Fréttablaðið - 10.01.2005, Page 8

Fréttablaðið - 10.01.2005, Page 8
KÁRAHNJÚKAR Ómar R. Valdimars- son, talsmaður Impregilo, segir að laun erlendra starfsmanna hafi verið greidd samkvæmt sam- komulagi við ASÍ frá 10. október 2003. Samkvæmt því skyldu er- lendir starfsmenn sem vinna und- ir virkjunarsamningnum fá ís- lenskan launaseðil þar sem fram koma vinnutímar og tímakaup. Frá brúttólaunum væri dregin fjárhæð sem svarar til lífeyris- sjóðs, skatta og greiðslu til stétt- arfélags. Launaupphæðin sem eftir standi sé lágmarksgreiðsla og fari inn á reikning starfs- manns, hvar í heiminum sem það er. Ef erlenda launauppgjörið gefi lægri niðurstöðu en það íslenska fái starfsmaðurinn uppbót svo að hann fái að minnsta kosti sömu upphæð og íslenskir samstarfs- menn. Gefi erlendi samningurinn betri niðurstöðu þá njóti hann góðs af því. Ómar telur fjarstæðu að Impregilo hafi stjórnvöld í vasan- um og komist upp með ýmislegt sem aðrir fái ekki. Fyrirtækið vinni ágætlega með íslenskum stjórnvöldum og fái að kenna á því ef eitthvað sé að. Alrangt sé að fyrirtækinu hafi verið hótað dagsektum fyrir það sem aflaga hafi verið farið og þeim ekki beitt. „Að vissu leyti má segja að í upphafi framkvæmdanna hafi yfirvöld sýnt fyrirtækinu skiln- ing vegna þess hve skammur und- irbúningstíminn var en fyrirtæk- ið fær enga sérmeðferð,“ segir Ómar. Um 1.000 starfsmenn vinna hjá Impregilo á Kárahnjúkum. Ómar segir að um 600 þeirra séu frá löndum innan Evrópu. „Þegar Impregilo bauð í þessa fram- kvæmd taldi fyrirtækið sig geta gert það á þeim kostnaði sem í til- boðinu stóð vegna þess að það ætlaði að bjóða laun samkvæmt virkjanasamningi. Það stendur ekki til og stóð ekki til að yfir- bjóða fólk. Það er ekki þar með sagt að enginn sé yfirborgaður. Það er vissulega samkeppni og margir iðnaðarmenn eru yfir- borgaðir og fólk í stjórnunar- störfum og fleiri störfum eru á hærri launum en virkjanasamn- ingurinn kveður á um. Hvað varð- ar kínverska starfsmenn og starfsmenn utan Evrópska efna- hagssvæðisins þá hefur fyrirtæk- ið verið í stóru verkefni í Kína. Þar er meirihluti starfsfólksins Kínverjar. Þeir hafa reynst fyrir- tækinu ákaflega vel og unnið við svipuð skilyrði. Fyrirtækið treystir þeim og þætti því æski- legt að geta nýtt þessa starfs- krafta á Íslandi líka.“ Kína er kommúnistaríki og kínverska þjóðin ein sú kúgaðasta í heimi. Ómar segir að Impregilo sækist eftir því að fá Kínverja til starfa því að fyrirtækið þekki þá og treysti þeim, þeir séu harðdug- legir og framleiðnin mikil. Fárán- legt sé að halda að áhugi Impreg- ilo á þeim sé vegna þess að þeir segi hugsanlega síður skoðun sína og láti bjóða sér meira en Íslend- ingar. „Þú lætur að því liggja að Impregilo sæki í starfsmenn sem eru fullir þrælsótta. Kína á yfir 6.000 ára sögu sem er langt í frá öll lituð af kúgun núverandi vald- boða. Kínverjar hafa ekki alltaf verið kúgaðir þó að þeir hafi kannski verið það síðustu 70 ár.“ Verktakar telja ljóst í upp- runalegu tilboði að Impregilo hafi ekki gert ráð fyrir að borga nema þriðjung af íslenskum launum. Ómar segir ekki mikið að marka þessa gagnrýni því hún komi frá Jóhanni Bergþórssyni sem hafi gert tilboð í verkið með öðru fyrirtæki. Hann hljóti að vera lit- aður af því. Ómar segir að gerð hafi verið bragarbót á umfjöllun Impregilo á umsóknum. Hæfum umsækj- endum sé öllum svarað, hinir mæti afgangi. Betur hefði verið að verki staðið ef öllum hefði ver- ið svarað bréfleiðis. Hvað varðar gagnrýni á það að erlendir starfsmenn séu fluttir beint að Kárahnjúkum án þess að fara fyrst í heilbrigðisskoðun þá segist Ómar ekki þekkja verk- lagsreglurnar en heilsugæslan á Kárahnjúkum sé opin allan sólar- hringinn og hún sé rekin í sam- vinnu við Heilbrigðisstofnun Austurlands. Búist er við að fljótlega liggi fyrir ákvörðun Vinnumálastofn- unar um undanþágu fyrir 44 Kín- verja, níu Pakistana og einn Kól- umbíumann. Ómar segir að takist fyrirtækinu ekki að fjölga starfs- mönnum og ná upp framleiðni á svæðinu þá geti vinna við gerð Kárahnjúkavirkjunar dregist „en að kalla þetta hótun er algjörlega fráleitt,“ segir hann. ghs@frettabladid.is 8 10. janúar 2004 MÁNUDAGUR Tæpar sex milljónir fyrir byggingarrétt hverrar íbúðar í Garðabæ: Hátt lóðaverð þrátt fyrir nægt framboð LÓÐAVERÐ Bæjarstjórn Garða- bæjar tekur afstöðu á þriðjudag til tilboðanna 49 sem bárust í byggingarrétt tveggja blokka við Bjarkarás í Garðabæ. Hæsta gildandi tilboð hljóðar upp á rúmar 175 milljónir króna, eða um 5,8 milljónir á íbúð. Ásdís Halla Bragadóttir, bæj- arstjóri Garðabæjar, segir verð- tilboð í lóðirnar umtalsvert hærra en búist hafi verið við. Aldrei hafi fleiri lóðir verið í uppbyggingu í Garðabæ: „Verið er að byggja 760 íbúð- ir í Sjálandi. Það á að fara að byggja milli 400 og 500 íbúðir í Akrahverfi. Við erum að skipu- leggja fleiri hverfi og því engin tengsl milli þess hve margar lóðir voru boðnar út núna og þessa háa verðs.“ Björn Þorri Viktorssson, for- maður Félags fasteignasala, segir verðið vekja athygli í ljósi góðs framboðs á lóðum víða um höfðuborgarsvæðið. Staðsetning blokkanna hafi ráðið verðinu. Frjálsi fjárfestingabankinn átti tvö hæstu tilboðin í lóðirnar og dró það hærra til baka. Ekki náðist í forsvarsmenn bankans. - gag Impregilo fær ekki sérmeðferð Talsmaður Impregilo er ósáttur við gagnrýni á fyrirtækið síðustu daga. Hann telur flestar fullyrðingar verkalýðshreyfingarinnar rangar og ekki rétt að Impregilo hafi hótað Íslendingum. LÍK FÓRNARLAMBA Fimm borgarar létust í sprengjuárás bandaríska hersins í Mosul. Bandaríski herinn: Borgarar skotnir BAGDAD, AP Bandaríski herinn skaut tvo íraska lögreglumenn og tvo almenna borgara til bana fyr- ir mistök á laugardaginn. Mistökin urðu eftir að ráðist var á bílalest hersins suður af Bagdad. Talsmenn hersins hafa ekki gefið út neina yfirlýsingu í kjölfar slyssins. Þetta eru önnur mistök hersins á skömmum tíma. Fyrir nokkrum dögum létust fimm borgarar þegar herinn sprengdi hús í borginni Mosul. Forsvarsmenn hersins hafa beðist afsökunar á sprengingunni. Árásin á bílalestina á laugar- daginn varð við Jussifiya sem er innan svæðis sem kallast þríhyrn- ingur dauðans. Þar hafa uppreisn- armenn súnní-múslima haldið uppi árásum um langa hríð. ■ 1Hvers vegna bað Alex Fergusson,framkvæmdastjóri Man. Utd., stuðn- ingsmenn félagsins afsökunar? 2Hversu hátt hlutfall háskólanema færnámslán frá Lánasjóði íslenskra námsmanna? 3Hvar í Mið-Austurlöndum voru for-setakosningar í gær? SVÖRIN ERU Á BLS. 34 VEISTU SVARIÐ? – hefur þú séð DV í dag? Börnin horfðu á móður sína barða af fjórum konum MIÐBÆR GARÐABÆJAR Fasteignafélagið Hlíð, sem er í eigu Frjálsa fjárfestingabankans, átti hæsta tilboðið sem barst í lóðir við Bjarkarás í Garðabæ. Það var upp á rúmlega 200 milljónir króna en var dregið til baka þar sem bankinn átti einnig næsthæsta tilboðið. UNNIÐ VIÐ KÁRAHNJÚKA Um 1.000 starfsmenn vinna hjá Impregilo á Kárahnjúkum. Ómar segir að um 600 þeirra séu frá löndum innan Evrópu. ÓMAR VALDIMARSSON Talsmaður Impregilo segir að farið sé eftir reglum á Kárahnjúkum og erlendum starfsmönnum greitt samkvæmt sam- komulagi frá því í október 2003.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.