Fréttablaðið - 31.12.2004, Side 36
36 31. desember 2004 FÖSTUDAGUR
Fréttamyndir ársins 2004
10. mars - Strand Baldvins Þorsteinssonar
Forstjórinn á strandstað
Fjölveiðiskipið Baldvin Þorsteinsson EA strandaði í Skarðsfjöru á
Meðallandssandi suður af Kirkjubæjarklaustri og sat þar fast frá
9. mars til miðvikudagsins 17. mars þegar það náðist aftur á flot.
Sextán manna áhöfn skipsins var bjargað um borð í TF-LÍF, þyrlu
Landhelgisgæslunnar. Á myndinni má sjá Þorstein Má Baldvins-
son, forstjóra Samherja, útgerðarfélags skipsins, en hann var á
strandstað nær allan tímann. Skipið skemmdist nokkuð en það
kom aftur úr viðgerð í Noregi seinni hluta aprílmánaðar.
13. apríl - Landssímamálið dómtekið
Aðalféhirðir og lögmaður hans ræðast við
Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrum aðalféhirðir Landssímans, ræðir
við Helga Jóhannesson verjanda sinn við dómtöku Landssíma-
málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur. Sveinbjörn játaði að hafa
dregið sér rúmlega 261 milljón króna úr sjóðum Landssímans
og hlaut fjögurra og hálfs árs fangelsisdóm. Forsvarsmenn
Íslenska sjónvarpsfélagsins og veitingastaðarins Priksins; Árni
Þór Vigfússon, Kristján Ragnar Kristjánsson og Ragnar Orri
Benediktsson, fengu einnig dóma fyrir hylmingu og peninga-
þvætti. Kona á þrítugsaldri var sýknuð af peningaþvætti.
10. maí - Deilumál á þingi
Kristinn út í kuldann
Fjölmiðlafólk sótti að Kristni H. Gunnarssyni að loknum fundi
allsherjarnefndar Alþingis þegar fjölmiðlafrumvarpið var af-
greitt. Hann hafði sérstöðu í tveimur átakamálum stjórnmál-
anna; var bæði á móti fjölmiðlafrumvarpinu og stuðningi við
innrásina í Írak. Í lok maí fór það enda svo að Kristinn missti
formennsku í þingflokki Framsóknar og var svo alveg settur út í
kuldann í októberbyrjun þegar hann hlaut ekki kjör í neina
þingnefnd.
14. maí - Fjölmiðlafrumvarpið rætt á þingi
Ráðherra sagður gunga og drusla
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, reiddist mjög í ræðustól á Alþingi vegna fjarveru full-
trúa ríkisstjórnarinnar, þegar fram fór umræða um fjölmiðlafrum-
varp ríkisstjórnarinnar. „Ég hlýt að líta svo á að hann [Davíð] þori
ekki að koma hér og eiga orðastað við mig [...] Það skal þá
standa að Davíð Oddsson sé slík gunga og drusla að hann þori
ekki að koma hér og eiga orðastað við mig,“ sagði Steingrímur.
2. júní - Blaðamannafundur á Bessastöðum
Forsetinn synjar fjölmiðlalögum staðfestingar
Eftir harðvítugar deilur framan af ári um ný lög um eignarhald á
fjölmiðlum fór það svo að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, synjaði lögunum staðfestingar. Formenn ríkisstjórnar-
flokkanna reiddust ákvörðun forseta um að vísa málinu til þjóð-
arinnar og töluðu um að óvissuástand hefði skapast. Í kjölfarið
kom Alþingi saman og felldi lögin úr gildi í stað þess að boða
til þjóðaratkvæðagreiðslu um þau.
2. ágúst - Innsetning forseta Íslands
Dorrit í skautbúningi
Umtalað var eftir innsetningu Ólafs Ragnars Grímssonar sem
forseta Íslands hversu glæsileg Dorrit Moussaieff forsetafrú var
við athöfnina, en hún skartaði skautbúningi. Ólafur Ragnar
hlaut 85 prósent gildra atkvæða í kosningunum sem fram fóru
26. júní og bar sigurorð af Ástþóri Magnússyni og Baldri
Ágústssyni sem buðu sig fram á móti honum. Helmingur ríkis-
stjórnarinnar var fjarverandi athöfnina.
14. ágúst - Komið fram eftir alvarleg veikindi
Davíð á batavegi
Davíð Oddsson, þá forsætisráðherra, tók á móti Göran Persson for-
sætisráðherra Svía og eiginkonu hans á heimili sínu um miðjan
ágúst, en það var í fyrsta sinn sem hann kom fram opinberlega eftir
alvarleg veikindi. 21. júlí var Davíð fluttur á Landspítala - háskóla-
sjúkrahús vegna gallblöðrubólgu, en við rannsókn fannst staðbund-
ið æxli í hægra nýra hans. Bæði gallblaðra og nýra voru fjarlægð í
aðgerð. Í byrjun ágúst var svo fjarlægður úr honum skjaldkirtill, þar
sem fannst illkynja mein, og nærliggjandi eitlar.
28. júlí - Leitin að Sri Rahmawati
Ljóst að morð hafði verið framið
Eftir að hafa setið í gæsluvarðhaldi í rúmar þrjár vikur játaði
Hákon Eydal fyrir lögreglu að hafa banað fyrrverandi sambýlis-
konu sinni, Sri Rahmawati, að morgni sunnudagsins 4. júlí. Um-
fangsmikil leit hafði farið fram að Sri, en ummerki á heimili Há-
konar báru vott um að hún hefði látist með voveiflegum hætti.
Lík hennar fannst svo 3. ágúst í hraunsprungu sunnan Hafnar-
fjarðar, en Hákon gaf lögreglu í upphafi villandi upplýsingar um
hvar lík hennar væri að finna. Á myndinni má sjá kafara að
störfum við leit við Presthúsatanga í Hofsvík á Kjalarnesi.
VILH
ELM
G
VA
VILH
ELM
G
VA
G
VA
PJETU
R
PJETU
R
G
VA