Fréttablaðið - 31.12.2004, Síða 32

Fréttablaðið - 31.12.2004, Síða 32
32 31. desember 2004 FÖSTUDAGUR Þann fjórtánda maí síðastliðinn hrópaði Steingrímur J. Sigfússon úr ræðustól Alþingis að Davíð Oddsson væri „drusla“. Maður trúði vart útvarpinu. Var þetta virkilega að gerast? Um kvöldið kom Davíð í sjónvarpsfréttir og gerði gott betur. Forsætisráð- herra sagði forseta Íslands van- hæfan til afgreiðslu á fjölmiðla- lögunum þar sem dóttir hans starfaði hjá Baugi. Maður trúði vart sjónvarpinu. Sagði maðurinn þetta virkilega? Íslensk stjórnmál höfðu náð nýjum botni. Ráðherr- ann hafði reddað Steingrími Joð frá sögulegri skömm: Og sann- reynt orð hans: Dabbi var í alvör- unni drusla. Kvöldið sem Davíð birtist með geðveikisglampann í augunum frammi fyrir Vigdísi Hjaltadóttur og okkur hinum til að djöflast á dóttur forsetans var hann settur dómsmálaráðherra í forföllum Björns Bjarnasonar. Davíð sat því með son sinn sem aðstoðarmann, sem skömmu áður hafði aðstoðað ráðherrann við að troða frænda þeirra feðga í Hæstarétt, þvert á öll lögfræðileg hæfnismöt. For- sætisráðherra var því nokkuð fjölhæfur þetta kvöld, ef ekki al- hæfur. En alls ekki vanhæfur. Geðveikur leiðtogi Við vissum alltaf að Davíð væri geðveikur leiðtogi en nú hvarflaði allt í einu að okkur að taka þau orð bókstaflega. Var karlinn á leið yfir um? Hann hafði jú lengi stefnt þangað. Misserin á undan hafði hann skammað Hæstarétt eins og skólabekk, kallað stjórnar- andstöðuna „dóna“ í beinni, fengið biskupinn til að íhuga málsókn gegn sér, og þegið í staðinn mót- mæli frá öllum prestum landsins, sönnunarlaust sakað stærsta for- stjóra landsins um að ætla að múta sér, hellt sér yfir nokkra óleiðitama fréttamenn í votta viðurvist og hringt í umboðsmann Alþingis til að hóta honum öllu illu. Nánast á hverju einasta kvöldi stóð þjóðin skelkuð og langþreytt upp frá sjónvarps- fréttum, með nýjustu fúkyrði for- sætisráðherra glymjandi í eyrun- um. Og nú hafði hann ráðist á sjálfan forseta Íslands. Mannin- um var greinilega ekkert heilagt. Hann hafði í raun lokið við að lítilsvirða ALLA æðstu embættis- menn þjóðarinnar. Kannski vildi hann klára það áður en hann gengi út úr Stjórnarráðinu. Og allan veturinn hafði hann verið með „Baugstíðindin“ á heil- anum, notað hvert tækifæri til að níða niður Fréttablaðið, DV og Stöð Tvö. Síðan hafði hann sett saman nefnd „góðra“ manna til að semja álit um hið stórhættulega nýja fjölmiðlaumhverfi. Þegar vinirnir skiluðu ekki nógu svartri skýrslu öskraði hann á þá, reif skýrsluna í tætlur, svo enginn gæti séð hana, og settist síðan sjálfur niður til að semja frum- varp í einum grænum; frumvarp gegn „Baugsmiðlunum“, frum- varp til bjargar Mogganum, frum- varp sem hvorki snerti heilagan bláskjá RÚV né ástkæran hjáskjá einn. Hinn nýskipaði og fagur- skapaði menntamálaráðherra fékk hvergi nálægt frumvarpinu komið þótt formlega séð ætti mál- ið heima í húsinu við Sölvhólsgötu 4. Og Morgunblaðið var svo smekklegt að taka strax undir með Dabba sínum; Styrmirinn var hjartanlega sammála nýju frum- varpi sem var klæðskerasaumað til að hnekkja á samkeppnisaðil- unum. Ég sagði blaðinu upp dag- inn eftir. Og mætti síðan á fyrsta mót- mælafundinn gegn fjölmiðla- frumvarpinu. Það var ískaldur maídagur á Austurvelli. Tvö hundruð og fimmtíu manns norp- uðu fyrir framan svið á hjólum og hlustuðu á rappandi unglinga og KK. Idol-kynnarnir Simmi og Jói töluðu á milli atriða gegn ríkis- stjórninni. Enn á ný trúði maður ekki því sem var að gerast. Davíð hafði tekist hið ómögulega; að fá Simma og Jóa upp á móti sér! Sak- lausir gleðigjafar voru allt í einu orðnir hápólitískir. Mér