Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.12.2004, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 31.12.2004, Qupperneq 22
VIÐ ÁRAMÓT Um miðjan september sl. lét Davíð Oddsson af embætti forsætisráðherra eftir að hafa gegnt því lengur en nokkur annar. Aðrar breytingar eru því miður litl- ar; sama stjórnarstefna og sama ríkisstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn ræður ferðinni og hefur það aldrei verið augljósara en nú síðustu vik- urnar hvort sem litið er til skatta- mála, utanríkismála eða þess hvernig einstakir ráðherrar Fram- sóknarflokksins eru beygðir í duft- ið. Fundarstjórn Halldórs Ásgríms- sonar á ríkisstjórnarfundum í um- boði og skjóli Sjálfstæðisflokksins sætir litlum tíðindum. Hrifning þjóðarinnar er takmörkuð, ef marka má skoðanakannanir og skal engan undra jafn þreytulegt og allt yfirbragð landsstjórnarinnar er og breytinga því sannarlega þörf. Spurningin er ekki hvort heldur hvenær og hvernig þær verða. Hið ólögmæta árásarstríð Bandaríkjamanna og Breta gegn Írak á upplognum forsendum og það hvernig nafn Íslands var bendl- að við þá aðgerð, er fleinn í holdi ís- lenskrar þjóðarsálar um þessar mundir. Stríðið hefur kallað miklar viðbótarhörmungar yfir íröksku þjóðina. Mannfall skiptir fleiri tug- um ef ekki hundruðum þúsunda og sér hvergi fyrir endann á ósköpun- um. Davíð Oddsson og Halldór Ás- grímsson, sem bera ábyrgð á því að nafn Íslands birtist á lista yfir hin- ar vígfúsu stuðningsþjóðir, fara undan í flæmingi þegar óskað er upplýsinga um aðdraganda þeirrar ákvörðunar. Öll er þessi saga skóla- bókardæmi um það hvernig ekki á að gera hlutina og hvernig ekki á að taka mikilvægar ákvarðanir sé lýð- ræði og þingræði haft að leiðar- ljósi. Ríkisstjórnin berst um á hæl og hnakka við að ríghalda í óbreytt ástand í herstöð- inni í Keflavík. Forsæt- isráðherra og utanríkis- ráðherra, að ógleymd- um Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra , virðist það alveg sér- stakt sáluhjálparatriði að hér skuli áfram vera fjórar gamlar óvopnað- ar F15 þotur. Efling sér- sveitar hjá ríkislög- reglustjóra, leyniþjón- usta undir sama emb- ætti og vopnaburður ís- lenskra ríkisborgara þar sem verið er að taka til eftir styrjaldir Bandaríkjamanna eru sérstök gæluverkefni þessarar ríkisstjórnar og skortir aldrei fé til slíkra hluta. Afleiðingar stóriðjustefnu Gríðarlegur og vax- andi viðskiptahalli, þensla og aukin verðbólga sem nú ber að dyrum voru allt fyrirsjáan- legar afleiðingar af hinni óheftu og hömlulausu stóriðjustefnu. Ruðn- ingsáhrif stóriðjufjárfestinganna koma nú fram í okkar litla hagkerfi með vaxandi þunga. Raungengi krónunnar er við sögulegt hámark. Seðlabankinn hækkar vexti og af- koma útflutnings- og samkeppnis- greina, s.s. sjávarútvegs, ferða- þjónustu og iðnaðar hefur hríð- versnað. Reikningurinn af ruðn- ingsáhrifum stóriðjunnar er greiddur af hinu almenna atvinnu- lífi í formi versnandi afkomu og glataðra tækifæra á þeim vett- vangi. Ríkisstjórnin hellir svo olíu á eldinn með því að lögfesta stór- felldar skattalækkanir langt fram í tímann sem er efnahagslegt glapræði við núverandi aðstæður um leið og það veikir undirstöður velferðarsamfélagsins. Skatta- stefnan sem slík er ómenguð hægri stefna og til vitnis um það eru sér- stök gleðilæti Péturs Blöndal og annarra þingmanna yst á hægri- nýfrjálshyggju