Fréttablaðið - 31.12.2004, Page 8
8 31. desember 2004 FÖSTUDAGUR
RITHÖFUNDUR Á SRI LANKA
Arthur C. Clarke, rithöfundur og einn best
þekkti íbúi Sri Lanka, féllst á að láta
mynda sig á heimili sínu á fimmtudag, en
hann býr í Colombo þar sem flóð af völd-
um jarðskjálftans á annan í jólum ollu
stórtjóni. Hvorki Clarke né fjölskyldu hans
sakaði, en hann sagðist sakna þess að
ekki skuli hafa verið komið upp viðvörun-
arkerfi í landinu sem mildað gæti áhrif
náttúruhamfara.
Verð á flugeldum:
Álagning misjöfn
FLUGELDAR Verð á flugeldum er
mjög mismunandi eftir því í
hvaða tilgangi þeir eru seldir.
„Við höfum ekki verið í sam-
keppni um ódýra flugelda,“ seg-
ir Ævar Aðalsteinsson hjá
Hjálparsveit skáta í Reykjavík.
Hann treystir sér ekki til að
gefa upp nákvæmar álagninga-
tölur hjá björgunarsveitunum.
„Það er ekkert feimnismál að
þessir peningar skila sér ágæt-
lega inn í rekstur sveitanna,“
segir Ævar. Hann bætir við að
galdurinn bak við hagnaðinn á
flugeldasölunni liggi aðallega í
því að hún sé öll unnin í sjálf-
boðavinnu.
Rúnar Ólafsson, flugeldainn-
flytjandi hjá Gæðaflugeldum,
hefur verið með einkarekna flug-
eldasölu í fimmtán ár. Hann seg-
ir að þeir aðilar sem séu að
styrkja gott málefni geti kannski
leyft sér að vera með mörg hund-
ruð prósenta álagningu á flug-
elda, en í einkabransanum gildi
önnur lögmál. „Við sem spilum
inn á að vera með lægstu verðin
verðum að vera með minni
álagningu,“ segir hann. Rúnar
vill ekki gefa nákvæmlega upp
hvað mikið hann leggur á flug-
eldana sína. Það sé breytilegt
milli vara en oftast milli hundrað
og tvö hundruð prósent. ■
Framkvæmdir á Hellisheiði:
Mislæg
gatnamót rísa
SAMGÖNGUR Mislæg gatnamót
munu rísa á Hellisheiði nærri
Þrengslavegamótum á næsta
ári. Til stendur að færa hring-
veginn á heiðinni og bæta við
akrein frá Litlu kaffistofunni að
Hveradalabrekku að sögn Svans
Bjarnasonar.
Fyrsti áfangi framkvæmda
við nýjan Suðurstrandarveg,
milli Grindavíkur og Þorláks-
hafnar, er einnig í útboði.
Ákveðið hefur verið að færa 140
milljónir sem nota átti til þess
verks til framkvæmdanna á
Hellisheiði en þær munu í heild
kosta um 400 milljónir.
Framkvæmdirnar á Hellis-
heiði verða boðnar út í byrjun
janúar næstkomandi og á fram-
kvæmdunum að ljúka í lok októ-
ber á næsta ári að sögn Svans. ■
Blysin á loft:
Æ fleiri selja
flugelda
FLUGELDAR Flugeldasala nær há-
marki í dag en sölustaðir flugelda
eru tæplega fimmtíu í ár. Sölustöð-
um hefur fjölgað um fimmtung frá
því í fyrra og ber æ meira á því að
einkafyrirtæki keppi við björgunar-
sveitir og íþróttafélög um hituna.
„Flugeldasalan er mjög sérstök
að því leyti að hún fer nánast öll
fram á einum sólarhring,“ segir
Lúðvík Georgsson, KR-flugeldum
en að sögn Lúðvíks seljast áttatíu
prósent allra flugelda frá klukkan
fjögur þann 30. desember til klukk-
an fjögur á gamlársdag. „Hefðin
segir að fólk kaupi flugeldana sína á
þessum sólarhring.“ - ht
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
SPRENGDU PÓSTKASSA Póstur
dreifðist um allt þegar póstkassi
var sprengdur í loft upp á Lauga-
vegi í fyrrinótt. Talsvert ónæði
var af völdum flugelda í miðbæn-
um í fyrrakvöld auk þess sem
kvartað var undan hávaða frá
veitingastöðum.
SVARTKLÆDDIR MENN Í STOF-
UNNI Íbúa í neðra Breiðholti brá
í brún í gærmorgun er hann fann
tvo svartklædda menn inni í
stofu hjá sér. Mennirnir létu sig
hverfa og leitaði lögregla þeirra í
gær. Þá var annar þjófur í Breið-
holti handtekinn eftir innbrot í
tvo bíla í Æsufelli í fyrrinótt.
STÁLU GASKÚTUM Nokkur ung-
menni um tvítugt náðust eftir að
þau stálu tveimur gaskútum af
heimilisgrillum í Hafnarfirði í
gær. Ungmennin ætluðu að nota
kútana til þess að komast í vímu
en það er stórhættulegt að sögn
lögreglu.
Brunamálastofnun og slökkviliðin í landinu óska landsmönnum farsældar á nýju ári.
Eldsvoðar urðu okkur dýrkeyptir á árinu.
Gætum okkar betur á næsta ári!
Um leið minnum við ykkur á
og huga að nauðsynlegum brunavörnum.
að fara varlega með eld
Brunamálastofnun Skúlagata 21
101 Reykjavík
Sími 591 6000
Fax 591 6001
brunamal@brunamal.is
www.brunamal.is
Líf, heilsa, umhverfi, eignir
Markmi› Brunamálastofnunar og slökkvili›anna er
a› vernda líf, heilsu fólks, umhverfi og eignir me› flví
a› tryggja fullnægjandi eldvarnaeftirlit og vi›búna›
vi› eldsvo›um og mengunaróhöppum á landi.
Brunamálastofnun vinnur fyrir stjórnvöld, slökkvili›,
almenning og a›ra hagsmunaa›ila a› rá›gjöf, eftirliti
og umbótum á svi›i brunavarna.
G
A
R
Ð
A
R
G
U
Ð
JÓ
N
S
S
O
N
/
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
1
2
.0
4
FLUGELDAR
Álagningin gæti numið hundruðum
prósenta.
MISLÆG GATNAMÓT
Munu rísa í hrauninu nærri
Þrengslavegamótum á Hellis-
heiði á næsta ári.
M
YN
D
/V
EG
AG
ER
Ð
IN