Fréttablaðið - 31.12.2004, Blaðsíða 47
FÖSTUDAGUR 31. desember 2004 47
spyrnuheiminum var þegar
Barcelona ákvað að selja Mich-
ael Laudrup, þá óumdeilanlega
besta mann liðsins. Johan
Cruyff, þáverandi þjálfari,
greindi frá ástæðu sölunnar í
ævisögu sinni og í ljós kom að
Laudrup var seldur því að hann
hafði dregið úr hlaupum sínum
inn í vítateiginn um tugi pró-
senta – einföld tölfræði sýndi það
og sannaði. Og þar sem Laudrup
gerði ekki það sem hann átti að
gera hefði ekki verið annað í
stöðunni en að selja hann. Blaða-
manni lék forvitni á að vita hvort
jafn djúp tölfræði væri í háveg-
um höfð hjá Chelsea, og hvort
leikmenn yrðu varir við hana.
„Það er sannarlega tölfræði í
gangi. Ég get nefnt sem dæmi
að það er fylgst nákvæmlega
með hversu langa vegalengd
menn hlaupa í hverjum og ein-
um leik. Menn eru síðan gagn-
rýndir eða hrósað eftir því sem
við á. En það er fylgst með hin-
um ólíklegustu hlutum inni á
vellinum, hlutum sem áhorfend-
ur taka ekki eftir,“ segir Eiður
og bendir á að hann hafi sjálfur
fengið mikið hrós fyrir mikla
framför í vinnu inni á vellinum
án bolta – annar vinkill sem er
rannsakaður út í gegn af aðstoð-
armönnum Mourinho.
Er í draumaliðinu
Eiður segir að leikmenn verði
mjög varir við Roman
Abramovitsj, rússneska auðkýf-
inginn sem virðist vera reiðubú-
inn að dæla endalausu fjármagni
í félagið. „Já, mikið. Hann kemur
nánast alltaf inn í klefa eftir leiki
bara svona til að blanda geði.
Hann skiptir sér ekki mikið af,
er meira baka til og fylgist með
en heilsar alltaf upp á okkur leik-
mennina. Hann gerir sér alveg
grein fyrir því að þjálfarinn sér
um þetta allt saman og skiptir
sér ekkert af. Hann hrósar okkur
persónulega ef honum finnst svo
skipta og tekur alltaf í höndina á
okkur eftir leik, hvort sem við
vinnum eða töpum. Það virðist
aldrei sjá á honum þótt við náum
ekki góðum úrslitum.“
Sagan segir að hann hafi upp-
götvað fótbolta fyrir nokkrum
árum, líkað vel og ákveðið að
kaupa sér eins og eitt stykki lið?
Veit hann eitthvað um fótbolta?
„Það veit ég nú ekki en það
virðist þá vera að færast í auk-
ana. Af þeim samtölum sem ég
hef átt við hann virðist hann
alveg vita um hvað hann er að
tala.“
Þú hefur alltaf haldið tryggð
við Chelsea þrátt fyrir að vera
bendlaður við fjölmörg lið. Hvað
er það sem heldur þér þarna?
„Það er liðið, það sem býr í lið-
inu og það sem liðið á eftir ógert.
Fyrst og fremst er það þó það
sem ég á eftir að sýna af sjálfum
mér hjá Chelsea. Ég trúi því
virkilega að ég eigi mikið inni og
ef ég mætti kjósa þá myndi ég
ekki vilja fara frá Chelsea fyrr
en ég væri búinn að ná því besta
út úr sjálfum mér. Og það er von-
andi að það fylgi því einhverjar
viðurkenningar, hvort sem það
er sigur í deildinni eða eitthvað
annað.“
Gæturðu hugsað þér að klára
ferilinn hjá Chelsea?
