Fréttablaðið - 07.01.2005, Qupperneq 43
Bandaríska indí-hljómsveitin
Modest Mouse byrjar tónleika-
ferð sína um Bandaríkin þann 21.
janúar í Nashville. Síðasta plata
sveitarinnar, Good News for
People Who Love Bad News, var
ofarlega á listum gagnrýnenda
yfir bestu plötur síðasta árs. Hef-
ur hún jafnframt selst meira en
hinar þrjár síðustu plötur Modest
Mouse til samans.
Sveitin hefur verið tilnefnd til
tveggja Grammy-tónlistarverð-
launa, annars vegar fyrir besta
rokklagið (Float On) og hins vegar
fyrir bestu framsæknu plötuna,
en hún var tekin upp við erfiðar
aðstæður. Söngvarinn og gítar-
leikarinn Isaac Brock átti við
áfengisvandamál að stríða auk
þess sem trommarinn Jeremiah
Green þurfti að fara á geðsjúkra-
hús á meðan á upptökum stóð.
„Við ákváðum að halda áfram.
Þegar við höfðum komist að þeirri
niðurstöðu var eftirleikurinn auð-
veldur. Ég ákvað að hlutirnir yrðu
betri í framhaldinu,“ sagði Brock
í spjalli við Rolling Stone. ■
35FÖSTUDAGUR 7. janúar 2005
FRÁBÆR SKEMMTUN
SÍMI: 551 9000 www.regnboginn.is
Nýársmyndin 2005
Sýnd kl. 7.30 og 10
Frumsýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 b.i. 16
Sýnd kl. 4, 6 og 8
Sýnd kl. 10 Stranglega b.i. 16
Sýnd kl. 4 Ísl. tal
VAMPÍRUBANINN BLADE ER MÆTTUR
AFTUR HÆTTULEGRI EN NOKKRU SINNI FYRR
"séríslenskt
Fönn, fönn,
fönn!"
"...bráðvel heppnuð
skemmtun, grín
og fjör..."
HHH
ÓHT Rás 2
"séríslenskt
Fönn, fönn,
fönn!"
"...bráðvel heppnuð
skemmtun, grín
og fjör..."
HHH
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 b.i. 14
Hann er á toppnum...
og allir á eftir honum
Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 10
Sýnd kl. 8 & 10 b.i. 16 Sýnd kl. 6
Yfir 19.000 áhorfendur
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 b.i. 16
Ein stærsta opnun
frá upphafi í des í USA.
HHH Balli PoppTíví
MBL HHH Algjört augnayndi!
FBL Hressir ræningjar!
Kvikmyndir.com HHH
Sýnd kl. 5, 7.30 & 10
Sýnd kl. 5 m/íslensku tali
Sýnd kl. 5, 7.30 & 10 m/ens. tal
HHH
kvikmyndir.com
HHHHH
Mbl
Yfir 22.000 gestir
Yfir 19.000 áhorfendur
F R U M S Ý N I N G
Þessi plata birtist hér og þar á list-
um grúskara yfir bestu plötur árs-
ins sem var að líða. Hún ætti þó að
höfða til fleiri en bara þeirra sem
stinga nefi sínu djúpt ofan í brunn
tónlistarútgáfunnar í leit að fersk-
asta vatninu. Þetta er í rauninni
frekar venjulegt gítar-nýbylgju-
popp. Svolítið sætt, vel samið,
snyrtilega útsett og grípandi. Þetta
er þriðja breiðskífa sveitarinnar og
hún ber þess merki að hér sé reynd
sveit á ferð sem er þegar búin að
slípa sig til og finna sinn eigin
hljóm. Hvergi missir sveitin marks
í tilraunum sínum enda eru þær
sjaldnast öfgafullar. Ef þetta væri
málverk, væri þetta falleg lands-
lagsmynd í haustlitunum. Þetta er
mjög bandarísk tónlist. Samlíking
við sveitir á borð við Jimmy Eat
World og Slint eru ekki fjarri lagi,
og ótrúlegt en satt þá minnir söng-
rödd söngvarans og gítarspil mig á
köflum á nýjustu breiðskífu Blink
182, þó svo að þessi tónlist sé víðs-
fjarri þeim heim sem sú sveit til-
heyrir. Hér er ekkert unglingaþung-
lyndi eða stuttbuxur, bara metnað-
arfullt og gáfulegt popprokk sem
rennur einstaklega vel niður. Net-
notendum er bent á lögin This Red
Book og Syracuse sem gott dæmi
um snilligáfu þessarar sveitar.
