Fréttablaðið - 31.12.2004, Síða 26
26 31. desember 2004 FÖSTUDAGUR
Þ að mætti halda að IngibjörgGrétarsdóttir væri náskyldBáru bleiku. Bleiki liturinn
er í aðalhlutverki í verslun hennar
og testofu og er í raun gunntónn-
inn í lífi hennar. Frú fiðrildi situr
aðeins í bleikum rókókó-húsgögn-
um, drekkur úr bleikum postu-
línsbollum og gæðir sér á bleikum
marengstoppum. Þess á milli sval-
ar hún skreytiþröf sinni með því
að flögra um heimilið og gera
fallegt.
„Ég dýrka fiðrildi og nota þau
mikið heima fyrir til skrauts. Ég
væri mjög mikið til í að vera með
vængi svo ég gæti flögrað um
heiminn og gert hann fallegri.
Mér finnst ég vera Frú fiðrildi,“
segir Ingibjörg og brosir sínu
blíðasta. Hana hef-
ur dreymt um að
vera með eigin
verslun síðan
hún var ung-
lingur. Hún
stundaði um
tíma hönn-
unarnám í
Danmörku
en er nú
alkomin heim og búin að láta
drauminn rætast.
Vörurnar sem seldar eru í Frú
fiðrildi koma allar frá Danmörku.
Sumar eru splunkunýjar en aðrar
hefur Ingibjörg fundið á mörkuð-
um. Í Frú fiðrildi er öllum vörun-
um blandað saman svo úr verður
sérstakur ævintýraheimur. Í
framtíðinni stefnir hún á að vera
með púða og fleira í þeim dúr sem
hún lætur sauma eftir eigin hug-
myndum.
„Það væri líka gaman að vera
með svolítið af fötum. Búðin er
það lítið að hún býður ekki upp á
neitt mikið, stórar fataslár myndu
alveg eyðileggja stemmninguna.
En nokkrir undirkjólar og nærbol-
ir í rómantískum stíl myndu alveg
gera sig. Og ef ég hnýt um fallega
kjóla á mörkuðum þá mun ég að
sjálfsögðu koma með þá heim og
selja hér.“
Reykjavík er málið
Veröld Ingibjargar er bleik með
hvítum og túrkislituðum áhrifum.
Aðspurð að því hvort hún sé eitt-
hvað skyld Báru bleiku segir hún
að Bára sé í miklu uppáhaldi hjá
henni.
„Ég er búin að velta því mikið
fyrir mér að bjóða henni í heim-
sókn. Ég rakst einmitt á gamalt
eintak af Heimsmynd um daginn
þar sem Vala Matt var mynduð
hjá Báru. Mér fannst þetta rosa-
lega flott. Ég er þó meira fyrir að
blanda bleika litnum með hvítu en
gulli. Mér finnst fallegast að
blanda þessu bleika með franskri
antíkstemnningu.“
Eftir að hafa dvalið um nokk-
urra ára skeið í Danmörku er
Ingibjörg búin að finna út að hún
vill hvergi annars staðar vera en í
Reykjavík. „Mér finnst miðbær-
inn hafa lagast alveg rosalega.
Mér brá rosalega ein jólin þegar
ég kom heim því þá var svo mikið
um autt húsnæði við Laugaveginn
til leigu. Það er allt annað uppi á
teningnum núna. Það er komið
miklu meira af litlum sætum búð-
um og miklu meira líf í bæinn.
Annars finnst mér ekkert hafa
breyst nema bara viðhorfið hjá
sjálfri mér. Ég er miklu hamingju-
samari og glaðari. Áður fyrr
hataði ég Ísland en það var bara
af því að ég var ekki ánægð sjálf.
Það sem spilar eflaust inn í er að
þá bjó ég í Breiðholti, núna er ég
komin í miðbæinn og búin að öðl-
ast innri ró.“
Yndisleg innpökkun
Ekki er stressinu fyrir að fara í
litlu krúttbúðinni hjá Frú fiðr-
ildi. Í einu horninu er skrifborð
með fullt af flottum pappír og
öðru glingri.
„Mér hefur alltaf þótt æðis-
lega gaman að pakka inn og
fengið útrás fyrir mína listrænu
hæfileika í því. Mér finnst ótrú-
lega mikilvægt að gjafir séu
fallega pakkaðar inn. Það er svo
gaman að gefa og ennþá
skemmtilegra þegar fólk tímir
ekki að opna pakkana því þeir
eru svo fallega pakkaðir inn,“
segir Inga. Innpökkunin stendur
þó ekki bara þeim til boða sem
kaupa vörur af Frú fiðrildi held-
ur getur fólk labbað inn af göt-
unni með gjafir og jafnvel feng-
ið sér tesopa meðan það bíður. Á
testofunni er það sama uppi á
teningnum. Nostrað við allt.
Skonsurnar eru heimatilbúnar
ásamt öllu bakkelsi. Frú fiðrildi
er ákaflega fjölhæf. ■
Í Ingólfsstræti 8 var
verslunin og testofan
Frú fiðrildi opnuð á
dögunum. Nafnið kom
af sjálfu sér því eigand-
anum finnst fátt
skemmtilegra en að
flögra um og gera um-
hverfið enn fallegra.
Marta María Jónasdótt-
ir lét Frú fiðrildi dekra
við sig með ilmandi tei,
marengstoppum og
góðum hugmyndum
fyrir heimilið.
Bára bleika nútímans
Ég dýrka fiðrildi og
nota þau mikið
heima fyrir til skrauts. Ég
væri mjög mikið til í að vera
með vængi svo ég gæti
flögrað um heiminn og gert
hann fallegri.
,,
HJÁ FRÚ FIÐRILDI Rómantíkin er allsráðandi, innan um kertaljós og marenstoppa er
hægt að kíkja í dönsku blöðin. Ingibjörg hefur unun af því að pakka inn gjöfum. Eins og
sést á myndinni til hægri er hún með mjög spennandi pakkaskraut.