„Eins og staðan er í dag gæti
ég það auðveldlega, já. Þegar ég
hugsa um það kitlar það að prófa
Ítalíu eða Spán eftir einhver ár
en eins og staðan er núna þá er
ég í draumaliðinu mínu.“
Er Chelsea með fullmótaðan
leikmannahóp í dag?
„Það er erfitt að segja. Það er
alltaf hægt að bæta eitthvað við
en eins og staðan er núna held ég
að við ættum ekki að kaupa
neinn í janúar. Í dag erum við
með hóp sem þarfnast ekki mik-
ils. Ég býð velkomna alla leik-
menn sem koma til Chelsea en ég
mun alltaf vera jafn harður á því
að sýna mitt besta og vinna sæti
í liðinu,“ segir Eiður, sem á sín-
um ferli hefur þurft að kljást við
fjölda stórkostlegra framherja
um sæti í liðinu sem margir
hverjir hafa ekki náð sér á strik
og hrökklast burt. En alltaf held-
ur Eiður sínu striki.
„Það er erfitt að segja hvað ég
geri öðruvísi en þeir. Kannski er
ég bara öðruvísi persónuleiki
sem er ekki tilbúinn að gefast
upp þótt kannski blási aðeins á
móti. Kannski er þetta bara ís-
lenska eðlið. Ég veit að ég hef
meiri hæfileika en svo að sætta
mig við sæti á bekknum hjá
Chelsea,“ segir Eiður og virðist
vel meðvitaður um eigið ágæti.
Erum nokkuð frjálsir
Enginn efast um að Eiður er
einn af örfáum íslenskum knatt-
spyrnumönnum í gegnum tíðina
sem hafa búið yfir þessum með-
fæddu knattspyrnuhæfileikum
sem brúa bilið á milli góðra leik-
manna og þeirra allra bestu. Og
það er engum dulið að það er
vegna slíkra hæfileika sem leik-
menn á borð við Eið, Damien
Duff, Arjen Robben og margir
fleiri eru fengnir til Chelsa. Það
er því við hæfi að spyrja hvernig
slíkum framúrskarandi knatt-
spyrnumönnum er sagt til í leikj-
um - hversu mikið leggur Mour-
inho upp úr taktík?
„Þetta er að vissu leyti rétt og
menn eins og Duff og Robben
eru tiltölulega frjálsir. En þeir
hafa ákveðnum skyldum að
gegna, sérstaklega varnarlega.
Það eru ýmsar hreyfingar og
ýmis hlaup sem við setjum upp
og við leikmennirnir reynum að
leita eftir. Hreyfing án bolta er
gríðarlega mikilvæg og Mour-
inho leggur mikla áherslu á það.“
Þú hefur verið að spila sem
fremsti maður í 4-3-3 leikkerfi
mestmegnis tímabilsins. Hvernig
líkar þér það?
„Mér líkar það ágætlega. En
ég held að það sé samt mjög van-
metið hlutverk sem þessi eini
framlínumaður hefur hverju
sinni, hvort sem það er ég eða
Didier Drogba. Oft er maður
rosalega einn. En mér líður bara
best inni á vellinum og er alveg
sama hvar þjálfarinn setur mig.
Ef hann myndi setja mig í mark-
ið þá yrði ég alveg sáttur.“
Peningar eru aukaatriði
Eiður skrifaði undir nýjan
samning við Chelsea í sumar þar
sem kjör hans tóku hátt stökk og
hafa ýmsar tölur verið nefndar í
því samhengi. Í dag er Eiður á
meðal launahæstu leikmanna
félagsins og undirstrikar það enn
frekar stöðuna sem hann hefur
innan herbúða þess og í hversu
miklum metum hann er. Eiður
segir að þótt peningar skipti
vissulega máli séu þeir síður en
svo aðalatriðið.
