Fréttablaðið - 10.01.2005, Page 4
4 10. janúar 2004 MÁNUDAGUR
Ný raforkulög:
Grænmetisframleiðslan í óvissu
LANDBÚNAÐUR Að öllu óbreyttu
stórhækkar verð á rafmagni til
garðyrkjubænda um næstu mán-
aðamót. Unnið er að lausn málsins
því verði ekki að gert mun græn-
metisframleiðsla í landinu leggj-
ast af.
Með nýju raforkulögunum,
sem tóku gildi um áramót, falla
niður þeir afslættir sem græn-
metisbændur hafa notið en raf-
magn er einn dýrasti liður
framleiðslunnar.
Vinna við að athuga hvernig
hægt er að koma til móts við
framleiðendur er nýhafin en að
henni koma fulltrúar garðyrkju-
bænda, landbúnaðarráðuneytis,
iðnaðarráðuneytis og orkufyrir-
tækjanna. Gömlu taxtarnir áttu að
falla úr gildi um áramót en hafa
verið framlengdir út janúarmán-
uð.
Verði ekkert að gert hækkar
raforkuverð framleiðenda um 30
til 100 prósent, allt eftir því hvað
og hvernig menn rækta.
Helgi Jóhannesson, formaður
Sambands garðyrkjubænda, seg-
ist bjartsýnn á farsæla lausn
málsins en bendir á að óvissan sé
óþægileg. Ómögulegt sé að þróa
greinina eða gera framtíðarplön á
meðan óvissa um svo veigamikið
atriði ríkir.
- bþs
Yfirburðasigur
Mahmouds Abbas
Mahmoud Abbas er nýr forseti Palestínu. Hann ætlar að endurvekja friðarviðræðurnar við Ísraela
eins fljótt og auðið er. Það eru erfiðir tímar framundan að sögn Abbas.
PALESTÍNA, AP Mahmoud Abbas,
frambjóðandi Fatah, stærstu
fylkingarinnar innan Frelsissam-
taka Palestínumanna (PLO), sigr-
aði örugglega í
forsetakosningunum sem fram
fóru í gær. Samkvæmt útgöngu-
spám fékk hann á bilinu 66 til 70
prósent greiddra atkvæða.
Mustafa Barghouti, helsti keppi-
nautur Abbas, fékk um 20 prósent
atkvæða. Enginn hinna fimm
frambjóðendanna náði tíu pró-
senta fylgi.
Gríðarleg fagnaðarlæti brut-
ust út víðsvegar um Palestínu
þegar spárnar voru kunngjörðar.
Fólk söng á götum úti og skotið
var úr rifflum upp í loftið. Abbas,
sem kallaður er Abu Mazen í
löndunum fyrir botni Miðjarðar-
hafs, hefur lofað að gera endur-
bætur á palestínska
stjórnkerfinu, sem eftir áratuga
stjórn Jassers Arafats er talið
gjörspillt og óskipulagt. Abbas
hefur ennfremur sagst ætla að
endurvekja friðarviðræðurnar
við ísraelsk stjórnvöld sem hafa
legið niðri síðustu fjögur ár.
Kosning Abbas er talin þýða að
nýir tímar séu framundan í
Palestínu. Abbas, sem hefur
gagnrýnt ofbeldi palestínskra
öfgamanna, nýtur víðtæks stuðn-
ings alþjóðasamfélagsins enda
þykir hann hófsamur leiðtogi.
„Það eru erfiðir tímar
framundan,“ sagði Abbas þegar
hann ávarpaði fjölda stuðnings-
manna sinna í borginni Ramallah.
„Verkefnin eru óþrjótandi við að
byggja upp palestínskt þjóðfélag
og tryggja öryggi borgarana.“
Ariel Sharon, forsætisráð-
herra Ísraels, segist reikna með
að funda með Abbas fljótlega.
Hann sagði að sem tákn um vin-
semd myndu ísraelsk stjórnvöld á
næstunni sleppa hluta af um sjö
þúsund palestínskum föngum
sem eru í fangelsum í Ísrael.
„Ég held að þessar kosningar
sýni að ákveðnar breytingar séu
að eiga sér stað í Palestínu,“ sagði
Raanan Gissin, aðstoðarmaður
Sharons. „Við tökum þessum
breytingum fagnandi og vonum
að Abu Mazen leiði palestínsku
þjóðina á leið sátta.“ ■
ÖGMUNDUR JÓNASSON
Abbas hafði arfleifð Arafats með sér.
Ögmundur Jónasson:
Áfangi í lýð-
ræðisþróun
PALESTÍNA „Verði niðurstöðurnar á
þessa leið eru úrslitin í samræmi
við skoðanakannanir,“ sagði Ög-
mundur Jónasson alþingismaður í
samtali við Fréttablaðið í gær-
kvöld. Ögmundur fylgdist með
kosningunum í Palestínu ásamt
fleiri Íslendingum.
„Mustafa Barghouti má una vel
við sinn hlut því allt stofnanavald-
ið hér lagðist á sveif með Abbas
sem hafði að auki arfleifð Arafats
með sér.“ Ögmundur telur víst að
Barghouti og hans menn uni úr-
slitunum og veiti Abbas lýðræðis-
legt aðhald á kjörtímabilinu.
Margir hunsuðu kosningarnar
og telja að nær hefði verið að
kjósa útlagastjórn: „Þetta eru
minnihluta raddir. Yfirgnæfandi
meirihluti var fylgjandi kosning-
unum og lítur á þær sem áfanga í
lýðræðisþróun í Palestínu.“
- bþs
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
113,8162
SALA
GENGI GJALDMIÐLA 09.01.2005
GENGIÐ
Bandaríkjadalur 62,89 63,19
Sterlingspund 118,41 118,99
Evra 83,23 83,69
Dönsk króna 11,184 11,25
Norsk króna 10,1 10,16
Sænsk króna 9,205 9,259
Japanskt jen 0,6022 0,6058
SDR 96 96,58
Heimild: Seðlabanki Íslands
TÓMATARÆKTUN
Verði ekkert að gert ganga nýju raforkulögin að grænmetisframleiðslunni dauðri.
STUÐNINGSMAÐUR ABBAS
Ungur palestínumaður ber merki Mahmouds Abbas á höfuðfati sínu. Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út víðsvegar
um Palestínu þegar útgönguspár voru kunngjörðar.
ARIEL SHARON
Sharon ætlar að funda með Abbas fljótlega.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
FÓLKIÐ SAKAÐI EKKI Jeppi valt
við Svínavatn í umdæmi lögregl-
unnar á Selfossi um fimmleytið í
gær. Tvennt var í bílnum og sak-
aði ekki. Lögreglan segir bílinn
illa farinn og þurft hafi að fjar-
lægja hann með kranabíl.