Fréttablaðið - 31.12.2004, Qupperneq 10
10
Hjálp vegna hörmunganna í Asíu
berst víða að og er að mörgu að
hyggja. Hætta á smitsjúkdómum í
kjölfar jarðskjálftanna eykst gífurlega
vegna ástandsins á hörmungarsvæð-
unum. María Skarphéðinsdóttir sem
er með meistaragráðu í heilsu-
gæslulækningum í þróunarlöndum
er nýkomin frá Asíu þar sem hún
hefur starfað í eitt ár. Hún starfaði á
svæðisskrifstofu Alþjóða Rauða
krossins í Suður-Asíu þar sem hún
hafði umsjón með uppbyggingu
heilbrigðisstarfs Rauða krossins og
Rauða hálfmánans. Áður hefur hún
unnið fyrir Rauða krossinn í Malavíu
og Tanzaníu.
Hvers vegna er hætta á sjúkdóm-
um á svæðunum sem urðu fyrir
flóðbylgjunni?
Hættan á sjúkdómum kemur til
vegna þess að vatnskerfi og skólp-
kerfi bresta. Þá hefur fólk misst hús-
næði og er varnarlaust á berangri, oft
í mjög erfiðum aðstæðum.
Hvaða sjúkdómar geta komið upp?
Sjúkdómar sem fyrir eru á þessum
svæðum geta náð sér á strik í nýjum
aðstæðum þar sem hið venjulega
jafnvægi ríkir ekki. Það geta komið
ýmsar niðurgangspestir eins og kól-
era. Þá er hætt við malaríu á svæð-
um þar sem mikið af vatni er skyndi-
lega yfir stórum svæðum.
Moskítóflugum sem bera malaríuna
fjölgar.
Hvað er hægt að gera?
Óhjákvæmilega verður aukin tíðni
sjúkdóma við slíkar aðstæður sem
þarna eru núna. Hvort það nái far-
aldursmörkum veltur á því hversu
fljótt aðstoðin berst, hversu viðeig-
andi hún er og hversu fljótt tekst til
að koma grundavallarþörfum fólks-
ins í lag.
MARÍA SKARPHÉÐINSDÓTTIR
Hætt við kóleru
og malaríu
SJÚKDÓMAR Í KJÖLFAR JARÐ-
SKJÁLFTANS Í INDLANDSHAFI
SPURT OG SVARAÐ
Tala þeirra sem létust í jarðskjálftanum
norður af Súmötru annan í jólum fer sí-
fellt hækkandi. Mörg þúsund lík eru
brennd eða komið fyrir í fjöldagröfum
án þess að kennsl hafa verið borin á
þau. Eva Klonowski réttarmannfræðing-
ur segir nauðsynlegt að koma líkunum
fyrir sem fyrst en er hrædd um að ekki
séu gerðar ráðstafanir til hægt verði að
bera kennsl á þá sem létust.
Rotnun hefst eftir nokkra
klukkutíma
Hitinn á hamfarasvæðinu er stórt
vandamál. Líkin byrja að rotna eftir
nokkra klukkutíma þar sem hitastig á
svæðinu er í kringum þrjátíu stig.
Losna þarf við líkin sem fyrst af al-
mennum svæðum vegna lyktar og
hversu hættuleg þau geta verið fólki
vegna smithættu. Hætt er við að bakt-
eríur berist frá líkunum í fólk með
vatni eða flugum. Best væri að koma
líkunum fyrir í krufningafrysti en vegna
fjölda látinna er sá möguleiki ekki fyrir
hendi. Þess í stað þarf að koma líkun-
um fyrir í fjöldagröfum eða brenna
þau.
Engin undirbúningsvinna
Eva, sem unnið hefur við að bera
kennsl á fólk í fjöldagröfum í Bosníu frá
árinu 1996, segist hrædd um að engin
undirbúningsvinna til að bera kennsl á
þá látnu fari fram. Hægt væri að gera
ýmislegt eins og að taka andlitsmyndir
af líkunum og persónulegum munum
áður en þeim er komið fyrir í fjöldagröf-
um. Eins væri mjög gagnlegt að lífssýni
væru tekin og geymd til að hægt væri
að vinna úr þeim síðar með DNA-grein-
ingu. Erfitt er að bera kennsl á þá látnu
margra hluta vegna. Mörg líkin hafa
borist langa leið með sjó og margir
þeirra látnu eru ferðamenn sem eru
langt frá sínum heimkynnum.
