Fréttablaðið - 10.01.2005, Qupperneq 11
11MÁNUDAGUR 10. janúar 2004
STJÓRNMÁL Nefnd hefur verið skip-
uð til þess að fjalla um sjávarút-
veginn og hágengið. Henni er ætl-
að að gera úttekt á stöðu sjávarút-
vegsins í ljósi þeirrar hækkunar
sem orðið hefur á gengi íslensku
krónunnar og væntinga um að
gengið haldist hátt um nokkurn
tíma. Árni M. Mathiesen sjávar-
útvegsráðherra kynnti þetta á
fundi í Stykkishólmi í gær. For-
maður nefndarinnar er Friðrik
Már Baldursson en í henni eru
einnig þeir Loftur Ólafsson og
Davíð Ólafur Ingimarsson.
Nefndinni er einnig ætlað að
fjalla almennt um áhrif mismun-
andi hagstjórnaraðgerða á stöðu
sjávarútvegsins og hvort ástæða
sé fyrir stjórnvöld að bregðast
með einhverjum hætti við þeirri
stöðu sem atvinnugreinin verður
í. Ætlast er til að nefndin skili nið-
urstöðum sínum innan tveggja
mánaða. ■
ÞENSLA Vegna mikilla byggingar-
framkvæmda á Egilsstöðum er
sýnt að Hitaveita Egilsstaða og
Fella (HEF) mun ekki anna eftir-
spurn eftir heitu vatni í náinni
framtíð en á síðustu misserum
hafa verið byggðar um 400 íbúðir
í sveitarfélaginu. Til að bregðast
við því mun hitaveitan ráðast í
framkvæmdir á árinu og er ætl-
unin að taka 100 milljóna króna
lán hjá KB banka.
Vilji er innan bæjarstjórnar
Fljótsdalshéraðs til að breyta
rekstri HEF í einkahlutafélag en
frá og með 1. janúr sl. tók HEF að
sér rekstur á vatnsveitu sveitar-
félagsins.
- kk
VIÐSKIPTI Veltan í fasteignavið-
skiptum á höfuðborgarsvæðinu
jókst um ríflega 50 milljarða
króna á milli áranna 2003 og 2004,
að því er fram kemur hjá Fast-
eignamati ríkisins.
Á nýliðnu ári var 10.045 kaup-
samningum um fasteignir þing-
lýst við embætti sýslumanna á
höfuðborgarsvæðinu. Heildar-
upphæð veltu nam 177,0 milljörð-
um króna. Meðalupphæð á hvern
kaupsamning var 17,6 milljónir
króna.
Á árinu 2003 var 8.465 kaup-
samningum þinglýst og nam upp-
hæð veltunnar 125,6 milljörðum
króna. Meðalupphæð á hvern
kaupsamning var 14,8 milljónir.
Gríðarleg aukning varð í veltu
á fasteignamarkaðinum á milli 4.
ársfjórðungs 2003 og 2004, eða
80,9 prósent. Á síðustu þremur
mánuðum 2004 var þinglýst 3.337
kaupsamningum, samtals að upp-
hæð 62,8 milljarðar króna á móti
2.298 kaupsamningum upp á 34,7
milljarða á síðustu þremur mán-
uðum ársins 2003.
- jss
ÁRNI M. MATHIESEN
Hann kynnti þá ákvörðun sína í gær að
skipa nefnd til þess að fjalla um sjávarút-
veginn og hágengið.
Sjávarútvegurinn og hágengið:
Sjávarútvegsráðherra
skipar nýja nefnd
NÝBYGGINGAR VIÐ SELBREKKU
Á EGILSSTÖÐUM
Óskað var eftir tilboðum í lán vegna
hitaveituframkvæmda frá fimm fjár-
mögnunaraðilum og bauð KB banki
lægstu vextina, 4,5%.
Fljótsdalshérað:
Vantar heitt vatn
FASTEIGNAMARKAÐURINN
Mikið líf var í fasteignasölu á síðasta ári, einkum á þremur síðustu mánuðum þess.
SAMANBURÐUR
4. ársfjórðungur 2004 og 4. ársfjórðungur 2003
4. ársfj. 2004 4. ársfj. 2003 Breyting
Velta (m.kr) Fjöldi Velta (m.kr) Fjöldi Velta (m.kr) Fjöldi
Fjölbýli 41.316 2.707 23.674 1.793 74,5% 51,0%
Sérbýli 12.423 459 7.426 347 67,3% 32,3%
Aðrar eignir en
íbúðarhúsnæði 9.096 171 3.634 158 150,3% 8,2%
Samtals 62.836 3.337 34.734 2.298 80,9% 45,2%
Fasteignaviðskipti á höfuðborgarsvæðinu:
Veltan jókst um
50 milljarða
Líbanon:
Friðargæslu-
liðar létust
í árásum
LÍBANON, AP Tveir menn létust og
tveir særðust í sprengjuárásum
Hezbollah-skæruliða í Líbanon
við landamæri Ísraels.
Franskur friðargæsluliði Sam-
einuðu þjóðanna lést sem og ísra-
elskur hermaður. Sænskur friðar-
gæsluliði og líbanskur maður
særðust. Skæruliðarnir segja að
einn úr þeirra röðum hafi látist í
átökum við ísraelska hermenn.
Um tvö þúsund friðargæsluliðar
eru í Ísrael þar af eru tvö hundruð
Frakkar.
Í yfirlýsingu frá Hezbollah
segir að árásin hafi verið gerð til
þess að reyna að ná aftur landi
sem skæruliðasamtökin segja til-
heyra Líbanon. ■