42 ára karlmaður ökumaður fólksbíls Við Köldukvíslarbotna í Vonarskarði, Ásahr.
27.11. 40 ára karlmaður fótgangandi Eyrarvegur, Selfoss
FLUGELDAR Á hverju ári verða slys
vegna flugelda. Þorsteinn Har-
aldsson fékk brot frá flugeldi í
augað þegar hann var þrettán
ára og hefur ekki haft sjón á því
síðan.
„Við snerum auðvitað andlit-
inu að rakettunni því tilgangur-
inn með því að skjóta henni upp
var að sjálfsögðu að geta notið
hennar með því að horfa á
hana,“ segir Þorsteinn. Þetta
kvöld var dálítið hvasst og í
skjólinu sem strákarnir fundu
var ekki hægt að fara lengra en
metra frá flugeldinum. „Rakett-
an sprakk fyrir framan okkur og
um leið og hún þeyttist út í busk-
ann fór einhver brennandi hlut-
ur úr henni í augað á mér.
Ég var ekki með hlífðargler-
augu af neinu tagi en ég er alveg
viss um að ef ég hefði verið með
gleraugu hefði bara verið lítill
blettur á þeim.“ Þorsteinn segist
kaupa og skjóta upp flugeldum
þrátt fyrir slysið. „En ég passa
mig og nota hlífðargleraugu,“
bætir hann við.
Að sögn Sigrúnar Þorsteins-
dóttur hjá slysavarnasviði
Landsbjargar hefur mjög dregið
úr augnsköðum af völdum flug-
elda. „Síðustu áramót höfum við
blessunarlega verið laus við alla
augnskaða og þökkum það
hversu duglegur almenningur
hefur verið að nota hlífðargler-
augun.“ ■
ÞORSTEINN HARALDSSON
Fékk brennandi rusl úr flugeldi í augað
þegar hann var þrettán ára.
UTANRÍKISMÁL Dómsmálaráðuneytið
bandaríska gefur ekki upp rök-
stuðning eða bakgrunn ákvarðana
sinna og lætur ekkert uppi um
mögulegar fyrirætlanir sínar, segir
Michael Kulstad, upplýsingafulltrúi
ráðuneytisins. Hann var spurður að
því hvers vegna ráðuneytið hefði
ekki farið fram á framsal skák-
meistarans Bobby Fischer frá Jap-
an og hvort mögulega yrði farið
fram á framsal héðan, færi svo að
japönsk yfirvöld heimiluðu Íslands-
förina. Eins segir hann ekkert gefið
upp um hvort Fischer gætu mögu-
lega verið gefnar upp sakir í Banda-
ríkjunum.
Benedikt Höskuldsson, sendi-
fulltrúi í sendiráði Íslands í Japan,
sagðist í gær ekki hafa heyrt í
Masako Suzuki, lögfræðingi
Fischers, en hún ætlaði að upplýsa
sendiráðið um þróun mála í viðræð-
unum við japönsk yfirvöld til þess
að hægt yrði að upplýsa ráðamenn
hér heima. Í Japan sem og hér
heima er frí fram yfir áramótin og
því ekki von á að hreyfing komist
aftur á mál Fischers fyrr en á
þriðjudag í fyrsta lagi. - óká
BOBBY FISCHER
Skákmeistarinn er enn í haldi japanska innflytjendaeftirlitsins, en dómsmálaráðherra
landsins hefur fallist á að taka mál hans til skoðunar og kanna hvort til greina komi að
hleypa honum til Íslands. Von er á niðurstöðu á nýju ári.
Bandarísk stjórnvöld um Bobby Fischer:
Dómsmálaráðuneytið
gefur ekkert upp
Missti sjónina eftir flugeldaslys:
Skýt enn upp flugeldum
Mestur árangur í fækk-
un alvarlega slasaðra
Banaslysum hefur ekki fjölgað þrátt fyrir aukna umferð síðustu tuttugu ár. 23 hafa látist í umferðinni
það sem af er árinu, jafnmargir og í fyrra. Fækkað hefur þeim sem slasast alvarlega, þeir voru 419 fyrir
tuttugu árum en í fyrra voru þeir 145.
BANASLYS
Langflest banaslysa verða í dreifbýli innan við eitt hundrað kílómetra fjarlægð frá Reykjavík.