vængnum. Er ekki að ósekju að sumum hafi orðið á að kalla Framsóknarflokkinn, sem allt lét þetta þegjandi yfir sig ganga, „litla íhaldið“. Til lengri tíma litið er viðskipta- hallinn og hinar gríðarlegu erlendu skuldir þjóðarbúsins lang alvarleg- astar. Íslendingar eru við að slá hvert vafasama heimsmetið á fæt- ur öðru í þeim efnum. Heimili og fyrirtæki á Íslandi eru með þeim skuldsettustu sem fyrir- finnast innan aðildar- ríkja Efnahags- og fram- farastofnunarinnar. Og sveitarfélögin og þjóðar- búið í heild safna skuld- um sem aldrei fyrr. Siðferðilegt skipbrot Á sviði umhverfis- mála höfum við Íslend- ingar sitthvað að svara fyrir um þessar mundir. Á sama tíma og ráða- menn okkar lýsa áhyggj- um af gróðurhúsaáhrif- um og hlýnun lofthjúps- ins og taka þátt í því, ekki síst með öðrum þjóðum norðurslóða, að álykta um mikilvægi þess að dregið verði úr losun, telja þeir hinir sömu sjálfsagt að við fáum enn frekari undanþágur til að menga meira. Bygging Kárahnjúkavirkjunar er siðferðilegt skipbrot núlifandi kynslóðar í umhverfis- málum, að vísu fyrst og fremst á ábyrgð örfárra stjórnmálamanna. Sem ein ríkasta þjóð heimsins á upplýsingaöld höfum við enga af- sökun ef við vitandi vits völdum svo stórfelldum óafturhverfum náttúruspjöllum eins og þar verða. Íslendingar hafa nú búið við hægri sinnaðar ríkisstjórnir í um einn og hálfan áratug og þess sér víða merki í samfélaginu. Misskipt- ing hefur aukist og á ýmsan hátt hefur Ísland sveigt af leið og siglir út úr fjölskyldu hinna norrænu vel- ferðarríkja. Það er því meira en tímabært að staldra við og spyrja grundvallar- spurninga um samfélagsgerðina. Viljum við áfram tilheyra hinni norrænu fjölskyldu samábyrgra velferðarþjóðfélaga jafnaðar og jafnréttis eða ætlum við að sækja okkur fyrirmyndir í meira mæli annað? Almannaþjónusta án endurgjalds Þær víglínur sem kristallast í umræðum um skattamál um þessar mundir eru sláandi. Annars vegar eru loforðaflokkarnir en hins vegar Vinstrihreyfingin - grænt framboð sem leggur höfuðáherslu á að varð- veita, byggja upp og þróa áfram samábyrgt norrænt velferðarsam- félag. Við viljum að ríki og sveitar- félög, sjálfseignarstofnanir og fé- lagasamtök hafi úr traustum tekju- stofnum að spila til að geta veitt mikilvægustu velferðar- og al- mannaþjónustu án endurgjalds. Það er bjargföst sannfæring mín að fáar aðrar þjóðir eigi jafn stór- kostlega möguleika til að byggja upp og þróa farsælt, sjálfbært vel- ferðarsamfélag og Íslendingar. Við erum ung og vel menntuð þjóð og höfum fengið til búsetu og varð- veislu stórkostlegt land ríkt af auð- lindum og möguleikum. Ef við ber- um gæfu til að varðveita samheldni og félagslega vitund, verjumst stéttaskiptingu og misrétti sem ávallt leiðir til sundrungar að lok- um og glötum ekki úr höndum okk- ar þeirri auðlegð sem fólgin er í sjálfstæði okkar og sjálfsákvörðun- arrétti, þá þurfum við engu að kvíða. Fyrir hönd Vinstrihreyfingar- innar - græns framboðs þakka ég landsmönnum samfylgdina á árinu og þann stuðning og hljómgrunn sem málflutningur okkar hefur fengið. Ég óska lesendum og lands- mönnum góðs og gæfuríks komandi árs. ■ Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs: Breytinga er þörf 22 31. desember 2004 FÖSTUDAGUR STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON VIÐ ÁRAMÓT Undanfarna daga hefur veturinn minnt