Þægileg leið til þess að hefja dag-
inn. Birgir Örn Steinarsson
Þægindarokk?
PINBACK:
SUMMER IN ABBANDON
NIÐURSTAÐA: Sætt nýbylgjupopp sem ætti ekki að
geta gengið fram af neinum. Pinback tekst hið ótrú-
lega, að brúa bilið á milli Slint og Jimmy Eat World.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
útsala
40-80% afsláttur
Spútnik / klapparstígur 27 og Kringlunni
In GoodCompany
od
any
In Good
Company
*Aðalvinningur verður dreginn út úr öllum innsendum SMS skeytum • Vinningar verða afhendir í BT Smáralind, Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið
Klikkaður útsölu-leikur!
Allir
sem taka þá
tt
fá glaðning!
Aðal-
vinnin
gur er
MEDI
ON XX
L
tölva
með 1
7”
flatsk
já!
■ TÓNLEIKAR
FRÉTTIR AF FÓLKI
Bú d d a t r ú a r -m a ð u r i n n
Richard Gere
hefur hvatt
Palestínumenn til
að kjósa í vænt-
anlegum forseta-
kosningum í land-
inu. Gere hefur
margoft heimsótt
Mið-Austurlönd á
u n d a n f ö r n u m
árum og er umhugað
um ástandið á svæðinu.
Hljómsveitin Ske er í afskaplega
góðu skapi þessa dagana. Í kvöld
býður hún landsmönnum ókeypis
á tónleika í Grand Rokk þar sem
leikin verða lög af plötunni Feel-
ings Are Great, sem kom út núna
fyrir jólin.
„Þetta verða útgáfutónleikar,“
segir Guðmundur Steingríms-
son. „Það er ágætt að halda út-
gáfutónleika í rólegheitunum að
loknum jólaerlinum. Við spilum
ekkert oft á tónleikum, en núna
er bara sá gállinn á okkur.“
Hljómsveitin ætlar einnig að
leika lög af fyrri breiðskífu
sinni, Life, Death, Happiness &
Stuff, svo þetta verða langir og
góðir tónleikar.
„Við ætlum að spila lögin að-
eins öðru vísi en við höfum gert.
Við verðum með meiri el-
ektróník. Við byrjuðum þannig
og erum að fikra okkur hægt inn
í það aftur.“
Hljómsveitin hefur yfir forláta
tölvu að ráða, sem jafnan gengur
undir nafninu Jóakim Brak og fær
að leika nokkuð stórt hlutverk á
þessum tónleikum.
„Hún framleiðir brak og
bresti, og við viljum meina að
hún sé austurrískur tilraunatón-
listarmaður sem var uppi ein-
hvern tímann á 19. öld.“
Fyrir utan almenna ánægju,
sem er ríkjandi í hljómsveitinni
nú um stundir, gefast ýmis til-
efni til þess að fagna á þessum
tónleikum.
„Ég held að David Bowie, Karl
Örvarsson og Elvis Presley eigi
afmæli á miðnætti, svo það er
aldrei að vita nema við brestum
út í afmælissöng. Svo er líka
gleðiefni að bæði Ragnar Bjarna-
son og Ási í Smekkleysu fengu
fálkaorðuna.“ ■
Modest Mouse í tónleikaferð
MODEST MOUSE Hljómsveitin Modest
Mouse sló loks í gegn með plötunni Good
News For People Who Love Bad News.
■ TÓNLIST
HLJÓMSVEITIN SKE Efnir til útgáfutón-
leika á Grand Rokk í kvöld.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILLI
Fikra sig aftur
inn í tölvuhljóðin
Með Fréttablaðinu
alla fimmtudaga