Fréttablaðið - 10.01.2005, Síða 12
12 10. janúar 2004 MÁNUDAGUR
SANNUR STUÐNINGSMAÐUR
Stuðningsmaður Mahmouds Abbas, for-
setaframbjóðanda í Palestínu, ekur um á
bíl sínum í Khan Younis flóttamanna-
búðunum.
Landspítali – háskólasjúkrahús:
Hefur yfirtekið starfrækslu sjúkrahótels
HEILBRIGÐISMÁL Landspítalinn –
háskólasjúkrahús hefur tekið
við starfrækslu sjúkrahótels frá
og með áramótum.
Síðastliðna þrjá áratugi hefur
Rauði kross Íslands staðið að
rekstri sjúkrahótels, nú síðast í
samvinnu við Fosshótel og LSH.
Rauði krossinn ákvað nýlega að
selja Fosshótelum húseign sína
við Rauðarárstíg 18.
LSH hefur gengið til samn-
inga við Fosshótel um áfram-
haldandi samstarf um rekstur
sjúkrahótels samkvæmt þjón-
ustusamningi sem undirritaður
var við Fosshótel Lind fimmtu-
daginn 23. desember og stað-
festur af Jóni Kristjánssyni
heilbrigðisráðherra. Samning-
urinn er til 5 ára.
Sjúkrahótel er hugsað sem
úrræði fyrir einstaklinga sem
þurfa heilsu sinnar eða aðstand-
enda vegna að dvelja fjarri
heimabyggð vegna rannsókna
og meðferða auk þess sem
sjúkrahótel nýtist þeim sem
dvalið hafa á sjúkrahúsi sem lið-
ur í frekari endurhæfingu og
bata.
Auk almennrar hótelþjónustu
er gestum veittur stuðningur og
ráðgjöf vegna heilsufarsvanda
og þeim liðsinnt við að sækja
heilbrigðisþjónustu. ■
Ófærð við Hvammstanga:
Tveir bílar
festust í sama
skaflinum
ÓFÆRÐ Tvisvar þurfti að kalla út
Björgunarsveitina Káraborg á
Hvammstanga aðfaranótt laug-
ardags vegna vegfarenda sem
lentu í vandræðum vegna
ófærðar á þjóðveginum milli
Hvammstanga og Víðihlíðar.
Við fyrra útkallið þurfti að
aðstoða vegfaranda sem var
fastur í skafli við bæinn Vatns-
horn, en greiðlega gekk að losa
bílinn og var honum fylgt af
stað aftur.
Við seinna útkall var óskað
eftir aðstoð við vegfaranda sem
sem reyndist vera fastur í sama
skafli og fyrri vegfarandi.
Greiðlega gekk að losa bílinn úr
skaflinum. - keþ
ÞENSLA Fasteignamat á íbúðar-
húsnæði í Fjarðabyggð hækkaði
um 30 prósent um síðastliðin ára-
mót. Hækkunin var hvergi meiri
á landinu, en fasteignamat á sér-
býli á Seltjarnarnesi hækkaði
einnig um 30 prósent. Í septem-
ber síðastliðnum hækkaði fast-
eignamatið í Fjarðabyggð um 20
prósent og því nemur hækkunin
á síðustu fjórum mánuðum 56
prósent.
Tekjur sveitarfélaga vegna
fasteignaskatts, holræsagjalda
og vatnsskatts eru tengdar fast-
eignamatinu. Að sögn Gunnars
Jónssonar, forstöðumanns fjár-
mála- og stjórnsýslusvið Fjarða-
byggðar, aukast tekjur sveitar-
félagsins um 25 milljónir króna á
yfirstandandi ári vegna hækkun-
ar á fasteignaskattinum einum
og sér.
Hækkun fasteignamatsins
kemur í kjölfarið á mikilli hækk-
un húsnæðisverðs í Fjarðabyggð.
Að sögn Gísla M. Auðbergssonar,
fasteignasala á Eskifirði, tóku
fasteignir að hækka í verði um
leið og ákvörðun um byggingu ál-
vers í Reyðarfirði lá fyrir. „Fast-
eignamarkaðurinn á Austfjörð-
um svaf Þyrnirósarsvefni í
a.m.k. þrjá áratugi. Markaðurinn
hefur hins vegar aldrei verið líf-
legri en undanfarin tvö ár,“ segir
Gísli.
- kk
Lífleg fasteignasala í Fjarðabyggð:
Fasteignamat hækkar um helming
NÝBYGGINGAR Í FJARÐABYGGÐ
Í kjölfar ákvörðunar um byggingu álvers
hafa heilu íbúðahverfin risið á Reyðarfirði
og töluvert verið byggt á Eskifirði og
í Neskaupstað.
SJÚKRAHÓTEL
Landspítali – háskólasjúkrahús hefur tekið við rekstri sjúkrahótelsins við Rauðarárstíg.