Fréttablaðið - 31.12.2004, Page 44
44 31. desember 2004 FÖSTUDAGUR
Við óskum ...
... íslensku íþróttafólki gleðilegs nýs árs og óskum þeim farsældar á komandi
ári. Íþróttadeild Fréttablaðsins vill jafnframt koma fram þökkum til
viðmælenda sem og lesenda sinna fyrir samstarfið á árinu sem senn er að
baki. Vonum við að samstarfið á komandi ári verði jafn ánægjuríkt.
Við hrósum ...
... Sveini Aroni Guðjohnsen, sem sparar ekki stóru orðin og ætlar sér
að verða betri í fótbolta en pabbi sinn, Eiður Smári Guðjohnsen, sem
kjörinn var íþróttamaður ársins í kosningu Fréttablaðsins og Vísis sem
og á meðal íþróttafréttamanna.sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Markaðurinn verður opn-
aður á miðnætti 1. janúar og lok-
aður 31. janúar. Þegar sá 31. kem-
ur upp á laugardegi er markaður-
inn opinn fram á mánudag en það
á ekki við að þessu sinni. Það
munu án efa margir leikmenn
skipta um félag næsta mánuðinn
og Fréttablaðið skoðar hvaða
menn verða væntanlega að pakka
ofan í tösku í byrjun nýja ársins.
Feitasti bitinn á Englands-
markaðnum er framherjinn
James Beattie. Hann hefur leikið
sinn síðasta leik fyrir Sout-
hampton og félagið hefur sam-
þykkt að selja hann. Þrjú félög
hafa þegar lýst yfir áhuga á kapp-
anum en þau eru Newcastle, Ev-
erton og Aston Villa. Beattie fer
væntanlega á 5-6 milljónir punda.
Liverpool mun láta mikið að
sér kveða í janúar ef að líkum læt-
ur en félagið er á góðri leið með
að landa spænska landsliðsfram-
herjanum Fernando Morientes
frá Real Madrid. Svo er fastlega
búist við því að Argentínumaður-
inn Pablo Aimar komi einnig til
félagsins en hann hefur fengið
nóg af vistinni hjá Claudio Ranieri
í Valencia.
Varnarleikur Newcastle hefur
verið glæpsamlega slakur í vetur
og því þarf ekki að koma á óvart
að Graeme Souness, stjóri liðsins,
ætli að bæta við sig varnarmönn-
um í janúar. Hann er nánast búinn
að ganga frá kaupum á Celestine
Babayaro frá Chelsea og svo hef-
ur hann einnig augastað á Sylvain
Distin hjá Manchester City og
Jean-Alain Boumsong hjá Glas-
gow Rangers.
Óljóst er hvað Chelsea gerir en
félagið þarf ekki á mikilli styrk-
ingu að halda. Spánverjinn
Joaquin hefur verið þráfaldlega
orðaður við Chelsea og félagið
mun eflaust kaupa hann ef það
hefur raunverulegan áhuga á
stráknum.
Markverðir verða á einhverju
flugi í janúar en bæði Arsenal og
Man. Utd eru að leita að nýjum
markverði. Antti Niemi, mark-
vörður Southampton, er sagður
vera á innkaupalista beggja fé-
laga og einnig hefur verið rætt
um að stórliðin muni gera hosur
sínar grænar fyrir Hollendingn-
um Edwin van der Sar sem stend-
ur á milli stanganna hjá Fulham.
Arsene Wenger og Sir Alex
Ferguson eru einnig alvarlega að
spá í að reyna við spænska undra-
barnið Sergio Ramos sem leikur
með Sevilla en spænska félagið
hefur hingað til ekki viljað selja
strákinn.
henry@frettabladid.is
BEATTIE Á FÖRUM
James Beattie hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Southampton. Newcastle, Everton og
Aston Villa hafa öll áhuga á framherjanum.
Hvað gerist í janúar?
Leikmannamarkaðurinn verður opnaður á ný 1. janúar og er opinn allan
janúarmánuð. Það verður væntanlega handagangur í öskjunni þegar félögin
styrkja sig fyrir seinni hluta tímabilsins.