„Maður er í vinnu og maður
semur um laun sín eins og hver
vinnandi maður. Þetta eru vissu-
lega á köflum brjálaðar fúlgur og
ég geri mér fyllilega grein fyrir
því að fótboltamenn eru að þéna
meira en nokkur meðalmaður
gerir á eðlilegri starfsævi. En
svona er bara fótboltinn í dag og
ég hugsa að allir, í hvaða vinnu
sem þeir eru, mundu gera allt til
að ná því mesta út úr þeim fjár-
munum sem í boði eru. Ég er
ekki montinn af því hvað ég er
með í laun. Ég vil ekki að fólk líti
upp til mín af því hversu mikið
ég fæ borgað. Ég vil að fólk líti
upp til mín vegna þess hversu
góður knattspyrnumaður ég er.“
Hver er þín afstaða til að-
stæðna eins og Roy Keane hefur
hjá Manchester United, þar sem
hann er með klásúlu í samning-
um sem segir að hann verði alltaf
með jafn há laun og sá launa-
hæsti hjá félaginu? Er ekki verið
að kæfa allan knattspyrnulegan
metnað í hreinni gróðafíkn og
græðgi í svona tilvikum?
„Ég get ekki svarað fyrir hann
en ég held að hver og einn einasti
leikmaður sem ég þekki myndi
kjósa titla fram yfir peninga. Maður
vill vinna og sýna að maður sé sig-
urvegari og ég held að engir pening-
ar komi nálægt því. Að minnsta
kosti ekki í mínum augum.“
Sven-Göran Eriksson hefur
sagt að þú værir líklega fasta-
maður í enska landsliðinu ef þú
værir enskur og lét hafa það eftir
sér að þú hefðir mjög líklega verið
valinn í enska hópinn á EM í sum-
ar. Þegar þú heyrir svona um-
mæli, verðurðu þá svekktur að
koma frá litla Íslandi sem
kannski hefur takmarkaða mögu-
leika á að komast á stórmót í
knattspyrnu, eða líturðu á þetta
sem hrós?
„Ég get ekki annað en litið á
þetta sem hrós. Ég er stoltur Ís-
lendingur. Ég elska að spila fyrir
mína þjóð. Mér finnst frábær
heiður að vera fyrirliði og ef ég
myndi einhvern tímann fá að fara
á HM eða EM þá myndi ég aldrei
vilja fara með neinum öðrum en
íslenska landsliðinu. Svo einfalt
er það. Það er endalaust hægt að
segja „ef“ þetta og „ef“ hitt en
það þýðir ekkert að spá í það. Ég
er afar stoltur af því að setja upp
fyrirliðabandið og klæða mig í ís-
lensku landsliðstreyjuna og ég
vona líka að fólk sé stolt af mér.
Fyrir fótboltaferilinn er það að
spila með íslenska landsliðinu
hverri annarri stund betra,“ segir
íþróttamaður ársins að lokum,
sem er þó með hugann við jóla-
törnina í ensku úrvalsdeildinni
um þessar mundir og reynir að
hugsa sem minnst um landsliðs-
mál á meðan.
Jose Mourinho hefur sagt að
hann ætli sér sigur í öllum
keppnum í ár og hann harðbann-
aði Eiði að koma til landsins til að
taka á móti verðlaununum sem
fylgdu því að vera kosinn
íþróttamaður ársins. Og hugar-
far Mourinhos virðist hafa smit-
að út frá sér því Eiður er ekki í
vafa um hverjir muni standa
uppi sem enskir meistarar í vor.
„Það verður Chelsea.“
vignir@frettabladid.is
ROMAN ABRAMOVITSJ „Hann kemur nánast alltaf inn í klefa eftir leiki bara svona til að
blanda geði. Hann skiptir sér ekki mikið af, er meira baka til og fylgist með en heilsar alltaf
upp á okkur leikmennina,“ segir Eiður.
Eiður segist umgangast sam-
herja sína hjá liðinu töluvert og
þá mest miðjumanninn Frank
Lampard. Hann gengur jafnvel
svo langt að kalla hann vin sinn.
