Fréttablaðið - 10.01.2005, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 10.01.2005, Blaðsíða 13
13MÁNUDAGUR 10. janúar 2004 SAMGÖNGUR Sveitarstjórn Aust- urbyggðar hefur óskað eftir því við samgönguráðherra að opnun Fáskrúðsfjarðarganga verði flýtt um nokkra mánuði þar sem verkið er á undan áætlun. Að sögn Steinþórs Péturssonar, sveitarstjóra Austurbyggðar, er ólíklegt að ráðherra verði við óskinni þar sem Vegagerðin tel- ur að það muni auka kostnað við göngin. Sturla sprengdi síðasta haftið í göngunum 4. september sl. og þá var verkið um tveimur mán- uðum á undan áætlun. „Með því að opna göngin fyrr verður Austurbyggð betri valkostur fyrir það fólk sem er að flytja til Austurlands, auk þess sem margir íbúar sveitarfélagsins sækja vinnu til Reyðarfjarðar vegna framkvæmdanna í tengsl- um við álverið. Þar að auki vild- um við freista þess að fá göngin í notkun áður en ferðamanna- tímabilinu lýkur,“ sagði Stein- þór Pétursson. Það er Ístak sem vinnur að gerð Fáskrúðsfjarðarganga og verða þau 5,9 km löng með veg- skálum. Kostnaður við göngin, og 14,4 km tengiveg, verður tæpir 3,3 milljarðar króna og á framkvæmdum að ljúka í októ- ber á næsta ári. - kk GLÖÐ Í NÝJUM KLÆÐUM Indónesísk stúlka brosir eftir hafa fengið ný föt frá hjálparstarfsmönnum í Aceh- héraði á Súmötru. AÐ LOKINNI SPRENGINGU Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Páll Sigurjónsson, starfandi stjórnarformaður Ístaks, fylgdust með þegar síðasta haftið í göngunum var sprengt 4. september. Sveitarstjórn Austurbyggðar: Vilja göngin sem fyrst HEILBRIGÐISMÁL Samstarf hefur tekist með Landspítala – há- skólasjúkrahúsi og St. Franciskusspítala Stykkishólmi í vistunarmálum og umönnun hjúkrunarsjúklinga, samkvæmt viljayfirlýsingu forstöðumanna stofnananna. Markmiðið er að stuðla að betri nýtingu sjúkrarúma beggja stofnana með því að sjúklingum sem bíða eftir hjúkrunarrými á LSH verði boð- in dvöl á SFS í umsaminn tíma. Gert er ráð fyrir því að allt að fimm rúm verði til tímabund- inna afnota fyrir sjúklinga frá LSH á St. Franciskusspítala sem bíða eftir hjúkrunarheimilis- vist. Auk þessa er um að ræða tvö pláss fyrir lengri vistun. Jafnréttis- og sjálfsákvörð- unarákvæði í lögum um aldraða verða virt í hvívetna og þeir því ekki lagðir inn á SFS sem eru mótfallnir dvöl þar. Einstakling- ar með einkenni heilabilunar verða heldur ekki vistaðir á SFS þar sem þeir eiga rétt til vistar á sérhæfðum deildum sem ekki eru þar. -jss Landspítali og St. Franciskusspítali: Samstarf um vistun hjúkrunarsjúklinga BETRI NÝTING Þeir sem mótfallnir eru dvöl í Stykkis- hólmi verða ekki sendir þangað. KJARNORKUKAFBÁTUR Kjarnorkukafbátur strandaði suður af kyrra- hafseyjunni Gvam á laugardaginn. Kafbátur strandaði: Einn lét lífið GVAM, AP Sjómaður lét lífið þegar bandarískur kjarnorkukafbátur strandaði suður af kyrrahafseyj- unni Gvam á laugardaginn. Alls voru 137 manns um borð og 23 aðrir farþegar særðust en enginn alvarlega. Kafbáturinn var á leið til Brisbane í Ástralíu þegar hann strandaði en ekki er vitað hvað or- sakaði óhappið. Verið er að rann- saka atvikið og er ætlunin að koma bátnum í heimahöfn í dag. ■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.