Fréttablaðið - 31.12.2004, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Dreifing: 515 7520 Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 – fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Sendu SMS skeytið JA B3F á númerið1900 og þú gætir unnið.
2 X bíómiðar á 99kr.-
9. hver vinnur
99 kr/skeytið
Gle›ilegt nýtt ár
Opnum á nýju ári þriðjudaginn 4. janúar. Lokað mánudag.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Sálfræðingar hafa lengi gamnaðsér við að flokka mannkynið nið-
ur í mismunandi hópa. Til eru inn-
hverfir og úthverfir einstaklingar,
bjartsýnismenn og bölsýnismenn og
fólk sem stjórnast af vinstra heila-
hvelinu og fólk sem stjórnast af
hægra heilahvelinu, en því fólki má
auðvitað ekki rugla saman við
hægrimenn og vinstrimenn eða
framsóknarmenn sem stjórnast af
hvorugu heilahvelinu heldur af til-
viljanakenndu samspili erfðavísa og
efnahags, uppeldis og fjölskyldu-
hefða. Einfaldara er þó að skipta
mönnum sálfræðilega niður í þrjá
hópa eftir því hvernig þeir hegða
sér á gamlársdag. (Rétt er að taka
fram að þessi einfalda flokkun nær
aðeins til karla því að sálarlíf
kvenna er því miður jafn flókið á
gamlársdag sem aðra daga – ef ekki
flóknara.)
RAKETTUMAÐURINN er ein-
staklingur sem erfitt er að sálgreina
aðra daga ársins. En þegar maður
sér þennan mann sem varla tímir að
bjóða tengdamóður sinni í mat þjóta
fram og aftur og skjóta upp risarak-
ettum sem hver um sig kostar
meira en kíló af nautasteik er ljóst
að í innsta eðli sínu óskar rakettu-
maðurinn einskis frekar en kasta af
sér viðjum hins bælda meðaljóns og
skjóta sál sinni upp á stjörnuhimin-
inn til að fá að ljóma um stund í öll-
um regnbogans litum.
TÍVOLÍBOMBARINN er ekki
jafnflókin sál og rakettumaðurinn
og líkast til í betra jafnvægi dags
daglega. Honum nægir að ganga
hreint til verks og framkalla hávaða
og eld á tiltölulega einfaldan hátt.
Hann er einbeittur og hugumstór
eins og góður hermaður í réttlátu
stríði í þágu friðarins og fæst ekki
um það þótt þessi iðja sé lífshættu-
leg og ávinningurinn óljós.
STJÖRNULJÓSAMAÐURINN
er skuggaleg týpa. Margir sem fara
mikinn aðra daga ársins fella grím-
una á gamlárskvöld og verða upp-
vísir að því að óttast hávaða, eld og
sprengingar. Þessir aðilar hafa
aldrei fullorðnast sem sjá má af því
að þeir standa gjarna afsíðis og
horfa á stjörnuljós með aulalegt
hamingjuglott á vörum. Og þegar
þeir skála fyrir nýju ári má gera
ráð fyrir því að það sé sódavatn í
glösum þeirra. GLEÐILEGT ÁR! ■
BAKÞANKAR
ÞRÁINS BERTELSSONAR
Gamlársdags-
sálfræði