Fréttablaðið - 10.01.2005, Page 21
Silkitré og silkiblóm
Laugavegi 63
(Vítastígsmegin)
Sími 551 2040
Útsalan hefst í dag
20 - 70% afsláttur
Andri Ingólfsson, forstjóri
Heimsferða, er mikill
fagurkeri og kann vel að
meta fallegar byggingar.
„Mér finnst auðvitað húsið í Póst-
hússtræti 2, fyrrum hús Eim-
skipafélags Íslands, fallegast,“
segir Andri. „Það er að mínu mati
reisulegasta húsið í Reykjavík.
Húsið er byggt í þessum klassíska
stíl sem er að finna í stórborgum
Evrópu og við eigum því miður
alltof fá dæmi um. Þarna er hátt
til lofts og vítt til veggja og húsið
er byggt meðan menn byggðu
ennþá eins og karlmenni,“ segir
hann og hlær.
Nú er verið að breyta húsinu í
Hótel 1919, en það er einmitt
byggingarár hússins. „Hótelið
verður opnað í lok apríl,“ segir
Andri, sem er einn eigenda þess.
„Öllum sérkennum hússins verður
haldið, ytra byrðið verður óbreytt
og sérkennin innanhúss, eins og til
dæmis loftskreytingarnar munu
áfram njóta sín. Í þessu húsi er
líka fallegasta stigahús í bænum
og ákaflega fallegur stigi sem allt
mun njóta sín mjög vel.“ Andri
segist helst heillast af arkitektúr
nítjándu aldar. „Fallegasta bygg-
ingarlist sem okkar menningar-
saga hefur framkallað er að mínu
mati byggingar sem við finnum í
gömlum höfuðborgum Evrópu,
ekki síst Prag. Svo er auðvitað
óskaplega gaman að sjá nýja hluti
eins og til dæmis Gugggenheim-
safnið í Bilbao, sem er algjörlega
nýtt og ólíkt öllu öðru. En arki-
tektúr hlýtur alltaf að vera sam-
spil áhrifa umhverfis og náttúru.“
Andri hefur ekki byggt sér hús
frá grunni, en hann hefur endur-
byggt hús. „Það hús var byggt ör-
lítið seinna en Pósthússtræti 2, en
undir sömu áhrifum. Þetta er ör-
ugglega sá byggingarstíll sem
höfðar mest til mín.“
MÁNUDAGUR 10. janúar 2005
Láttu þér líða vel með
17
22
/
TA
K
TÍ
K
2
2.
9.
´0
4
ATH.
Við erum
á nýjum s
tað
Síðumúla
30 Síðumúla 30 • 108 Reykjavík
OPIÐ
Virka dag
a kl. 10 - 1
8
Laugarda
ga kl. 11 -
14
s. 553 6400 • f. 553 6403 • panorama@panorama.is • www. panorama.is
Sýningari
nnrétting
ar
til sölu
30–50%
afsláttur
JANÚARÚTSALAN ER AÐ HEFJAST
27.900
Þjóðlagagítar
frá kr. 14.900
Þegar menn byggðu
eins og karlmenni
Andri Ingólfsson heldur mest upp á Pósthússtræti 2 þar sem hann mun opna hótel
innan tíðar.
Tískan í
garðinum
2005
Blómin næsta sumar eiga að vera mörg
og marglit.
Garðyrkjuunnendur geta
beðið spenntir eftir vorinu.
Nú leggjast allir á eitt við að spá
fyrir um hvernig allt verður á
nýja árinu og það á líka við um
heimilið og garðinn. Tímaritið
Better Homes and Gardens er nú
þegar farið að spá fyrir um garð-
tískuna 2005.
Samkvæmt vefsíðunni verða
risastórir blómapottar í grískum
stíl eitt af því sem mun heilla
garðyrkjuáhugamenn. Stórum
pottum fylgja vissulega stórar
plöntur og sem verða aðalmálið
þegar vora tekur. Einnig mun
garðhönnun vera í sviðsljósinu en
fólk mun einbeita sér að því að
gera garðsvæðið og veröndina
eða svalirnar heimilislegar - rétt
eins og svæðið sé inni í stofu.
Skreytt verður í fallegum, mjúk-
um litum og falleg viðarhúsgögn
látin kóróna huggulegheitin. Líf-
rænn áburður mun tröllríða garð-
inum og fyrirtæki keppast um að
framleiða besta lífræna áburðinn.
Og síðast en ekki síst eru það
blómin sem eiga vera mörg og
marglit.
Merkingar þurfa að vera
skýrar til að allar sendingar
komist til skila.
Ekki er nóg að hafa rétt heimilis-
fang skrifað á póstsendingu til að
hún sé borin út heldur verður nafn
viðtakanda að vera skráð á póst-
kassa eða við póstlúgu, jafnvel í
einbýli. Á heimasíðu Íslandspósts
stendur eftirfarandi:
„Til þess að tryggja að Póstur-
inn geti komið sendingum rétt til
skila er nauðsynlegt að nöfn allra
sem hafa aðsetur á viðkomandi
heimili séu skráð á póstkassa, við
póstlúgu eða á bjöllu. Póstmenn
hafa ekki leyfi til að setja sendingu
í póstkassa eða inn um póstlúgu
nema viðtakandi sé merktur á þann
hátt sem fyrr greinir.
Miklu skiptir að húsnúmer séu
skýr og greinileg allan ársins
hring. Aðsetur fyrirtækja þarf að
vera vel merkt við inngang og á
viðkomandi hæð.“
Ef jólapósturinn hefur ekki all-
ur komið fram er ástæðan hugsan-
lega sú að nafn viðtakanda vanti á
póstkassann sem sendingum er
ætlað að fara í svo það borgar sig
að merkja vel.
Öll nöfn við póstlúguna
Bréfberar mega ekki setja póst inn um
ómerkta lúgu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA