Fréttablaðið - 10.01.2005, Side 47
Lofthreinsitæki
Nýtt!
ECC ehf
Skúlagötu 17
101 Reykjavík
Sími 511 1001
ecc@ecc.is
www.ecc.is
Upplýsingar í síma 511 1001
Opið frá 09.00 til 18.00
hreinsar loftið, eyðir
lykt og drepur sýkla
Kröftugt jónastreymi
Gefur frá sér mínus hlaðnar jónir sem hjálpa til
við að eyða m.a. ryki, mengun, veirum og frjódufti.
Heldur herbergisloftinu hreinu og bætir heilsuna.
Bakteríudrepandi útfjólublár lampi
Útfjólubláa ljósið drepur ýmsa sýkla og
bakteríur og eyðir lykt (t.d. reykinga- og matarlykt)
Kröftug ryksöfnun
Ryðfrí stálblöð safna á sig ryki og öðrum óhrein-
indum í stað hefðbundins fílters.
Þrjú skref
HI, MED og LOW stillingar og Turbo stilling
fyrir mismunandi aðstæður. (Blá ljós sýna stillingu).
Gaumljós
Ljós sýna hvort þrífa þarf stál blöðin
eða hvort tækið þarfnast annars viðhalds.
Mikill orkusparnaður
Vegna orkusparandi hönnunar notar
tækið aðeins 28W/klst.
GUJA DÖGG HAUKSDÓTTIR
HÚSIN Í BÆNUM
NESKIRKJA
í Reykjavík
Neskirkja stendur við Hagatorg í
Reykjavík. Hún var vígð á pálma-
sunnudag 1957. Arkitekt kirkjunnar
var Ágúst Pálsson húsameistari.
Fyrsti prestur safnaðarins, séra Jón
Thorarensen, kom til starfa árið 1941
en nú starfa tveir prestar við sókn-
ina, séra Örn Bárður Jónsson sóknar-
prestur og séra Sigurður Árni Þórðar-
son. Fyrir nokkrum árum var kirkjan
friðuð hið ytra sem dæmi um eina
fyrstu nútímabyggingu á Íslandi. Í
kirkjunni er að finna glerverk eftir
Gerði Helgadóttur og Leif Breiðfjörð.
Á síðasta ári var tekið í notkun nýtt
safnaðarheimili sem byggt hefur
verið við kirkjuna. Það er teiknað af
VA arkitektum.
Skraut eða
einfaldleiki
Nú eru flestir búnir að taka niður
jólatréð og ganga frá jólaskraut-
inu. Sums staðar fá jólaseríurnar
að lifa ögn lengur og lýsa í
skammdeginu, en hitt dótið er
miskunnarlaust tekið úr umferð.
Gluggakistur og sófaborð virðast
undarlega berstrípuð og þögul.
Litríka skrautið hefur nú vikið
fyrir gráma hversdags á ný,
veggir eru bara veggir og baðher-
bergi bara baðherbergi. Veturinn
varla hálfnaður.
Ísland hefur nokkra sérstöðu
miðað við önnur Evrópulönd að
því leyti að hér er enginn bygg-
ingarlistararfur sem hefur vaxið
og þróast með kynslóðunum í
gegnum aldir. Fá hús á Íslandi eru
mikið eldri en 100 ára, og mörg
hús sem byggð eru í dag bera
þess merki að vera tilraunastarf-
semi upp að vissu marki. Gömlu
torfbæirnir sem lásu sig svo fal-
lega með landinu en entust ekki
sérlega vel, eru illstaðsetjanlegir
í borgarlandslag svo augum er
gjarnan beint til útlanda eftir fyr-
irmyndum að íslenskum nútíma-
byggingum.
Þessi skortur á tengslum við
söguna - bæði okkar eigin og vest-
ræna byggingarlistasögu - getur
stundum skilað sér í skringileg-
um áherslum. Þannig er afstaða
til ytri ásýndar eða forms bygg-
inga oft slitin úr samhengi.Eitt-
hvað veldur því að íslensk bygg-
ingarlist er með eindæmum litrík
og skrautleg. Barnaskólar og
kirkjur, verslanir og stofnanir:
byggingar eins og Melaskóli og
Seltjarnarneskirkja, Höfðaborg
með Íbúðalánasjóð og höfuðstöðv-
ar Orkuveitunnar uppi á Höfða,
ásamt ótal íbúðarhúsum eru lif-
andi staðfesting þess að agaður
einfaldleiki í byggingalist er ekki
það sem helst einkennir íslenska
byggingamenningu. Byggingarn-
ar eru gjarnan samsettar úr
flóknum og margvíslegum form-
um, steinsteypan er meðhöndluð
á alla lund, þakin hrauni eða
steypt með mynstri, þakin járni
og tré, og bæði lóðréttir og lárétt-
ir fletir eru málaðir í öllum regn-
bogans litum. Lágstemmdari hús í
öguðum hlutföllum og jarðbundn-
um litaskala avant-garde naum-
hyggju mega sín lítils í þessari
ofgnótt skrautlegra bygginga,
þau eru í besta falli kölluð „stíl-
hrein“ meðan hin húsin eru bæði
„glæsileg“ og „virðuleg“.
Kannski eru það bara þessir
löngu og dimmu vetur, eða fá-
skrúðugur og litasnauður gróður
hér á Íslandi sem veldur þessari
sókn í ofgnótt og líflegheit.
Kannski lætin í veðrinu allan árs-
ins hring. Það er víst engin hætta
á að grámi og leiðindi leggist yfir
þótt jólunum sé lokið.
Höfundur er arkitekt.
SELDAR EIGNIR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU*
*Þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisisins.
10/12 - 16/12
FJÖLDI
TÍMABIL
0
50
100
150
200
250
300
251
17/12 - 23/12
255
24/12 - 30/12
184
31/12 - 6/1
123245
26/11-2/12
285
3/12-9/12