á sig og látið okkur vita að Ísland er norður við heim- skautsbaug. Við virðumst, þegar þetta er ritað, hafa verið svo lánsöm að missa ekki fólk í ógnar- öldum jarðskjálfta við Indlandshaf. Þar eiga margir um sárt að binda og eiga þeir samúð okkar. Stóriðjuframkvæmdir Hinar gríðarmiklu stóriðjufram- kvæmdir á Austurlandi samfara stækkun Norðuráls og orkuöflun á Suðvesturhorninu vegna þess, hafa nú mikil áhrif á efnahagsumhverfið í landinu. Aukin einkaneysla, drifin áfram með miklum lánum banka og lánastofnana, eykur á þenslu sem þó mælist lítt víða á landsbyggð- inni. Það ber að vara sérstaklega við mikilli skuldsetningu fyrir- tækja og heimilunum er beinlínis hættulegt að taka lán í erlendum gjaldmiðlum. Afleiðingin er hækk- un vaxta, aukin verðbólga og þensla, samfara mjög auknum við- skiptahalla. Allt hættumerki og áhrifin önnur á landsbyggðinni utan Miðausturlands. Sjávarútvegur Hátt gengi íslensku krónunnar veldur útflutningsgreinum sjávar- byggða og fólki sem þar býr mikl- um vanda. Þensla í framkvæmdum, aukinni atvinnu og mikilli hækkun fasteignaverðs, sést lítt víða á landsbyggðinni sem nú verður fyr- ir ruðningsáhrifum stóriðjufram- kvæmda. Vandséð er að landsbyggðin þoli gengis- og vaxtastefnuna til langs tíma. Starfsskilyrði samkeppnis- iðnaðar og sjávarútvegs eru slök. Vandinn er alvarlegur og gæti orð- ið atvinnubrestur í byggðum sem byggja allt sitt á hefðbundnum út- flutningi. Kvótakerfið með frjálsu fram- sali fiskveiðiréttinda hefur veikt byggðir og fært burtu fiskveiðiréttinn. Loforð um að smábátar væru utan kvótakerfis og að sérstaklega yrði varinn fiskveiði- og atvinnu- réttur minni sjávar- byggða og fólks sem þar býr, voru svikin. Öll handverk ráðherra fjölga fisktegundum sem eru kvótabundnar og gera þá sem veiðarn- ar stunda að leiguliðum “rétthafanna“. Hlýsjór og líffræði Með hlýsjó norðan við landið og innfjarða breytist margt um fram- tíðarnýtingu fisks. Aldrei, síðan undirritað- ur fór að fylgjast með náttúrufæri, hefur verið meiri ástæða til að auka haf- og fiskrannsóknir. Til þess eigum við góð hafrannsóknaskip en við eigum að efla sjálfstæðar rann- sóknir vísinda og sjómanna án þess að öll þekkingarleit í hafi sé mið- stýrð af Hafrannsóknastofnun. Þorskurinn af Íslandsmiðum mun leita til Austur-Grænlands í fæðuleit og verður veiddur af þeim sem þar hafa veiðirétt. Þorskurinn, okkar verðmætasta fisktegund, leitar í kaldsjóinn eftir fæðu. Grænlendingar munu ekki láta þorskinn éta upp rækjuna á sínum slóðum fái þeir því ráðið. Viðburðir ársins Heimastjórnarafmælið var svið- sett, enda 100 ár nægt tilefni. Held- ur urðu þau hátíðahöld til leiðinda okkar ráðherrum og þjóðinni, enda var forseta Íslands ekki ætlaður staður né stund í þeim atburðum. Ný samskiptatækni veraldar dugði ekki til þess að forseta Íslands væri möguleg setan á ríkisráðsfundi. Verkið var eitt af skipulagðari verkum ríkisstjórnar. Heimastjórn- arlætin ollu þó þjóðinni litlum skaða. Fjölmiðlafárið sem ríkisstjórnin hóf með fyrstu útgáfu af „full- komnu lagafrumvarpi“ varð hins vegar til nokkurs skaða, enda upp- lag málsins og eftirfylgja öll á þann veg að stórdeilum olli. Þegar lögin voru samþykkt í 5. útgáfu ákvað forseti að neita lögunum staðfest- ingar. Forseti byggði á stjórnar- skránni og neitaði undirskrift og vísaði málinu til þjóðarinnar. Það þótti stjórnarliðum, einkum