„Svona allt að því. Þetta eru allt
þannig séð vinnufélagar sem
maður tengist á mismunandi
hátt eins og gengur og gerist í
daglegu lífi,“ segir Eiður. Hann
nefnir einnig fyrirliðann John
Terry sem náunga sem honum
líki mjög vel við. „Ég og Jimmy
(Floyd Hasselbaink) vorum líka
góðir félagar og höldum sam-
bandi í dag þótt hann sé farinn
annað. Ég heyri líka í Zola annað
slagið,“ segir Eiður.
„En maður kallar ekki allt
vini sína. Vinir eru þeir sem eru
mjög nánir mér og ég ber ótrú-
lega mikla virðingu fyrir. Og
þannig séð þeir eru ekki margir.“
Sem fyrirliði landsliðsins
hafðir þú atkvæðarétt í kjöri
FIFA á besta knattspyrnumanni
heims. Þú valdir Frank Lampard
í fyrsta sætið en Thierry Henry
númer tvö og sigurvegarann
sjálfan, Ronaldinho, númer þrjú.
Er Lampard virkilega þetta góð-
ur eða var þetta kannski bara
vinagreiði?
„Bæði og. Ég sé ótrúlega mik-
ið í honum og hann er mikill drif-
kraftur fyrir okkar lið. En hann
er mikill félagi minn og ég verð
að segja eins og er að ef ég væri
alveg hlutlaus þá er ég ekki viss
um að ég hefði kosið hann í
fyrsta sæti. En svona er þetta,
maður þarf að sjá um sig og
sína.“
Hvaða leikmaður Chelsea býr
yfir mestu hæfileikunum?
„Það er nú þannig þegar mað-
ur er í svona liði að maður sér
ótrúlega hæfileika í hverjum og
einum og ýmsir hlutir sem
standa upp úr hjá einstaklingum.
Ef ég þyrfti að pikka út einn þá
held ég að John Terry sé sá leik-
maður sem hefur vaxið mest af
þeim sem ég hef fengið að fylgj-
ast með. Hann hefur þróast út í
ótrúlega öflugan leikmann og
það veitir mér alltaf mikið
sjálfstraust þegar hann talar um
hvernig það er að dekka mig á
æfingum. Hann þolir það ekki.“
Hver er mesti húmoristinn í
Chelsea?
„Mér er sagt að það sé ég sem
er yfirleitt mesti vitleysingur-
inn,“ segir Eiður og hlær.
„Nei, en ef við tölum í alvöru
þá held ég að ég sé nokkuð stillt-
ur öllu jöfnu. John Terry er alltaf
léttur og á það til að reyta af sér
brandarana á æfingum,“ segir
Eiður. Hann hlær dátt aðspurður
um sérvitrasta leikmanninn.
„John Terry er til dæmis ótrú-
lega sérvitur á mat. Það er alveg
sama hvert við förum – maturinn
er alltaf vondur. Nema það sé
hefðbundinn breskur pöbbamat-
ur. Þá er hann fyrst sáttur.“
Eiður Smári er í góðu sambandi við liðsfélaga sína og gerir ýmislegt fyrir þá:
„Maður þarf að sjá um sig og sína“
BESTU FÉLAGAR Eiður Smári og Frank Lampard eru miklir vinir og gekk Eiður
jafnvel svo langt að velja Lampard besta knattspyrnumann heims.
Eins og staðan er í
dag gæti ég auð-
veldlega klárað ferilinn með
Chelsea. Þegar ég hugsa um
það kitlar það að prófa Ítal-
íu eða Spán eftir einhver ár
en eins og staðan er núna
þá er ég í draumaliðinu
mínu.
,,
Abramovitsj
kemur nánast
alltaf inn í klefa eftir leiki
bara svona til að blanda
geði. Hann skiptir sér ekki
mikið af, er meira baka til
og fylgist með en heilsar
alltaf upp á okkur leik-
mennina.
,,