varð litið í kringum mig. Þetta var allt meira og minna starfsfólk Norð- urljósa. Allt frá förðunardömum og fjármálastjórum yfir í þáttar- gerðarmenn á Popp-Tíví og EFFEMM. Og allir reiðir og sárir. Hvað hafði gerst? Sjálfstæðis- flokknum hafði tekist að draga EFFEMM-hnakkana á útifund! Flokknum hafði tekist að póli- tísera þá ópólitísku; fengið sína eigin kjósendur á móti sér. Þjóðin sá í gegnum plottið gegn „Baugs- miðlunum“ sem henni fannst ekk- ert sérlega hættulegir. Í skoðana- könnunum stóð meirihlutinn gegn frumvarpinu, þótt við værum bara 250 á Austurvelli í tveggja stiga frosti þann sjötta maí. En það átti eftir að hitna. Vorið 2004 var kaldur inngangur að heitasta sumri sögunnar. Á veður- mælum féll hvert hitametið á fæt- ur öðru og skaphitinn fór hækk- andi líkt og sólin. Hávinur Herra Geðstirðs Fjölmiðlafrumvarpið var sam- þykkt á Alþingi þann 24. maí. Tveir risastórir þingflokkar kóuðu með karlinum sem ekki vildi hverfa af forsætisstóli án þess að koma höggi á Baug. Það var fallegur sorgardagur, sól- skinsbjartur. Mér tókst að verða síðastur inn af þeim þrjátíu sem hleypt var upp á þingpalla. Frétta- haukarnir á DV, Reynir Trausta & co, röðuðu sér á fremsta bekk, órakaðir, úfnir og tóbakslyktandi, og hlógu ógurlega þegar Halldór Blöndal gerði grein fyrir atkvæði sínu. Það var reyndar mjög fyndið þótt ég muni ekki hvers vegna. Davíð leit upp á þá eins og strang- ur skólastjóri sem vill aga nokkra pörupilta á aftasta bekk. Það var ekki síður fyndið. Eftir atkvæðagreiðsluna dok- aði ég við á Austurvelli í góða veðrinu og var á tali við þáverandi forstjóra Norðurljósa þegar Há- vinur Herra Geðstirðs gekk hjá og tók stjórann tali: „Jæja, ertu búinn að heyra í Ólafi Ragnari?“ „Nei, ég hef ekki heyrt í honum lengi.“ „Nú? Var hann ekki í mat hjá þér í Lækjarási 7, þann 7. febrúar síðastliðinn, ásamt Sigurjóni Sig- hvatssyni og fleiri góðum gest- um?“ Mér var ekki ætlað erindi inn í þetta samtal en stóðst þó ekki mátið og spurði HHG hvað hefði verið á borðum? Ekki stóð á svör- um. Leyniþjónusta Flokksins klikkar ekki á smáatriðunum. „Það var skötuselur, anda- bringa og ís á eftir, ef ég man rétt.“ Forstjóri Norðurljósa horfði á Hávininn segja þetta með blendnu augnaráði líkt og hann væri að velta því fyrir sér hvort Bláa höndin bryti líka saman rúmfötin hans. Ballíhú Dagana á eftir var þetta spurning- in sem brann á allra vörum: Hvað ætlar forsetinn að gera? Mun Ólafur Ragnar undirrita fjöl- miðlalögin eða ekki? Í hléi á tón- leikum Olgu Borodinu, hinnar rússnesku skapdýfu, á Listahátíð í Háskólabíói hitti ég manninn með ljósa sveipinn og gekk hreint til verks, spurði hvort hann ætlaði að skrifa undir? Forsetinn hló við og svaraði engu. Ég spurði þá hvort ekki yrði allt vitlaust ef hann skrifaði ekki undir? Forsetinn hló aftur og játti því; sjálfsagt yrði þá mikið ballíhú. Og hló síðan enn meir þegar ég viðurkenndi að ég þekkti ekki orðið. En forsetinn hafði talað. Var þetta ekki vísbending? Ef til vill. Svikasumar - og aðrir atburðir ársins 2004 eftir Hallgrím Helgason. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /M YN D VI N N SL A: K AR L PE TE R SS O N Forsetinn var heima og steig sitt sögu- lega skref: Neitaði að skrifa undir. Og þá var breytt um taktík. Nú var hafist handa við að snúa út úr fremur einföldu orðalagi stjórnar- skrárinnar. Menn vildu fyrir alla muni koma í veg fyrir ósigur í þjóðaratkvæða- greiðslu. ,, FORSETINN OG RÍKISSTJÓRNIN „Tveir risastórir þingflokkar kóuðu með karlinum sem ekki vildi hverfa af forsætisstóli án þess að koma höggi á Baug.“

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.