Fréttablaðið - 07.01.2005, Blaðsíða 24
Tómatillós í
grænt salsa
Tómatillós eru meðal nýjunga í
grænmetisborðinu í matvöruversl-
unum.
Ein af þeim nýjungum sem nú má sjá
í grænmetisborðinu eru tómatillós
(borið fram sem tómatíjós) sem til-
heyra tómatafjölskyldunni og svipar til
grænna tómata. Tómatillós eru mikið
notaðir í mexíkóskri matargerð og þá
sérstaklega í grænt salsa, eða salsa
verde, auk annarra rétta. Berin geym-
ast nokkuð lengi í kæli og er þá ráð
að hafa þá í bréfpoka og halda frá
ávöxtum eins og eplum og perum,
því samvistin getur skemmt þá.
Tómatillós hafa milt bragð sem henta
mjög vel með sterku kryddi og hægt
að leika sér með þau í matargerðinni.
Salsa verde
Hér eru tvær aðferðir til að útbúa
grænt salsa, annars vegar þar sem
tómatillós eru notaðir hráir og hins
vegar þar sem þeir eru grillaðir í ofni.
Hráefni:
5 til 6 þvegin tómatillós
3 ferskir chili-pipar
1 msk. af ferskum og söxuðum kórí-
ander
1/4 bolli af fínsöxuðum lauk
Salt
Hrátt salsa:
Saxaðu tómatillós og chili-pipar og
settu í matvinnsluvél ásamt kóríander
og 1/4 bolla af vatni. Láttu þetta allt
blandast vel og settu í skál. Hreinsaðu
laukinn vel undir köldu vatni og
hristu vel til að ná sem mestu vatninu
af honum. Blandaðu honum út í
blönduna ásamt salti.
Grillað salsa.
Hitaðu grillið í ofninum. Settu tóma-
tillós og chili-piparinn á álpappír um
10 cm neðan við heitt grillið. Leyfðu
þessu að grillast vel, eða þar til svartir
blettir koma fram, þetta tekur um 5
mínútur. Snúðu þeim þá við og grill-
aðu hina hliðina. Settu tómatillós og
pipar í matvinnsluvél, ásamt safanum
sem safnast hefur saman á álpappír-
inn í ofninum. Bættu kóríander út í
ásamt 1/4 bolla af vatni, blandaðu vel
og settu í skál. Hreinsaðu laukinn vel
undir köldu vatni og hristu vel til að
ná sem mestu vatninu af honum.
Blandaðu honum út í blönduna
ásamt salti.
[ NÝJUNG ]
Til hnífs og skeiðar
GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR ELDAR
FLJÓTLEGAN MAT Á FÖSTUDEGI.
Kókoskjúklingur með ananas
Þessi brakandi ferski, tælenskættaði, réttur er góður fyrir þá sem
vilja losa salt og reyk jólafæðisins út úr kerfinu með vænu sparki.
Tælensk matreiðsla er oft mjög einföld, það eina sem við þurfum að
yfirstíga til þess að geta hrist rétti eins og þennan fram úr erminni
er að verða okkur úti um nokkrar tegundir af kryddi. Í Reykjavík eru
nú margar sérverslanir sem bjóða þessa vöru.
Byrjið á því að taka þykka hluta kókosmjólkurinnar ofan af og setja
á pönnu. Sjóðið þykknið á pönnunni nokkra stund og blandið karrí,
fiskisósu, tamari-sósu,og pálmasykri saman við. Skerið kjúlinga-
bringurnar í þumlungsstóra bita og setjið út í kókossoðið. Hrærið vel
í á meðan kjúklingurinn eldast. Hellið afganginum af kókosmjólkinni
út í, kremjið límónulaufin og sáldrið út í og látið allt sjóða um stund
(2-3 mínútur). Þegar kjúklingurinn hefur eldast í gegn, setjið þá
ananasbita út í og hitið áfram í ca 1 mínútu. Berið fram með hrís-
grjónum. (Þeir sem ekki vilja hrísgrjón geta borðað réttinn á vænu
beði af ísbergssalati) Hver og einn á sínum diski sáldrar blöndu af
ferskum kóríander og chilli yfir réttinn, allt eftir þori og smekk. ■
3-4 kjúklingabringur
1 dós kókosmjólk
1 msk. milt karrímauk
1 msk. fiskisósa
1 msk. tamari soyasósa
1 msk. pálmasykur
1 dós ananas (hellið soðinu af og skerðí bita)
2 kaffir límónulauf (þurrkuð lauf eru kramin,
fersk skorin fínt)
1 rauður chilli ( fræhreinsaður og skorinn í
fínar sneiðar)
1/2 búnt ferskur kóríander (gróft rifinn)
Harðsoðið egg
Eggið skal setja í tóman pott og láta kalt vetna renna yfir það, þar til að flýtur vel yfir eggið.
Settu pottinn á eldavélina og hitaðu eggið þar til vatnið fer að sjóða, þá skal draga úr hitanum
og láta pottinn standa á volgri hellunni í 10 til 15 mínútur til að fá harðsoðið egg. Taktu eggið
úr vatninu með skeið og láttu það kólna. [ ]
SÓMABAKKAR
Nánari uppl‡singar á somi.is
*Gildir a›eins ef panta› er fyrir meira en 3.000 kr.
PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING*
Írska viskíið Jameson hefur verið vinsælasta viskíið
hér á landi um árabil. Viskí frænda okkar Íra virðist
falla Íslendingum afar vel, það er hreint, þægilegt og
milt með létt sætum vanillukeim. Það hentar vel í
írskt kaffi, „Irish coffee“ en fátt er betra í vetrarkuld-
anum. Viskí er líka ákaflega gott til blöndunar í ein-
falda kokkteila, t.d. er gott að fylla upp með klaka og
smá skvettu af sódavatni eða engiferöli og skreyta
með límónusneið.
Jameson-viskí fæst í mörgum stærðum í
Vínbúðum, í 350 ml og 500 ml fleygum
og 750ml og 1 lítra flöskum.
Jameson:
Jafnt í írskt kaffi og kokkteila
Faxe Premium er nú kominn í nýjan búning, hálfgerð víkingaklæði.
Þar leikur litli víkingurinn aðalhlutverk sem tákn Faxe og hafa aug-
lýsingar með honum vakið mikla athygli undanfarið. Eru þær hluti
af alþjóðlegri herferð framleiðandans og mega Íslendingar eiga
von á að sjá besta vininn, litla víkinginn, halda áfram að reyna að
bjarga klaufskum karlmönnum sem eru búnir að koma sér í
klemmu í ýmsum aðstæðum. Fyrir tveimur árum hóf
Bryggerigruppen að selja Faxe á ný til Íslands eftir nokkurra ára
hlé. Ákveðið var að bjóða Faxe á lægra verði en dæmi voru um
hérlendis. Markaðshlutdeild bjórsins hefur tífaldast á þessu tíma-
bili og nemur nú um 10%. Þegar Faxe kom á markaðinn var ódýr-
asti bjórinn í Vínbúðum á 189 kr. en með innkomu Faxe á lægra
verði jókst samkeppnin mjög og ýmsar tegundir lækkuðu í verði.
Verð í Vínbúðum er 129 kr. í 33 cl dós og 159 kr. í 50 cl dós.
Faxe:
Litli víkingurinn vekur athygli