Líkin brennd eða sett í fjöldagrafir
FBL - GREINING: LÍK LÁTINNA Á HAMFARASVÆÐINU
31. desember 2004 FÖSTUDAGUR
Mesta mannfall á friðartímum
Fjölskyldur hafa tvístrast, foreldr-
ar hafa misst börn sín og börn eru
orðin munaðarlaus eftir hamfarirn-
ar við Indlandshaf. Norðurlanda-
þjóðirnar hafa orðið illa úti. Þetta er
mesta mannfall á friðartímum í
Skandinavíu.
Féllust í faðma
Laila Freivalds utanríkisráð-
herra hitti slasaða sænska konu á
gangi sjúkrahúss á Phuket. Þær
þekktust ekki neitt en féllust í
faðma og fóru báðar að gráta.
Skömmu áður hafði Freivalds setið
og spjallað við föður sem hafði
misst tvö börn. „Það er hræðilegt
þegar maður hefur misst börnin
sín,“ sagði hún. Dóttir mannsins
hafði lifað af og sjálfur var maður-
inn í hjólastól. Móðir barnanna var
einnig á lífi en lá í öðrum sal.
Á flugvellinum
Þröng hefur verið á flugvöllum á
hamfarasvæðinu og slasaðir Norð-
urlandabúar bíða á flugvellinum eft-
ir flutningi heim. Lena Kullberg-
Boman er alvarlega slösuð og hefur
þurft að bíða klukkutímunum saman
á flugvellinum á Phuket með manni
sínum, Johnny, og dóttur sinni,
Hönnu. Þau vita ekkert hversu lengi
þau þurfa að bíða. Joel, níu ára son-
ar þeirra, er ennþá saknað.
Tommy Jonsson og dóttir hans,
Linn, höfðu ákveðið að fara um
borð í flugvélina og fara heim til
Svíþjóðar án þess að hin dóttirin
Mio hefði fundist eða móðir þeirra.
Á flugvellinum rétt áður en þau
áttu að fara í loftið heyrðu þau
kunnuglega kvenrödd tala um að
hún væri frá Vesturlöndum. Móðir-
in var fundin og það urðu miklir
fagnaðarfundir. Mio hefur ekki
fundist og Tommy telur rétt að
segja eins og er: Hún sé látin.
Pia fékk lánaðan farsíma
Pia Johansson, 54 ára, bjargaðist
úr flóðinu á Srí Lanka. Pia hafði lent
í bílslysi fyrir nokkru og gekk við
hækjur. Hún bjó á svæðinu á Srí
Lanka sem varð einna verst úti.
Ættingjar hennar voru mjög
áhyggjufullir og sumir höfðu jafn-
vel sætt sig við að hún væri látin.
En það breyttist í einu vetfangi. Í
fyrrakvöld tókst Piu að fá lánaðan
farsíma og hringja til að láta vita af
sér. Hún hafði verið á hótelinu þeg-
ar flóðið kom og ekkert slasast. Eft-
ir að hafa aðstoðað við björgunar-
störf var hún flutt í bænahús þar
sem hún var í nokkra daga án þess
að geta haft samband við umheim-
inn eða þar til hún fékk far til
Colombo, höfuðborgar Srí Lanka.
Niklas bjargaði pabba sínum
Niklas Svensson sá pabba sinn
fljóta burt með flóðbylgjunum,
hoppaði út í og bjargaði honum.
Christer bjó ásamt konu sinni Evu
og tveimur sonum, Niklas og Andr-
eas, á jarðhæð hótels á Srí Lanka.
„Íbúðin fylltist allt í einu af vatni.
Ég lá og synti uppi í loftinu. Ég hélt
að ég myndi ekki bjargast og var
gripinn ótta.“
Eiginkonu hans og sonum hafði
tekist að flýja upp á næstu hæð en
Niklas hoppaði út í þegar þau sáu
Christer skolast út. Honum tókst að
draga pabba sinn á þurrt. Gert var
að sárum Christers á sjúkrahúsi við
lélegar aðstæður; ljóstýra undir
þaki og engin deyfing. Engir veggir
voru á sjúkrahúsinu og fuglarnir
flugu í gegnum bygginguna.
