Fréttablaðið - 07.01.2005, Qupperneq 8
VIÐBÚNAÐARSTIGI AFLÝST Allt er
komið í eðlilegt horf á Patreks-
firði. Götur bæjarins hafa verið
mokaðar sem og milli byggða. Öllu
viðbúnaðarstigi var aflýst í gær.
UMFERÐARÓHAPP Á HÚSAVÍK
Minniháttar árekstur tveggja
fólksbíla varð á mótum Garðars-
brautar og Þverholts á Húsavík á
miðvikudag. Engin slys urðu á
fólki. Mikill snjór er í bænum og
háir ruðningar sem byrgir öku-
mönnum sýn.
BÍLL ÚT AF VIÐ MÁNARBAKKA
Bíll rann út af við Mánarbakka
norðan Húsavíkur. Ökumann sak-
aði ekki. Hann var einn í bílnum
og kallaði til björgunarsveitina
Garðar sem dró bílinn aftur upp á
veg á öflugum björgunarsveitarbíl
með spili. Atvikið varð rétt upp úr
klukkan sjö á miðvikudagskvöldið.
DÓMSMÁL 27 ára hollensk kona var,
í Héraðsdómi Reykjavíkur, dæmd
í eins árs fangelsi fyrir að smygla
235 grömmum af kókaíni til
landsins í nóvember síðastliðnum.
Kókaíninu smyglaði hún innvortis
og afhenti það íslenskum manni á
hóteli í Reykjavík eftir að hafa
náð efnunum úr
líkama sínum.
Þau voru bæði
handtekin á hótel-
inu.
Sveinn Andri
Sveinsson, verj-
andi konunnar,
segir skilaboðin í
dómnum vera að
það hafi ekkert
upp á sig fyrir
burðardýr að
segja frá eigend-
um og viðtakend-
um efnanna. „Hún
sagði samvisku-
lega frá nafni
manna í Hollandi
sem létu hana
hafa efnin. Það er
mjög sjaldgæft að
burðardýr gefi þessar upplýsing-
ar. Ríkissaksóknari þarf að taka
af skarið og gefa saksóknurum
leyfi til að leggja til verulegan af-
slátt af refsingu þar sem það á
við,“ segir Sveinn. Hann segist
ekki geta með góðri samvisku
sagt sínum skjólstæðingum að
þeir hagnist á að segja frá þeim
sem tengjast málinu.
Sveinn Andri lagði til að konan
fengi sex mánaða fangelsi vegna
samvinnu og sérstakra persónu-
legra aðstæðna. Lögð voru fram
gögn um að konan væri HIV-
smituð auk þess sem hún ætti tvö
börn sem hefðu tímabundið verið
sett í fóstur. 18. febrúar næstkom-
andi verður ákveðið hvert fram-
haldið með börnin verður. Sveinn
segir mikið hagsmunamál fyrir
konuna að komast til síns heima
fyrir þann tíma svo hún geti hald-
ið uppi vörnum og átt möguleika á
að endurheimta börnin. Konan
hefur verið í gæsluvarðhaldi frá
13.nóvember og myndi því losna
úr fangelsi 13. febrúar fengi hún
sex mánaða dóm þar sem útlend-
ingar afplána helming refsingar.
Sækjandi málsins sagði kon-
unni til þyngingar að hún hafi
smyglað kókaíninu í ágóðaskyni,
að hún hafi vitað að fíkniefnin
hafi verið ætluð til sölu og að hún
hafi falið efnin innvortis. Hins
vegar taldi hann henni til refsi-
lækkunar að hún játaði strax og
aðstoðaði greiðlega við að upplýsa
málið. Hann sagði það óvenjulegt
að burðardýr segðu til þeirra sem
ættu efnin en það gæfi samt ekki
ástæðu til að skilorðsbinda dóm-
inn og lagði til tólf til fjórtán mán-
aða fangelsi.
hrs@frettabladid.is
8 7. janúar 2005 FÖSTUDAGUR
Ráðherraráð ESB:
Lúxemborg tekur við forsæti
EVRÓPUSAMBANDIÐ Jean-Claude
Juncker, forsætisráðherra Lúxem-
borgar, tekur formlega við forsæti
ráðherraráðs Evrópusambandsins á
mánudaginn og gegnir því til 30.
júní á þessu ári. Hollendingar hafa
verið í forsæti undanfarið hálft ár.
Af þessu tilefni mun ríkisstjórn
Lúxemborgar taka á móti fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
á mánudaginn.
Ríki Evrópusambandsins skipt-
ast á stjórnartaumunum í ráðherra-
ráðinu á hálfs árs fresti og er leið-
togi ríkisstjórnar viðkomandi lands
í forsæti leiðtogaráðs ESB. Hlut-
verk hans er að stjórna fundum
ráðsins sem eru haldnir reglulega í
Brussel og Lúxemborg en ráðin
gegna lykilhlutverki í stefnumótun
sambandsins og ákvarðanatöku.
Junker mun einnig verða fulltrúi
ráðherraráðsins á Evrópuþinginu
og hafa rétt til að sitja fundi fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins.
Lúxemborg er ásamt Möltu
minnsta ríki Evrópusambandsins en
íbúar þar eru um 400 þúsund. - bs
Dæmd í eins árs fangelsi
fyrir kókaínsmygl
Hollensk kona var dæmd í eins árs fangelsi fyrir að smygla kókaíni innvortis.
Verjandi hennar segir að hún hafi ekki notið þess að hafa verið samvinnufús.
Konan er HIV-smituð og tveggja barna móðir.
STÓRHERTOGADÆMIÐ
LÚXEMBORG
Tilurð ríkis: 1890.
Höfuðborg: Lúxemborg.
Íbúar: 400 þúsund.
Stærð: 2586 ferkílómetrar.
Stjórnarfar: Þingbundin her-
togastjórn.
Tungumál: Letsebúrgíska,
franska, portúgalska og
ítalska.
Samsetning þjóðar: Lúxem-
borgarar 72 prósent, Portú-
galar 9 prósent, Ítalir fimm
prósent, aðrir fjórtán prósent.
Gjaldmiðill: Franki.
Nágrannaríki: Þýskaland,
Frakkland og Belgía.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
,,Ríkissak-
sóknari
þarf að
taka af
skarið og
gefa sak-
sóknurum
leyfi til að
leggja til
verulegan
afslátt af
refsingu
þar sem
það á við.
– hefur þú séð DV í dag?
Naut ásta með
Sri fyrir morðið
Hákon Eydal játaði á sig
morð fyrir héraðsdómi í gær
Höfðabakka 1 - sími 587 50 70
stór
humar
ath opið laugardaga
10-14.30
1Hvaða þjóð hefur heitið mestu fjár-magni til hjálparstarfs vegna hamfar-
anna í Asíu?
2Hversu mörg flutningaskip íslenskraflutningafyrirtækja eru skráð hér-
lendis?
3Hversu stór hluti landsmanna vill aðÍsland fari af lista hinna staðföstu
þjóða sem studdu innrásina í Írak?
SVÖRIN ERU Á BLS. 30
VEISTU SVARIÐ?
ÚR HÉRAÐSDÓMI
Konan tók sér frest til að ákveða hvort hún
muni una dómnum. Hún hefur setið í
gæsluvarðhaldi í 56 daga.
UMBOÐSMAÐUR Málsmeðferð og af-
greiðsla dóms- og kirkjumála-
ráðuneytisins á erindi refsifanga
á Litla - Hrauni til ráðuneytisins
frá síðastliðnu vori var ekki í sam-
ræmi við lög, samkvæmt niður-
stöðu Umboðsmanns Alþingis.
Umræddur fangi hafði sótt um
að hitta tvö eldri börn sín utan
fangelsisins. Þá var hann ósáttur
við kvarðanir forstöðumanns
fangelsins um fyrirkomulag
heimsókna sambýliskonu hans og
ársgamals barns hans.
Fanginn fékk ekki svar við
beiðni sinni, en hvað varðaði
heimsóknir sambýliskonunnar
höfðu við leit á henni fundist efni
sem óheimilt var að fara með inn í
fangelsið eða hafa í vösum sínum.
Forráðamenn fangelsisins ákváðu
í framhaldi af því að heimsóknir
konunnar myndu framvegis fara
fram án snertingar við fangann.
Þetta kærði hann til dóms- og
kirkjumálaráðuneytisins.
Umboðsmaður álítur, að fang-
elsisyfirvöld á Litla - Hrauni hafi
ekki gætt að því að veita fangan-
um réttar upplýsingar um kæru-
leiðir við meðferð umsóknar hans
um leyfi til dvalar utan fangelsis-
ins. Þá hefði fangelsið ekki fylgt
lögum um að senda umsókn fang-
ans til umsagnar fangelsismála-
stofnunar. ■
LITLA - HRAUN
Refsifangi á Litla - Hrauni kærði afgreiðslu mála sinna til dóms- og kirkjumálaráðuneytis.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
LEIÐTOGAR ESB
Jose Manuel Barroso, formaður framkæmdastjórnar ESB, og Jean-Claude Juncker,
forsætisráðherra Lúxemborgar.
Umboðsmaður Alþingis:
Málsmeðferð sam-
ræmdist ekki lögum