Fréttablaðið - 31.12.2004, Page 12
Steingrímur J. Sigfússon:
Gunguárið
Stjórnmálaskýrendur virðast al-
mennt sammála um að Steingrímur
J. Sigfússon hafi spólað í sömu förun-
um 2004 og áður.
„Spenna er
orðin meira
áberandi í sam-
skiptum Stein-
grims og Ög-
mundar, hún
kom fyrst upp á
yfirborðið í
eftirlaunamál-
inu í desember 2003,“ segir Pétur
Gunnarsson. „Uppákomur eins og
þegar Steingrímur kallaði Davíð
gungu og druslu eru að verða al-
gengari en áður, og þess vegna held
ég að hann sé ekki líklegur til að
spila vel úr þeirri góðu stöðu sem
skoðanakannanir gefa Vinstri græn-
um. Katrín Jakobsdóttir, fjölmiðla-
kona og varaformaður Steingríms er
auðvitað ósammála: „Árið var gott
hjá okkur Vinstri grænum og Stein-
grímur stendur keikur í brúnni.“ - ás
12 31. desember 2004 FÖSTUDAGUR
Stjórnmálamaður ársins:
Dramatískt ár Davíðs
Langflestir stjórnmálaspeking-
anna sem Fréttablaðið ræddi við
nefndu Davíð Oddsson þegar
spurt var um hver stæði upp úr í
íslenskum stjórnmálum á árinu.
Ólafur Teitur Guðnason
blaðamaður segir: „Davíð Odds-
son, sem mætti gífurlegu and-
streymi vegna fjölmiðlalaganna
og einnig vegna Íraksmálsins, en
hefur þrátt fyrir það sterka stöðu
nú í árslok. Þetta hefðu fáir leikið
eftir.“
Guðmundur Steingrímsson
kollegi hans segir: „Ég held að
Davíð Oddsson hafi náð að gera
svo marga fáránlega hluti á árinu
og segja svo margt illa ígrundað
og út í loftið að hann hlýtur að
standa upp úr.“
„Davíð Oddsson átti sviðið –
ekki alltaf í góðum skilningi,“ seg-
ir Egill Helgason. „Þetta var
dramatískt ár hjá honum – að bíða
pólitískan ósigur, veikjast sama
dag – koma aftur sem aftursætis-
bílstjóri í ríkisstjórninni.“
Pétur Gunnarsson
skrifstofustjóri segir að Davíð
hafi ekki verið jafn vinsæll í mörg
ár og einmitt nú: „Síðustu mánuði
hefur Davíð tekist á við sín erfiðu
veikindi af auðmýkt og þakklæti
og það hefur gefið tilfinningasam-
bandi hans við þjóðina nýja vídd.“
Egill Helgason í Silfrinu er að
vissu leyti sammála: „Davíð gekk
fram af þjóðinni á fyrri helmingi
ársins. Sýndi síðan gamla takta
þegar hann kallaði Samfylking-
una „afturhaldskommatitts-
flokk“.
Við annan tón kveður hjá
stjórnarliðum þegar rætt er um
Davíð „off the record“: „Þegar
Davíð veiktist var hann pólitískt
búinn eftir atburði ársins, flokks-
menn hans eins og aðrir búnir að
fá gjörsamlega nóg af sífelldum
gremjuköstum hans og óbilgirni.
Sjálfstæðismenn voru margir
farnir að tala eins og þeir efuðust
um að hann gengi heill til skógar
og vonuðust til að hann hætti.
Þetta er allt gleymt eftir veikind-
in og hann sýndi á sér gamlar og
löngu horfnar hliðar hjá Gísla
Marteini og í Fischer-málinu.“ - ás
Ár fjölmiðlafrumvarpsins
Stjórnmálaspekingar fjölmiðlanna eru á einu máli um að fjölmiðlafrumvarpið hafi verið helsta
málið í íslenskri pólitík á árinu. Sínum augum lítur þó hver silfrið.
STJÓRNMÁL Jafnvel þótt skattar hafi
verið lækkaðir, borgarstjóri sagt
af sér, íslensk fyrirtæki haslað sér
völl á erlendri grund sem aldrei
fyrr og að þjóðlífið hafi lamast
vegna kennaraverkfalls voru allir
viðmælendur Fréttablaðsins á
einu máli um að fjölmiðlafrum-
varpið stæði upp úr. Rætt var við
vel á annan tug manna sem hafa
að atvinnu að rýna í stjórnmál.
Egill Helgason, Silfri Egils,
orðaði þetta svo: „Þarf að spyrja:
Synjun Ólafs Ragnars á fjölmiðla-
lögunum. Segja það ekki allir?“
Keppinautur hans um hylli
áhugamanna um pólitík á sunnu-
dögum, Guðmundur Steingrims-
son á Skjá einum, er sammála um
að synjun Ólafs Ragnars standi
upp úr: „Atburðurinn var sveipað-
ur dramatískum blæ, eftirvænting
ríkti eftir ákvörðun forsetans og
þjóðin horfði á hann gefa yfirlýs-
inguna í beinni útsendingu.“
Ólafur Teitur Guðnason, stjórn-
málablaðamaður Viðskiptablaðs-
ins og liðsmaður Guðmundar á
Skjá einum, var á öndverðum
meiði við hina tvo fyrrnefndu í
málinu en sammála um stærð
málsins á árinu en bætir við:
„Næststærsti atburðurinn var lík-
lega hið ótrúlega litla fylgi sem
forsetinn hlaut í kosningum í kjöl-
farið; það var einsdæmi fyrir sitj-
andi forseta.“
Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir,
þingfréttamaður Sjónvarpsins,
bendir á annan flöt: „Fyrir blaða-
mann sem ekki er í Blaðamanna-
félaginu, eins og ég, var líka ansi
sérstakt að fylgjast með formanni
þess félags beita sér opinberlega
gegn þessari fyrirhuguðu laga-
setningu.“
Flestir nefna átök þegar spurt
er um hvað hafi einkennt árið.
Ólafur Teitur: „Margir fréttamenn
gáfu ekkert eftir í átökum við rík-
isstjórnina, lögðu banana að dyr-
um Alþingishússins og einn fræg-
asti fréttamaður landsins hvatti
mótmælendur á Austurvelli til
þess að „velta borðum valdníðing-
anna“, eins og hann orðaði það.“
Pétur Gunnarsson, þaulreynd-
ur stjórnmálablaðamaður sem nú
starfar fyrir þingflokk Framsókn-
arflokksins. segir að 2004 hafi ver-
ið eitthvert mesta átakaár í póli-
tíkinni frá áttunda áratugnum.
Um beitingu synjunarvaldsins
segir hann: „Hún setti af stað
stjórnskipunarlega krísu en veitti
um leið tilefni og tækifæri til þess
að vinna úr málinu með því að
halda áfram að þróa stjórnarskrá
landsins.“
a.snaevarr@frettabladid.is
Mesta axarskaft ársins:
Dijon-sinnep
finnst í Írak
STJÓRNMÁL Fjölmiðlafrumvarpið
nefna flestir sem axarskaft ársins
en fast á hæla þess koma mál frið-
argæslunnar.
Katrín Jakobsdóttir, Skjá einum,
segir: „Mesta axarskaftið hlýtur að
vera forsíða Moggans sem skipt
var um í miðri prentun til að koma
að þeim stórtíðindum að íslenskir
sprengjusérfræðingar hefðu fund-
ið sinnepsgas í Írak. Utanríkisráð-
herra kallaði þetta heimsviðburð og
þrjóskaðist lengi við þá söguskoðun
sína þó að fljótlega kæmi í ljós að
sinnepsgasið var skyldara
díjónsinnepi en efnavopnum.“ - ás
TÁKNRÆN MYND FYRIR ÁTAKAÁRIÐ 2004
Þingforseti segir við þingsetningu að synjunarvald forseta eigi rætur að rekja til valds
konungs „af Guðs náð“ og Helgi Hjörvar gengur á dyr.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
DAVÍÐ ODDSSON
Stóð upp úr í íslenskum stjórnmálum.
Lagði fram umdeild fjölmiðlalög, beið póli-
tískan ósigur, veiktist hættulega, vék úr for-
sætisráðuneytinu eftir 13 ár en hefur átt
„comeback“ sem utanríkisráðherra.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Halldór Ásgrímsson er á hátindi
ferils síns, orðinn forsætisráð-
herra þrjátíu árum eftir að hann
settist á þing og rúmum tuttugu
árum eftir að hann settist fyrst í
ríkisstjórn. „Halldór er fylgislaus
forsætisráðherra. Hefur átt í
miklum vandræðum með Íraks-
málið og hrakist úr einu horni í
annað með það,“ segir Egill
Helgason í Silfri Egils.
Pétur Gunnarsson skrifstofu-
stjóri segir að forsætisráðherra-
tíð Halldórs hafi farið af stað með
glæsibrag. Hann leitist við að ná
samstöðu og forðast átök eins og
sést hafi í kennaradeilunni og
skipan stjórnarskrárnefndar.
„Það hafa margir kallað eftir slík-
um vinnubrögðum og þau munu
skila Halldóri auknum vinsæld-
um.“
Flokksbróðir Halldórs sem
starfar á Alþingi viðurkennir hins
vegar að árið hafi verið Halldóri
erfitt: „Hann ákvað að fórna ekki
stjórnarsamstarfinu í fjölmiðla-
málinu þótt Davíð gengi fram eins
og hann gerði. Þetta hefur kostað
Halldór meira pólitískt en Davíð,
alveg eins og Íraksstríðið. Innan-
flokks var nánast samfelld upp-
reisn í gangi og Kristinn H. hlýtur
að bjóða sig fram til formennsku
á flokksþingi á næsta ári.“ - ás
Halldór Ásgrímsson:
Fylgislaus á hátindi ferilsins
Guðjón A. Kristjánsson:
Tapað fundið
Guðjón A. Kristjánsson og Frjáls-
lyndi flokkurinn ganga sífellt betur
í takt við vinstri flokkana í stjórnar-
andstöðu. „Mað-
ur hefur stund-
um þurft að
klípa sig í kinn-
ina til að muna
að Addi Kitta
Gauj hafi ein-
hvern tímann
verið í Sjálf-
stæðisflokkn-
um. Fæstir viðmælendur Frétta-
blaðsins höfðu nokkra skoðun á
frammistöðu hans eða flokks hans:
„Þeir týndust endanlega í ár,“ sagði
þó einn. „Guðjón A. vantar hrein-
lega fleiri góða liðsmenn til að geta
veitt forystu,“ segir Katrín Jakobs-
dóttir, Skjá einum. Fylgismenn
Frjálslyndra láta sér fátt um finnast
og benda á að svipað hafi verið sagt
um flokkinn í síðustu borgarstjórn-
arkosningum og þingkosningum:
„Sá hlær best sem síðast hlær.“ - ás
Árið 2004 var ekki ár nýliða í ís-
lenskum stjórnmálum: „Athyglis-
verðustu nýliðarnir í pólitík eru
kannski öll þessi kinnarjóðu,
gagnrýnislausu, bústnu gamal-
menni úr öllum flokkum sem hafa
sest á þing, í peysufötunum sínum,
í krafti þess að þau séu fulltrúar
ungu kynslóðarinnar“, segir Þóra
Kristín Ásgeirsdóttir, frétta-
maður. Guðmundur Steingríms-
son, Skjá einum, segir Bjarna
Benediktsson hafa komið sterkan
inn. Einn nefndi Illuga Gunnars-
son: „Hvort tveggja sjónvarps-
maður og eiginlegur utanríkisráð-
herra landsins.“ Stefán Jón
Hafstein, borgarfulltrúi segir:
„Það er athyglisverðast hve marg-
ir þeirra hafa elst fljótt.“ - ás
Össur Skarphéð-
insson þykir
koma frekar vel
út úr árinu 2004 -
innan Samfylk-
ingarinnar að
minnsta kosti:
„Össur hefur
frekar styrkt
stöðu sína en hitt,
það er að segja í
valdabaráttu við Ingibjörgu Sól-
rúnu. Út á við er alltaf spurning
um trúverðugleika hans. En flokk-
urinn virðist
nokkuð stöðugur í
meira en 30 pró-
sentum“, segir
Egill Helgason.
Jóhanna Vigdís
tekur undir það:
„Össur virðist
hafa verið í góð-
um gír á árinu.“
Pétur Gunn-
arsson er ósammála: „Össur er
ekki að ná tökum á sínu hlutverki
og bommertur hans eru legíó.“ - ás
Össur Skarphéðinsson:
Spurt um trúverðugleika
Nýliðar ársins:
Gamalmenni í peysufötum
Tíu minnisstæð-
ustu ummælin
„En Samfylkingin er eins og gamall
afturhaldskommatittsflokkur og
ætlar sér aldrei að verða stór.“
Davíð Oddsson utanríkisráðherra,
29. nóvember 2004.
„Ég tel að hér sé um að ræða
heimsatburð,“ sagði Halldór. „Ég er
stoltur og þakklátur íslensku sér-
fræðingunum fyrir þeirra stóra þátt
í þessu máli.“
Halldór Ásgrímsson, þá utanríkisráðherra,
9. janúar 2004 um meintan sinnepsgas-
fund Íslendinga í Írak.
„Það var einhver símastrákur hjá
Samfylkingunni sem var spurður að
þessu með virðisaukaskattinn. Það
kannast enginn við að hafa svarað
þessu.“
Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar 30. nóvember 2004.
(Símastrákurinn reyndist vera Jóhann Ár-
sælsson alþingismaður.)
„Meinfýsnishlakkandi úrtölumenn
víða um heim hafa einblínt á erfið-
leikana sem vissulega er við að
etja í Írak og virðast telja deilur um
aðdraganda innrásarinnar skipta
meira máli en frelsi og framtíðar-
vonir Íraka.“
Davíð Oddsson utanríkisráðherra,
11. nóvember 2004.
„Ég hlýt að líta svo á og það skal þá
standa að Davíð Oddsson sé slík
gunga og drusla að hann þori ekki að
koma hér og eiga orðastað við mig.“
Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstri grænna, 14. maí 2004.
„Jafnréttislögin eru barn síns tíma.“
Björn Bjarnason
um jafnréttislögin, 7. apríl 2004.
„Það er ekki að ástæðulausu sem
fjölmiðlar eru kallaðir hrægammar.“
Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi
R-listans, 5. nóvember 2004.
„Ég veit ekkert um þetta meinta
samráð olíufélaganna.“
Sólveig Pétursdóttir, fyrrverandi dómsmálaráð-
herra og eiginkona Kristins Björnssonar, fyrr-
verandi forstjóra Skeljungs, 1. nóvember 2004.
„Ég tek ekki við skipunum frá mið-
aldra mönnum.“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamála-
ráðherra, Ríkissjónvarpinu 24. október 2004.
„Synjunarákvæði stjórnarskrárinnar
eru leifar af þeirri trú að konungurinn
- einvaldurinn - fari með guðs vald.“
Halldór Blöndal, forseti Alþingis,
30. september 2004.