Fimm daga á sjúkrahússganginum
Sjötug norsk kona, Else-Karin
Eidsvåg, bjargaðist á dýnu. Hún var
orðin góð eftir að hafa veikst af
krabbameini í vor. Hún og dóttir
hennar, Cecilie Schübeler Mogstad,
lágu á dýnum á ströndinni þegar
flóðbylgjan kom. Þær misstu hvor
af annarri en lifðu báðar af og end-
uðu með því að liggja aftur saman á
dýnum – á ganginum á sjúkrahúsinu
í nokkra daga. Mæðgurnar eru með-
al 15 slasaðra Norðmanna sem
komu með sjúkraflugi frá Phuket til
Noregs í gær.
Fann líkið eftir þrjá sólarhringa
Morten Aanstad fann 11 ára son
sinn, Martin, eftir þrjá sólarhringa.
Fjölskyldan bjó í fjölskylduhverfi í
Blue Village í Khao Lak. Fjölskyld-
an tvístraðist en foreldrarnir fundu
fljótlega hvor annan. Sonanna,
Mariusar og Martins, var saknað en
Marius fannst einum sólarhringi
síðar á hersjúkrahúsi í Bangkok.
Vonin lifði en tveimur sólarhringum
síðar fann Morten Martin liggjandi
í nafnlausri kistu á meðal hundruð
annarra sem hvorki er vitað um
nafn né þjóðerni á. Líkin liggja úti
undir beru lofti í 30 stiga hita, undir
laki eða í poka. Fáir liggja í kistu.
Foreldranna saknað
Fimm manna fjölskylda frá
Rogalandi í Noregi var í jólafríi í
Taílandi þegar flóðbylgjan kom.
Yngstu börnin, Sindre og Karoline,
slösuðust lítið og voru flutt heim á
þriðjudag. Þegar þau voru á leiðinni
heim fannst eldri systir þeirra,
Charlotte Bottolfsen Arntsen, á
sjúkrahúsi í Bangkok og í gær kom
hún heim til systkina sinna. Börnin
búa hjá afa og ömmu meðan for-
eldra þeirra er leitað. Ekkert hefur
heyrst frá þeim. Föðurbróðir systk-
inanna segir að enn sé von um að
foreldrarnir hafi bjargast en hún sé
farin að dvína.
Býr í tjaldi við norska sendiráðið
Ýmsar aðrar sögur má finna af
Norðmönnunum. Þannig segir einn
vefmiðillinn frá því að norsk fjöl-
skylda búi í tjaldi í garðinum við
norska sendiráðið á Srí Lanka því að
öll hótel sem eftir eru séu full.
Hildegunn Thiese og Øystein Aasen
frá Stafangri höfðu selt allar sínar
eigur til að kaupa og reka hótel á
suðurströnd Srí Lanka. Þau höfðu
boðið fjölskyldunni til sín um jólin.
Þau höfðu verið á ströndinni fyrr
um daginn og borðað morgunverð
þegar flóðbylgjan kom. Hótelið er
eyðilagt og reksturinn úti. Í bili að
minnsta kosti. En fjölskyldan er heil
á húfi.
Byggt á sænskum og norskum
vefmiðlum. ghs@frettabladid.is
Jólagjöf til þín
Það er sælla að gefa en þiggja, þess vegna höfum við hjá Ömmubakstri ákveðið
að bæta við einni flatköku í pakkana hjá okkur yfir jólin, þannig að þegar þú opnar
flatkökupakka næst, þá færðu fimm flatkökur í staðinn fyrir fjórar. Svo viljum við
óska öllum landsmönnum nær og fjær, gleðilegra jóla og farsælls komandi árs.
Starfsfólk Ömmubaksturs
ALVARLEGA SLÖSUÐ OG BÍÐA TÍMUNUM SAMAN
Lena Kullberg-Boman á flugvellinum á Phuket ásamt
manni sínum, Johnny Boman, og dóttur, Hönnu. Joel, 9
ára, var enn saknað. Þau höfðu beðið tímunum saman og
vissu ekki hvenær þau fengju að fara heim.
BJARGAÐI PABBA SÍNUM
Niklas Svensson hoppaði út í
flóðið og dró pabba sinn á
þurrt þegar hann flaut út úr
hótelinu.
LIGGJA Á DÝNUM
Mæðgurnar Else-Karin Eidsvåg og Cecilie Schübeler Mogstad lágu á dýnum á ströndinni þegar flóðbylgjan kom. Þær týndu hvor annarri
en nokkrum dögum síðar lágu þær aftur á dýnum hlið við hlið – á sjúkrahúsinu.