Fréttablaðið - 31.12.2004, Síða 10

Fréttablaðið - 31.12.2004, Síða 10
10 Hjálp vegna hörmunganna í Asíu berst víða að og er að mörgu að hyggja. Hætta á smitsjúkdómum í kjölfar jarðskjálftanna eykst gífurlega vegna ástandsins á hörmungarsvæð- unum. María Skarphéðinsdóttir sem er með meistaragráðu í heilsu- gæslulækningum í þróunarlöndum er nýkomin frá Asíu þar sem hún hefur starfað í eitt ár. Hún starfaði á svæðisskrifstofu Alþjóða Rauða krossins í Suður-Asíu þar sem hún hafði umsjón með uppbyggingu heilbrigðisstarfs Rauða krossins og Rauða hálfmánans. Áður hefur hún unnið fyrir Rauða krossinn í Malavíu og Tanzaníu. Hvers vegna er hætta á sjúkdóm- um á svæðunum sem urðu fyrir flóðbylgjunni? Hættan á sjúkdómum kemur til vegna þess að vatnskerfi og skólp- kerfi bresta. Þá hefur fólk misst hús- næði og er varnarlaust á berangri, oft í mjög erfiðum aðstæðum. Hvaða sjúkdómar geta komið upp? Sjúkdómar sem fyrir eru á þessum svæðum geta náð sér á strik í nýjum aðstæðum þar sem hið venjulega jafnvægi ríkir ekki. Það geta komið ýmsar niðurgangspestir eins og kól- era. Þá er hætt við malaríu á svæð- um þar sem mikið af vatni er skyndi- lega yfir stórum svæðum. Moskítóflugum sem bera malaríuna fjölgar. Hvað er hægt að gera? Óhjákvæmilega verður aukin tíðni sjúkdóma við slíkar aðstæður sem þarna eru núna. Hvort það nái far- aldursmörkum veltur á því hversu fljótt aðstoðin berst, hversu viðeig- andi hún er og hversu fljótt tekst til að koma grundavallarþörfum fólks- ins í lag. MARÍA SKARPHÉÐINSDÓTTIR Hætt við kóleru og malaríu SJÚKDÓMAR Í KJÖLFAR JARÐ- SKJÁLFTANS Í INDLANDSHAFI SPURT OG SVARAÐ Tala þeirra sem létust í jarðskjálftanum norður af Súmötru annan í jólum fer sí- fellt hækkandi. Mörg þúsund lík eru brennd eða komið fyrir í fjöldagröfum án þess að kennsl hafa verið borin á þau. Eva Klonowski réttarmannfræðing- ur segir nauðsynlegt að koma líkunum fyrir sem fyrst en er hrædd um að ekki séu gerðar ráðstafanir til hægt verði að bera kennsl á þá sem létust. Rotnun hefst eftir nokkra klukkutíma Hitinn á hamfarasvæðinu er stórt vandamál. Líkin byrja að rotna eftir nokkra klukkutíma þar sem hitastig á svæðinu er í kringum þrjátíu stig. Losna þarf við líkin sem fyrst af al- mennum svæðum vegna lyktar og hversu hættuleg þau geta verið fólki vegna smithættu. Hætt er við að bakt- eríur berist frá líkunum í fólk með vatni eða flugum. Best væri að koma líkunum fyrir í krufningafrysti en vegna fjölda látinna er sá möguleiki ekki fyrir hendi. Þess í stað þarf að koma líkun- um fyrir í fjöldagröfum eða brenna þau. Engin undirbúningsvinna Eva, sem unnið hefur við að bera kennsl á fólk í fjöldagröfum í Bosníu frá árinu 1996, segist hrædd um að engin undirbúningsvinna til að bera kennsl á þá látnu fari fram. Hægt væri að gera ýmislegt eins og að taka andlitsmyndir af líkunum og persónulegum munum áður en þeim er komið fyrir í fjöldagröf- um. Eins væri mjög gagnlegt að lífssýni væru tekin og geymd til að hægt væri að vinna úr þeim síðar með DNA-grein- ingu. Erfitt er að bera kennsl á þá látnu margra hluta vegna. Mörg líkin hafa borist langa leið með sjó og margir þeirra látnu eru ferðamenn sem eru langt frá