Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.01.2005, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 07.01.2005, Qupperneq 36
28 7. janúar 2005 FÖSTUDAGUR Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ GELGJAN ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Jerry Scott & Jim Borgman Eftir Frode Överli R V 20 24 Ruslatunnur og fötur í miklu úrvali Úti sem inni Vorönn Kvennakórs Reykjavíkur Æfingar á vorönn hefjast miðvikudaginn 12. janúar kl. 20.00. Í september 2005 fer Kvennakór Reykjavíkur í viku söngferðalag til Finnlands, Eistlands og Svíþjóðar og hefst undirbúningur ferðarinnar nú á vorönn. Kórinn getur bætt við nokkrum röddum, áhugasamar hafi samband í síma 896 - 6468 eftir kl. 16:00. Kórskóli Kvennakórs Reykjavíkur Kennsla hefst miðvikudaginn 19. janúar kl. 18:00. Í kórskólanum er farið yfir undirstöðuatriði söngs og þá sérstaklega söngs í kór þar sem unnið er með sjálfstæði radda og samhljóm. Innritun í síma 896 - 6468 eftir kl. 16:00. Senjorítur Kvennakórs Reykjavíkur Æfingar hefjast mánudaginn 10. janúar kl. 16:00. Æfinga- og kennsluaðstaða er í húsnæði Sjómannaskóla Íslands við Háteigsveg. Kórstjóri og kennari er Sigrún Þorgeirsdóttir. Í fyrradag rakaði ég af mér allt hár- ið. Ég veit ekki alveg afhverju, en þegar ég renndi sköfunni yfir höfuðleðrið á mér velti ég því fyrir mér hvort þetta væri ekki við hæfi á ára- mótum, þegar okkur dreymir mörgum um nýtt upphaf. Nýtt ævintýri fyrir hár mitt? Hver veit nema það verði allt öðruvísi þegar það vex aftur? Kannski breytir það um lit eða ég fæ loksins náttúrulegt afró? Hmm, kannski ekki? Það gengur víst ekki og þegar það vex aftur, þá verður það í sama músabrúna litnum, og eins þunnt og slétt eins og áður. Þannig forritaði náttúran frum- ur mínar í upphafi og ég get lítið sem ekkert gert, vilji ég ekki eiga í stöðugri baráttu við hin óumflýjanlegu náttúruöfl. Þetta er eins með allt í náttúr- unni. Við getum kannski fengið falsað okkur nýjar byrjanir, en við getum aldrei öðlast nýtt upp- haf. Það eina sem við getum gert í lífinu er að sættast við fortíð okkar, og finna leið til þess að halda okkur í jafnvægi eða jafn- vel hamingjusömum í nú-inu. Framtíðin er ekki til … enn þá. Að halda huga okkar í fortíð- inni og mistökum okkar þar, er eins og að ákveða að tattúvera syndajátningu á ennið á sér í hreinni sjálfsvorkunn, bara til þess að minna sig á hversu slæma hluti maður hefur fram- kvæmt á ævinni í hvert skipti þegar maður lítur í spegil. Betra er að læra af mistökum sínum og nýta reynslu sína til þess að hjálpa öðrum að sjá villu síns vegar. Nú er komið nýtt ár, vinsam- legast lifið í því en ekki árinu sem var að líða. ■ STUÐ MILLI STRÍÐA BIRGIR ÖRN STEINARSSON REYNDI AÐ FALSA NÝJA BYRJUN Ágætis byrjun? M YN D : H EL G I S IG U RÐ SS O N Seldu 10.000! En haltu aftur af nikkelinu og við sjáum hvernig Wall Street kemur út! Fyrir 300 kall færðu hann með silfraðan og þá erum við kvittir. En ég var að fá nýjan bíl sem er sá besti fyrir Norður- pólinn! Nei, ég þarf ekki að kaupa neinn leir. Ég kann að búa til apafígúrur úr eyrnamerg. Og ég er sáttur við að það er hann sem er vinur minn! Mamma, mínir villtustu draumar hafa ekkert með rúmfræði að gera. Hafðir þú, í þín- um villtustu draumum, gert þér vonir um að fá níu í rúm- fræði? Níu í rúmfræði?? Palli, það er frábært! Allir kettir eru uppfullir af forvitni! Forvitni! Forvitni!!! Alltaf að leita! Alltaf að reyna að skilja! Við verð- um að vita svörin! Af hverju heldur þú að svo sé? Hef ekki hugmynd! Jáh… Sko! Það er ekki hvernig þú spyrð heldur hvern. Pabbi, megum við Hannes fara út að leika í rigningunni? Mamma, megum við Hannes fara út að leika í rigningunni? Að sjálf- sögðu! Það verður skemmti- legt. Nei, þið verðið svo skítug.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.