Fréttablaðið - 31.12.2004, Page 42
31. desember 2004 FÖSTUDAGUR
NEYÐARAÐSTOÐ
Slysa- og bráðamóttaka Landspítala -
háskólasjúkrahúsi í Fossvogi er opin all-
an sólarhringinn og sinnir neyðartilfell-
um. Síminn er 543 2000.
HEILSUGÆSLA
Gamlársdagur: Allar heilsugæslustöðvar
eru opnar 8-12. Læknavaktin Smára-
torgi er opin kl. 9-18 og 20.30-11.
Nýársdagur: Læknavaktin Smáratorgi
er opin kl. 9-23.30 en vitjanaþjónustan
er opin allan sólarhringinn. Síminn á
læknavaktinni er 1770.
Neyðarlínan svarar fyrir slökkvilið,
sjúkrabifreiðir og lögreglu um allt land
ísíma 112.
1717 er sími Vinalínunnar og Rauða
krossins. Þar er svarað allan sólarhring-
inn um áramót sem aðra daga.
Stígamót: Lokað yfir áramótin.
SÁÁ: Afgreiðslan á Vogi lokuð yfir ára-
mótin.
Kvennaathvarf: Opið allan sólarhring-
inn yfir áramótin. Síminn er 561 1205.
TANNLÆKNAÞJÓNUSTA
Tannlæknar á höfuðborgarsvæðinu eru
með neyðarvakt á eftirtöldum stöðum:
Gamlársdagur: Þórkatla M. Halldórs-
dóttir, Óðinsgötu 4, Reykjavík, sími 551
6155 (kl. 9 til 12).
Nýársdagur: Anna Sigríður Stefánsdóttir,
Núpalind 1, Kópavogi, sími 564 6131.
Sunnudagur 2. jan.: Benedikt B. Ægis-
son, Síðumúla 25, Reykjavík, sími 553
4450.
APÓTEKIN:
Gamlársdagur: Opið í Lyfju Smáratorgi
og Lágmúla kl. 8-18.
Nýársdagur: Opið í Lyfju Smáratorgi kl.
8-24 og Lágmúla kl. 10-24.
STÓRMARKAÐIR:
10-11:
Gamlársdagur: Opið kl. 9-18.
Nýársdagur: Opið kl. 13-24 og í Lágmúla,
Staðarbergi og á Akureyri er opið áfram.
11-11:
Gamlársdagur: Opið 10-17.
Nýársdagur: Lokað.
Sunnudagur 2. jan.: Lokað vegna
vörutalningar.
BÓNUS:
Gamlársdagur: Opið kl. 9-15.
Nýársdagur: Lokað.
Sunnudagur 2. jan. Lokað.
FJARÐARKAUP:
Gamlársdagur: Opið kl. 9-13.
Nýársdagur:Lokað.
HAGKAUP:
Gamlársdagur: Opið kl. 9-14.
Nýársdagur: Lokað.
Sunnudagur 2. jan.: Opið kl. 12-18
nema á Eiðistorgi og í Garðabæ 12-20.
KRÓNAN:
Gamlársdagur: Opið 10-13.
Nýársdagur: Lokað.
Sunnudagur 2. jan.: Lokað vegna
vörutalningar.
NÓATÚN:
Gamlársdagur: Opið 9-15.
Nýársdagur: Lokað.
Sunnudagur 2. jan. Lokað vegna
vörutalningar.
KRINGLAN:
Gamlársdagur: Allar verslanir opnar 10-
13 nema Vínbúðin sem er opin 9-13,
Bónus sem er opinn 10-15 og Hagkaup
sem er opið frá 9-14.
Nýársdagur: Lokað.
Sunnudagur 2. jan.: Ýmsar verslanir
opnar og aðrar lokaðar.
SMÁRALIND:
Gamlársdagur: Allar verslanir opnar kl.
10-13 nema Vínbúðin sem er opin kl. 9-
13, Hagkaup 9-14 og Nóatún 9-15.
Nýársdagur: Lokað.
Sunnudagur 2. jan.: Opið kl. 13-18.
SAMGÖNGUR
STRÆTÓ BS.
Gamlársdagur: Ekið á öllum leiðum
samkvæmt tímaáætlun virka daga til kl.
13 og tímaáætlun helgidaga til kl. 16 en
þá lýkur akstri.
Nýársdagur: Ekið á öllum leiðum sam-
kvæmt tímaáætlun helgidaga að því
undanskildu að allir vagnar hefja akstur
um kl. 15.30.
FLUGFÉLAG ÍSLANDS:
Gamlársdagur: Flogið samkvæmt áætl-
un fram á hádegi.