Arsenal er enn fimm stigum á eftirChelsea á toppi ensku úrvals-
deildarinnar eftir að liðið bar sigur-
orð af Newcastle, 1-
0, á St. James’s Park
á miðvikudags-
kvöldið. Það var
Patrick Vieira, fyrir-
liði Arsenal sem
skoraði sigurmarkið
undir lok fyrri hálf-
leiks en leikmenn
Arsenal voru heppnir að sleppa
burtu frá Newcastle með þrjú stig.
Íslenska kvennalandsliðið í körfu-bolta tapaði síðari æfingaleik sín-
um gegn því enska, 66-63, í Sheffield
á miðvikudags-
kvöldið. Íslenska lið-
ið náði sér ekki á
strik í leiknum og
tókst ekki að fylgja
eftir góðum sigri í
fyrri leiknum. Hin
unga Helena Sverr-
isdóttir var stiga-
hæst í íslenska liðinu með 24 stig,
Birna Valgarðsdóttir skoraði 23 stig
en þessar tvær báru af í íslenska lið-
inu.
Kristinn Friðriksson, sem var rek-inn sem þjálfari Grindavíkur í
Intersportdeildinni fyrir skömmu,
hefur skipt yfir í
Tindastól. Kristinn
sagði í samtali við
Fréttablaðið í gær
að hann hefði ekki
ákveðið hvort hann
myndi spila með
Tindastóli en sagði
það þó ljóst að
hann myndi ekki spila með öðru liði
á Íslandi. „Ég mun taka ákvörðun
áður en deildin hefst að nýju í janú-
ar,“ sagði Kristinn.
Íslenska landsliðið í handknattleikskipað leikmönnum fæddum 1986
og síðar hafnaði í þriðja sæti á Hela
Cup í Þýskalandi sem lauk í gær. Ís-
lenska liðið bar sigurorð af Slóvakíu,
36-28, í leik um þriðja sæti. Sigfús
Sigfússon var markahæstur í ís-
lenska liðinu með sjö mörk og Andri
Stefánsson skoraði sex mörk og þeir
Fannar Þór Friðgeirsson og Elvar
Friðriksson skoruðu fimm mörk
hvor.
Spænski framherjinn FernandoMorientes segist vilja ganga til
liðs við enska úrvalsdeildarliðið
Liverpool á nýju ári.
Morientes er orð-
inn þreyttur á bekkj-
arsetunni hjá Real
Madrid og segist
vilja fara til Liver-
pool þar sem þjálf-
ari liðsins, Rafael
Benitez, sé spænsk-
ur og þekki hann vel. „Ég vil ekki
segja meira en það að ég er farinn
að líta í enska orðabók,“ sagði Mori-
entes.
Brasilíski þjálfarinn WanderleyLuxemburgo, sem gerði Santos
að brasilískum meisturum fyrir
skömmu, hefur verið ráðinn þjálfari
spænska stórliðsins
Real Madrid í stað
Mariano Garcia
Ramon sem hefur
stjórnað liðinu síð-
an í byrjun tíma-
bilsins með mis-
jöfnum árangri eftir
að Jose Antonio
Camacho hætti eftir aðeins þrjár vik-
ur. „Ég er búinn að skrifa undir eins
og hálfs árs samning og byrja strax,“
sagði Luxemburgo.
Jose Mourinho, knattspyrnustjóriChelsea, segist hafa hafnað því að
taka við Liverpool síðasta sumar þar
sem hann var enn
þjálfari Porto. „For-
ráðamenn félagsins
höfðu samband við
mig daginn fyrir úr-
slitaleik Porto og
Mónakó í meistara-
deildinni en ég vildi
ekki hugsa um neitt
annað starf fyrir
þennan leik,“ sagði Mourinho. Liver-
pool réð Spánverjann Rafael Beni-
tez í staðinn en Mourinho fór til
Chelsea.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
30 31 1 2 3 4 5
Sunnudagur
JANÚAR
■ ■ SJÓNVARP
14.20 Formúla 1 á RÚV.
14.20 Landsleikur í fótbolta á
Sýn. Sýnt frá leik Frakklands og
Íslands í undankeppni EM 2000 í
Frakklandi.
15.00 Íslenskur körfubolti 2004 á
RÚV.
15.25 Íslenskur fótbolti 2004 á
RÚV.