forsæt- is- og utanríkisráðherra, slík undur og stórmerki að rétt væri að kalla Alþingi saman og stöðva þennan feril málsins. Á sérstöku sumar- þingi var allt gleypt til baka af sömu þingmönnum og áður sam- þykktu og hafði í ferlinu tekist að eyða nokkrum tugum milljóna króna í ekki neitt, en þjóðinni var meinað að sýna af- stöðu sína í þjóðarat- kvæðagreiðslu. Að öðru leyti sluppum við skað- laust frá þessu máli, en tíminn gat nýst til betri verka. Hinir staðföstu En sama verður ekki sagt um mál sem Davíð Oddsson og Halldór Ás- grímsson ákváðu að sam- þykkja og fylgja í trássi við meirihluta þjóðar og án þingvilja, því ákvörð- unin var ekki rædd, þ.e. Íraksstríðið. Þeir tóku ákvörðun austur í Prag, að Ísland sem aldrei vildi fara með ófriði á hendur öðrum þjóðum né eiga beinan þátt í hernaðarað- gerðum, skyldi styðja innrásina í Írak. Áratuga friðar- stefna Íslendinga var aflögð án samráðs sem lögbundið er við utan- ríkismálanefnd Alþingis. Ráðherr- ar eru nú orðnir tví- og þrísaga um málsmeðferð alla og upplýst er að í þingflokki núverandi forsætisráð- herra hafi málið aldrei verið rætt. Þær hörmungar sem ganga yfir írönsku þjóðina og við berum að hluta ábyrgð á, eru hörmulegar og valda öllum sem sjá og heyra sorg í hjarta. Við eigum að segja okkur af lista þeirra viljugu og staðföstu. Ég styð að lýst verði yfir að ákvörðun- in hafi ekki verið tekin í mínu nafni og vona að sem flestir Íslendingar styðji þá yfirlýsingu. Frjálslyndi flokkurinn Starfsemi Frjálslynda flokksins eflist á landsvísu með aukinni þátt- töku í sveitarstjórnarmálum, nú síðast með því að leggja lið sigur- sælum lista félagshyggjufólks aust- ur á Héraði. Ný bæjarmálafélög Frjálslyndra hafa verið stofnuð. F- listinn á borgarfulltrúa í Reykjavík og bæjarfulltrúa á Ísafirði. Mynd- aður hefur verið vinnuhópur um borgarmál. Ung frjálslynd, ungliða- hreyfing Frjálslynda flokksins, hef- ur starfað af fullum krafti og valið tvær ungar konur til forystu, Krist- ín María Birgisdóttir háskólanemi er formaður og Ragnhildur Ragn- arsdóttir tölvunarfræðingur vara- formaður. Þann 4.-5. mars nk. verður lands- þing flokksins haldið í Reykjavík, en það mótar stefnu flokksins bæði á almennum, breiðum grundvelli, jafnt sem í einstökum málaflokk- um. Mismunun Stefna ríkisstjórnarinnar frá kosn- ingum í skatta- og velferðarmálum er í andstöðu við áherslur Frjáls- lynda flokksins. Í fjárlögum, haust- ið 2003 voru auknar álögur á lands- menn um 3 milljarðar króna, en há- tekjuskattar lækkaðir. Í haust er hátekjuskattur lækkaður og felldur niður 2006. Lækkun skattprósentu kemur best út fyrir þá sem hæst hafa launin. Mismunun vex og er í algjörri andstöðu við þá jöfnunarleið sem við vildum fara: að hækka persónu- afsláttinn og létta skattbyrði þeirra sem lægst hafa launin eða eru á elli- og örorkulífeyri. Samtök aldraðra, öryrkja og ASÍ hafa ályktað á sama veg. Ríkisstjórnin er að auka gjald- töku á þegna óháð tekjum, síðast í heilbrigðiskerfinu. Breytinga er ekki að vænta meðan þessi ríkis- stjórn heldur völdum. Þess vegna verður að setja hana af, allt annað er ávísun á aukið misrétti og tekjumun þegnanna. Ég óska landsmönnum öllum árs og friðar. ■ GUÐJÓN A. KRISTJÁNSSON Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins: Hátt gengi veldur vanda
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.