Nýársdagur: Engar ferðir.
HERJÓLFUR:
Gamlársdagur: Frá Vestmannaeyjum kl.
8.15 og frá Þorlákshöfn kl. 11.
Nýársdagur: Engar ferðir.
SÉRLEYFISHAFAR Á BSÍ
Gamlársdagur: Reykjavík - Keflavík,
tvær ferðir hvora leið.
Reykjavík -Hveragerði og Selfoss, tvær
ferðir hvora leið.
Reykjavík - Hvolsvöllur, ein ferð hvora
leið.
Reykjavík - Akranes og Borgarnes, ein
ferð hvora leið.
Nýársdagur: Reykjavík - Hveragerði og
Selfoss, ein ferð hvora leið.
SUNDLAUGAR
Gamlársdagur: Árbæjarlaug og Breið-
holtslaug eru opnar 8-12.30.
Grafarvogslaug, Kjalarneslaug, Laugar-
dalslaug, Sundhöllin og Sundlaug Vest-
urbæjar eru opnar 6.30-12.
Kópavogslaug er opin 9-12.
Sundhöll Hafnarfjarðar er opin 6.30-11.
Sundlaug Akureyrar er opin 7-11.
Nýársdagur: Allar laugar lokaðar nema
Árbæjarlaug sem er opin 11-16.
!"#$%
!
!"
#$
%
&'$ )
*&
% +
,
- (. /
,)
!" #$
%&
0
1))
2,
ÞÖKKUM VIÐSKIPTIN
Á ÁRINU SEM ER AÐ LÍÐA.
BJÓÐUM YKKUR OG NÝJA
VIÐSKIPTAVINI
VELKOMNA Á NÝJU ÁRI.
Starfsfólk HB fasteigna
5 690691 2000
08
Lífsreynslus
agan • He
ilsa •
• M
atur • Kro
ssgátur
50. tbl. 66. árg., 27. de
sember 2004.
g •á~t
Aðeins 599 kr.Gleðilegt ár
2005
Vö
lvuspáin
Hvað gerist
á nýju ári?
00 Vikan50.
tbl.'04-1
10.12.2004
13:20 Pag
e 1
Náðu í eintak á næsta sölustað
Völvublaðið
Aðeins 599 kr.
ÞEGAR MIKIÐ LIGGUR VIÐ
„Þú ert að tala við einn sem verð-
ur að vinna á gamlársdag,“ segir
Friðrik Þorsteinsson, varðstjóri á
Slökkvistöð Reykjavíkur í Skóg-
arhlíð, þegar þar á bæ er falast
eftir viðtali við einhvern vakthaf-
andi um áramótin. „Nema þú aug-
lýsir eftir manni sem vill leysa
mig af,“ segir hann hlæjandi en
viðurkennir samt strax að hann
fæli starfið ekki hverjum sem
væri. Sjálfur er hann í góðri
þjálfun og hefur oft staðið vakt
um hátíðar, meðal annars nú um
jólin. „Það er þannig kerfi hjá
okkur að vaktirnar færast alltaf
bara til um einn dag milli ára
þannig að maður getur lent á há-
tíðavakt nokkur ár í röð og svo
verður nokkurra ára hlé,“ segir
hann.
Slökkvistöðvarnar á höfuð-
borgarsvæðinu eru fjórar enda
umdæmið stórt. Allar eru þær
með sólarhringsvakt yfir ára-
mótin og aukaviðbúnað vegna yf-
irvofandi eldhættu. Friðrik segir
alltaf talsvert að gera á gamlárs-
kvöld. „Flutningar með lang-
veika heim til fjölskyldna sinna
og aftur til baka á sjúkrastofnan-
ir er nokkuð sem við göngum að
vísu en brunarnir gera ekki boð á
undan sér. Það er því miður
alltaf eitthvað um útköll vegna
þeirra og alvarlegir atburðir
geta komið upp því aldrei er eins
mikið fiktað með eld og á ára-
mótum,“ segir hann og biður
blaðið að brýna fyrir fólki að um-
gangast púðrið með varúð og
fara ekki út úr húsi án þess að
gæta þess að slökkva fyrst á
kertaskreytingum og eldavélar-
hellum. ■
Alltaf eitthvað um útköll
Á Slökkvistöðvum höfuðborgarsvæðisins er aukin vakt bæði vegna
brunaútkalla og sjúkraflutninga.
Friðrik brýnir fyrir fólki að umgangast flugeldana með varúð og fara ekki út úr húsi nema slökkva fyrst á kertaskreytingum og eldavélar-
hellum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI