Fréttablaðið - 07.01.2005, Side 15

Fréttablaðið - 07.01.2005, Side 15
15FÖSTUDAGUR 7. janúar 2005 FÓLKSBÍLASALAN 2004 Toyota 3.199 Volkswagen 1.071 Ford 936 Hyundai 788 Honda 702 Skoda 651 Suzuki 603 Subaru 596 Mitsubishi 529 Nissan 496 Renault 351 Volvo 240 Mazda 238 Citroen 234 Peugeot 231 BMW 143 KIA 143 Fiat/Alfa Romeo 120 SsangYong 116 Audi 110 Lexus 98 Daewoo 87 Opel 69 GM 47 Porche 45 Chrysler 39 Land Rover 36 Mercedes Bens 23 Lincoln 9 Lada 5 Saab 3 Aðrir 13 MEST SELDU UNDIRTEGUND- IRNAR 2004 Toyota Yaris 792 Toyota Corolla 769 Skoda Octavia 578 Toyota Land Cruiser 90 557 Toyota Rav4 503 Toyota Avensis 407 Volkswagen Golf 398 Subaru Legacy 348 Suzuki Vitara 330 Ford Focus 317 Ford Escape 317 SANTIAGO, AP Á tímum umhverfis- verndar gengur rétturinn til að menga kaupum og sölum. Þannig maka kjötframleiðendur frá Chile krókinn með því að selja mengun- arkvóta til iðnríkjanna þar sem þeim hefur tekist að draga úr met- anframleiðslu búpenings síns. Vísindamenn hafa um langt skeið haft áhyggjur af hlýnun jarðar og afleiðingum hennar á hagi jarðarbúa. Margir fræði- menn eru þeirrar skoðunar að svonefndar gróðurhúsaloftteg- undir eigi þar hlut að máli, eins og til dæmis koltvísýringur og met- an, en grunur leikur á að hiti sem að öðrum kosti færi út úr gufu- hvolfinu festist innan þess af þessum sökum. Metangas er víða að finna í náttúrunni og er meðal annars í mykju og öðrum dýra- úrgangi. Markmið Kyoto-bókunarinnar um að draga úr hlýnun jarðar fela meðal annars í sér að aðildarríkj- unum er úthlutað mengunarkvóta en hann kveður á um magn gróð- urhúsalofttegunda sem þau mega losa út í andrúmsloftið. Þegar mengunin verður meiri en kvót- inn segir til um geta þau keypt meiri kvóta af þeim ríkjum sem fullnýta ekki þessar heimildir og hefur skapast allnokkur markað- ur með þessi réttindi og kostar til dæmis tonnið af metangasi um þrettán þúsund krónur. AgroSuper, chileskur svína- kjötsframleiðandi, hefur nú hent sér í kvótabraskið af fullum krafti enda er gróðavonin mikil. Þetta gerir fyrirtækið með því að draga úr metanframleiðslu svín- anna með markvissri endur- vinnslu. Vanalega er svínaskít dælt út í stóra opna pytti þar sem gufurnar úr honum streyma upp í andrúmsloftið. Fyrirtækið hefur hins vegar varið tæpum tveimur milljörðum króna í tækniþróun í þessum efnum. Pyttir fyrirtækis- ins eru huldir plasti og gasið er leitt í pípur til orkuvera eða það er einfaldlega brennt. Af þessum sökum sparast umtalsverður mengunarkvóti sem AgroSuper er þegar búið að selja til kanadískra og japanskra fyrir- tækja sem vilja ólm menga meira. Reiknar þessi suður- ameríski svínakjötsrisi með að fjárfesting sín borgi sig upp að nokkrum árum liðnum. Þetta er kvótabrask sem er sannkallað svínarí. ■ Svínabændur í Chile hafa fundið aðferð til að draga úr gasframleiðslu dýranna: Sannkallað svínarí SVÍNAGAS TIL SÖLU Svínin í Peralillo í Chile láta fara vel um sig í stíunni sinni og framleiða metangas sem aldrei fyrr. AP M YN D Styrkur úr minningarsjóði TÓNLIST Víkingur Heiðar Ólafsson hlaut í gær styrk úr Minningar- sjóði Karls Sighvatssonar. Víkingur hóf pí- anónám undir leið- sögn Erlu Stefáns- dóttur við Tón- menntaskóla Reykja- víkur haustið 1990. Haustið 1995 var hon- um veitt innganga í Tónlistarskóla Reykjavíkur þar sem Peter Maté var kennari hans næstu sex árin. Í nóvember 2000 hlaut Víkingur fyrstu verðlaun í fyrstu Píanó- keppni EPTA á Íslandi. Hann lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskól- anum vorið 2001 og ári seinna hóf hann framhaldsnám við hinn virta Juilliard tónlistarháskóla í New York þar sem hann hefur verið nemandi Jerome Lowenthal. Víkingur heldur einleikstónleika í Salnum í Kópavogi næstkomandi sunnudag klukkan 20.00. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.