15.55 Íslenskur handbolti 2004 á
RÚV.
16.00 NBA – Bestu leikirnir á Sýn.
Sýnt frá leik Chicago Bulls og
Boston Celtics frá árinu 1986.
16.35 Íslendingar á Ólympíu-
leikunum í Aþenu 2004 á RÚV.
17.00 EM í fótbolta 2004 á RÚV.
17.40 NBA-boltinn á Sýn. Sýnt frá
leik Los Angeles Lakers og
Miami Heat í NBA-deildinni í
körfubolta.
19.40 Bestu bikarmörkin á Sýn.
Flottustu og mikilvægustu mörk
Liverpool í ensku bikarkeppninni
frá upphafi sýnd.
20.35 Bestu bikarmörkin á Sýn.
Flottustu og miilvægustu mörk
Manchester United í ensku
bikarkeppninni frá upphafi sýnd.
21.30 NFL-tilþrif á Sýn.
22.00 NFL-deildin á Sýn. Bein
útsending frá leik Denver
Broncos og Indianapolis Colts í
NFL-deildinni.
Michael Phelps:
Slapp við
fangelsi
SUND Sundkappinn Michael Phelps,
sem vann sex gullverðlaun á ÓL í
Aþenu, fékk átján mánaða skil-
orðsbundinn dóm fyrir að aka
undir áhrifum áfengis. Phelps ját-
aði brotið og bað heiminn afsök-
unar daginn eftir að hann var
handtekinn. „Ég geri mér fylli-
lega grein fyrir því hversu alvar-
legt brot mitt var,“ sagði Phelps
við dómarann. „Ég hef lært af
mistökum mínum og mun læra af
þessum mistökum allt mitt líf.“
Phelps var einnig dæmdur til
greiðslu 20 þúsund króna sektar
en fyrir utan að hafa keyrt drukk-
inn hafði hann heldur ekki aldur
til þess að drekka og stöðvaði þar
að auki ekki við stöðvunarskyldu.
Hluti af refsingu Phelps er að
halda fyrirlestra fyrir ung börn
um hætturnar sem stafa af neyslu
áfengis.
Hann má heldur ekki drekka
meðan á skilorðinu stendur og að
lokum þarf hann að mæta á fundi
samtakanna Mæður gegn drukkn-
um ökumönnum. - hbg
GULLDRENGUR Michael Phelps má ekki
drekka áfengi í eitt og hálft ár.
Íslenskir handboltamenn í eldlínunni í þýsku 1. deildinni í handbolta:
Einar skoraði níu mörk í sigri
HANDBOLTI Jólasteikin fór misvel í
íslensku handboltastrákana í
Þýskalandi, sumir spiluðu vel í
vikunni en aðrir voru þyngri á sér.
Einar Hólmgeirsson sleppti
greinilega ábótinni þetta árið því
hann var í fantaformi með liði
sínu Grosswallstadt er það sigraði
Tus Lubbecke, 40-35. Einar skor-
aði níu mörk í öllum regnbogans
litum og Snorri Steinn Guðjóns-
son lék einnig vel fyrir Grosswall-
stadt og skoraði fjögur mörk.
Guðjón Valur Sigurðsson, leik-
maður Essen, mætti félaginu sem
hann leikur með á næsta ári,
Gummersbach, og varð að lúta í
lægra haldi, 30-29. Hann sýndi
leikmönnum Gummersbach
hverju þeir mega búast við á
næsta ári með að skora fimm góð
mörk. Markús Máni Michaelsson
komst ekki á blað hjá Düsseldorf
er liðið tapaði fyrir Kiel, 36-29. Al-
exander Pettersons var ívið
ferskari hjá Düsseldorf og skor-
aði fjögur mörk.
Logi Geirsson lék vel fyrir
Lemgo og skoraði fimm mörk er
liðið tapaði fyrir Flensburg, 31-29.
Lið Gylfa Gylfasonar og Einars
Arnar Jónssonar töpuðu bæði sín-
um leikjum og hornamennirnir
skoruðu báðir eitt mark í leikjun-
um. - hbg EINAR HÓLMGEIRSSON Hefur leikið mjög vel í Þýskalandi í vetur. Fréttablaðið/Hari