sínum heimkynnum. Líkin brennd eða sett í fjöldagrafir FBL - GREINING: LÍK LÁTINNA Á HAMFARASVÆÐINU 31. desember 2004 FÖSTUDAGUR Mesta mannfall á friðartímum Fjölskyldur hafa tvístrast, foreldr- ar hafa misst börn sín og börn eru orðin munaðarlaus eftir hamfarirn- ar við Indlandshaf. Norðurlanda- þjóðirnar hafa orðið illa úti. Þetta er mesta mannfall á friðartímum í Skandinavíu. Féllust í faðma Laila Freivalds utanríkisráð- herra hitti slasaða sænska konu á gangi sjúkrahúss á Phuket. Þær þekktust ekki neitt en féllust í faðma og fóru báðar að gráta. Skömmu áður hafði Freivalds setið og spjallað við föður sem hafði misst tvö börn. „Það er hræðilegt þegar maður hefur misst börnin sín,“ sagði hún. Dóttir mannsins hafði lifað af og sjálfur var maður- inn í hjólastól. Móðir barnanna var einnig á lífi en lá í öðrum sal. Á flugvellinum Þröng hefur verið á flugvöllum á hamfarasvæðinu og slasaðir Norð- urlandabúar bíða á flugvellinum eft- ir flutningi heim. Lena Kullberg- Boman er alvarlega slösuð og hefur þurft að bíða klukkutímunum saman á flugvellinum á Phuket með manni sínum, Johnny, og dóttur sinni, Hönnu. Þau vita ekkert hversu lengi þau þurfa að bíða. Joel, níu ára son- ar þeirra, er ennþá saknað. Tommy Jonsson og dóttir hans, Linn, höfðu ákveðið að fara um borð í flugvélina og fara heim til Svíþjóðar án þess að hin dóttirin Mio hefði fundist eða móðir þeirra. Á flugvellinum rétt áður en þau áttu að fara í loftið heyrðu þau kunnuglega kvenrödd tala um að hún væri frá Vesturlöndum. Móðir- in var fundin og það urðu miklir fagnaðarfundir. Mio hefur ekki fundist og Tommy telur rétt að segja eins og er: Hún sé látin. Pia fékk lánaðan farsíma Pia Johansson, 54 ára, bjargaðist úr flóðinu á Srí Lanka. Pia hafði lent í bílslysi fyrir nokkru og gekk við hækjur. Hún bjó á svæðinu á Srí Lanka sem varð einna verst úti. Ættingjar hennar voru mjög áhyggjufullir og sumir höfðu jafn- vel sætt sig við að hún væri látin. En það breyttist í einu vetfangi. Í fyrrakvöld tókst Piu að fá lánaðan farsíma og hringja til að láta vita af sér. Hún hafði verið á hótelinu þeg- ar flóðið kom og ekkert slasast. Eft- ir að hafa aðstoðað við björgunar- störf var hún flutt í bænahús þar sem hún var í nokkra daga án þess að geta haft samband við umheim- inn eða þar til hún fékk far til Colombo, höfuðborgar Srí Lanka. Niklas bjargaði pabba sínum Niklas Svensson sá pabba sinn fljóta burt með flóðbylgjunum, hoppaði út í og bjargaði honum. Christer bjó ásamt konu sinni Evu og tveimur sonum, Niklas og Andr- eas, á jarðhæð hótels á Srí Lanka. „Íbúðin fylltist allt í einu af vatni. Ég lá og synti uppi í loftinu. Ég hélt að ég myndi ekki bjargast og var gripinn ótta.“ Eiginkonu hans og sonum hafði tekist að flýja upp á næstu hæð en Niklas hoppaði út í þegar þau sáu Christer skolast út. Honum tókst að draga pabba sinn á þurrt. Gert var að sárum Christers á sjúkrahúsi við lélegar aðstæður; ljóstýra undir þaki og engin deyfing. Engir veggir voru á sjúkrahúsinu og fuglarnir flugu í gegnum bygginguna. Fimm daga á sjúkrahússganginum Sjötug norsk kona, Else-Karin Eidsvåg, bjargaðist á dýnu. Hún var orðin góð eftir að hafa veikst af krabbameini í vor. Hún og dóttir hennar, Cecilie Schübeler Mogstad, lágu á dýnum á ströndinni þegar flóðbylgjan kom. Þær misstu hvor af annarri en lifðu báðar af og end- uðu með því að liggja aftur saman á dýnum – á ganginum á sjúkrahúsinu í nokkra daga. Mæðgurnar eru með- al 15 slasaðra Norðmanna sem komu með sjúkraflugi frá Phuket til Noregs í gær. Fann líkið eftir þrjá sólarhringa Morten Aanstad fann 11 ára son sinn, Martin, eftir þrjá sólarhringa. Fjölskyldan bjó í fjölskylduhverfi í Blue Village í Khao Lak. Fjölskyld- an tvístraðist en foreldrarnir fundu fljótlega hvor annan. Sonanna, Mariusar og Martins, var saknað en Marius fannst einum sólarhringi síðar á hersjúkrahúsi í Bangkok. Vonin lifði en tveimur sólarhringum síðar fann Morten Martin liggjandi í nafnlausri kistu á meðal hundruð annarra sem hvorki er vitað um nafn né þjóðerni á. Líkin liggja úti undir beru lofti í 30 stiga hita, undir laki eða í poka. Fáir liggja í kistu. Foreldranna saknað Fimm manna fjölskylda frá Rogalandi í Noregi var í jólafríi í Taílandi þegar flóðbylgjan kom. Yngstu börnin, Sindre og Karoline, slösuðust lítið og voru flutt heim á þriðjudag. Þegar þau voru á leiðinni heim fannst eldri systir þeirra, Charlotte Bottolfsen Arntsen, á sjúkrahúsi í Bangkok og í gær kom hún heim til systkina sinna. Börnin búa hjá afa og ömmu meðan for- eldra þeirra er leitað. Ekkert hefur heyrst frá þeim. Föðurbróðir systk- inanna segir að enn sé von um að foreldrarnir hafi bjargast en hún sé farin að dvína. Býr í tjaldi við norska sendiráðið Ýmsar aðrar sögur má finna af Norðmönnunum. Þannig segir einn vefmiðillinn frá því að norsk fjöl- skylda búi í tjaldi í garðinum við norska sendiráðið á Srí Lanka því að öll hótel sem eftir eru séu full. Hildegunn Thiese og Øystein Aasen frá Stafangri höfðu selt allar sínar eigur til að kaupa og reka hótel á suðurströnd Srí Lanka. Þau höfðu boðið fjölskyldunni til sín um jólin. Þau höfðu verið á ströndinni fyrr um daginn og borðað morgunverð þegar flóðbylgjan kom. Hótelið er eyðilagt og reksturinn úti. Í bili að minnsta kosti. En fjölskyldan er heil á húfi. Byggt á sænskum og norskum vefmiðlum. ghs@frettabladid.is Jólagjöf til þín Það er sælla að gefa en þiggja, þess vegna höfum við hjá Ömmubakstri ákveðið að bæta við einni flatköku í pakkana hjá okkur yfir jólin, þannig að þegar þú opnar flatkökupakka næst, þá færðu fimm flatkökur í staðinn fyrir fjórar. Svo viljum við óska öllum landsmönnum nær og fjær, gleðilegra jóla og farsælls komandi árs. Starfsfólk Ömmubaksturs ALVARLEGA SLÖSUÐ OG BÍÐA TÍMUNUM SAMAN Lena Kullberg-Boman á flugvellinum á Phuket ásamt manni sínum, Johnny Boman, og dóttur, Hönnu. Joel, 9 ára, var enn saknað. Þau höfðu beðið tímunum saman og vissu ekki hvenær þau fengju að fara heim. BJARGAÐI PABBA SÍNUM Niklas Svensson hoppaði út í flóðið og dró pabba sinn á þurrt þegar hann flaut út úr hótelinu. LIGGJA Á DÝNUM Mæðgurnar Else-Karin Eidsvåg og Cecilie Schübeler Mogstad lágu á dýnum á ströndinni þegar flóðbylgjan kom. Þær týndu hvor annarri en nokkrum dögum síðar lágu þær aftur á dýnum hlið við hlið – á sjúkrahúsinu.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.