Fréttablaðið - 10.01.2005, Síða 53
24 10. janúar 2004 MÁNUDAGUR
Við lýsum eftir...
... stórskyttunni Jaliesky Garcia en handknattleiksforystunni hefur ekki tekist að hafa upp á honum þótt mikið hafi verið reynt. Það er spurning
hvort HSÍ þurfi ekki að kalla á Hákon Sigurjónsson, formann dómaranefndarinnar, sem er þrautreyndur rannsóknarlögreglumaður og væri
vafalítið snöggur að finna Garcia í Havana þar sem hann fer huldu höfði.
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
7 8 9 10 11 12 13
Mánudagur
JANÚAR
HANDBOLTI Handboltakappinn Alex-
ander Petersson spilaði sína
fyrstu landsleiki fyrir Íslands
hönd gegn Svíum í vikunni sem
leið. Petersson, sem er borinn og
barnfæddur í Lettlandi, stóð sig
framar vonum og skoraði sjö
mörk í leikjunum tveimur.
Frammistaða hans í leikjunum
tveimur gerir það að verkum að
hann verður líklega í byrjunarlið-
inu í hægra horninu á heims-
meistaramótinu í Túnis sem hefst
23. janúar næstkomandi.
Hann var aðeins átján ára gam-
all þegar hann hleypti heimdrag-
anum í Lettlandi og ákvað fara til
Íslands að spila handbolta sumarið
1998. Hann gekk í raðir Gróttu/KR
og vakti fljótt athygli fyrir frá-
bæra frammistöðu. Petersson
spilaði með Gróttu/KR í fimm ár
og var með bestu leikmönnum ís-
lensku deildarinnar áður en hann
gerðist atvinnumaður hjá þýska
liðinu Düsseldorf sumarið 2003. Í
byrjun þess árs fékk hann íslensk-
an ríkisborgararétt en þurfti að
bíða í þrjú ár áður en hann var lög-
legur með íslenska landsliðinu.
Petersson er giftur Eivoru Pálu
Blöndal og saman eiga þau ellefu
mánaða gamlan son, Lúkas Jó-
hannes.
Petersson hefur staðið sig mjög
vel með Düsseldorf. Hann var lyk-
ilmaður í liðinu á síðasta tímabili
þegar liðið tryggði sér sæti í efstu
deild og núna hefur hann skorað
65 mörk fyrir liðið í 1. deildinni.
Fréttablaðið ræddi við hann á
laugardaginn þar sem hann horfði
á Evrópuleik kvennaliðs Stjörn-
unnar í Garðabæ.
Vel tekið af hópnum
Petersson sagði aðspurður að
það hefði verið mjög skemmtilegt
að spila fyrstu leikina með ís-
lenska landsliðinu. „Ég fékk að
spila meira en ég átti von á og var
ánægður með mína eigin frammi-
stöðu. Það kom mér á óvart hversu
vel mér var tekið af hópnum og ég
sá fljótt að andinn er frábær í lið-
inu.“
Uppáhaldsleikmaður Peters-
sons í gegnum tíðina hefur verið
Ólafur Stefánsson og hann sagði
það hafa verið mikla upplifun að
spila með honum í liði í fyrsta
sinn. „Ég var stressaður fyrir leik-
inn en eftir að ég fékk fyrstu send-
inguna frá honum þá hvarf allt
stress. Hann er frábær leikmaður
og það var mjög gaman að fá loks-
ins tækifæri til að spila með
manni sem ég lít mikið upp til.“
Hann sagðist aðspurður vonast
til að íslenska liðið yrði eitt af átta
efstu á heimsmeistaramótinu í
Túnis ef allt gengi upp. „Við erum
með gott lið og eigum að stefna
hátt. Það getur hins vegar allt
gerst á svona mótum en ég vona
að allir nái að sýna sitt besta.“
Vill komast frá Düsseldorf
Eins og áður hefur komið fram
þá er Petersson að spila sitt annað
ár hjá þýska liðinu Düsseldorf en
hann er ekkert sérstaklega
ánægður hjá félaginu og er farinn
að hugsa sér til hreyfings. Samn-
ingur hans við félagið rennur út
sumarið 2006 en hann er með
klásúlu í samningi sínum sem ger-
ir það að verkum að hann getur
losnað í sumar. „Það er ekki mikill
atvinnumannabragur á mörgum
liðum í Þýskalandi. Það eru
kannski fimm til sex bestu liðin
sem eru raunveruleg atvinnu-
mannalið en önnur lið eru einfald-
lega með áhugamenn í atvinnu-
mennsku. Það var til dæmis miklu
meiri atvinnumannabragur hjá
Gróttu/KR heldur en er í
Düsseldorf. Ég er farinn að hugsa
mér til hreyfings og hef fengið
fyrirspurnir frá öðrum liðum. Ég
ætla hins vegar að bíða með að
gera neitt þar til heimsmeistara-
mótið er búið en fljótlega eftir það
mun ég ákveða hvað ég geri,“
sagði Petterson.
oskar@frettabladid.is
FEÐGARNIR SAMAN Á HANDBOLTALEIK Alexander Petersson var í Stjörnuheimilinu
á laugardaginn ásamt syni sínum, Lúkasi Jóhannesi, og skemmtu þeir sér konunglega við
að horfa á kvennalið Stjörnunnar rúlla yfir tyrkneska liðið Eskisehir. Fréttablaðið/E. Ól
Mikil upplifun að
spila með Óla Stefáns
Alexander Petersson spilaði sína fyrstu landsleiki fyrir Íslands hönd gegn
Svíum í síðustu viku og fékk þá tækifæri til að spila með sínum
uppáhaldsleikmanni, Ólafi Stefánssyni.
■ ■ LEIKIR
19.15 Breiðablik og Ár-
mann/Þróttur mætast í
Smáranum í 1. deild karla í
körfubolta.
■ ■ SJÓNVARP
18.30 Ameríski fótboltinn á Sýn.
Útsending frá leik Green Bay
Packers og Minnesota Vikings í
ameríska fótboltanum.
18.30 Þrumuskot – ensku mörkin á
Skjá einum.
20.30 Boltinn með Guðna Bergs á
Sýn.
22.00 Olíssport á Sýn.
23.05 Opna breska meistaramótið
í golfi á RÚV.
23.15 Boltinn með Guðna Bergs á
Sýn.
Argentínumaðurinn Santiago Sol-ari hjá Real Madrid segist lítið
heilla sig við að ganga til liðs við erki-
fjendur liðsins í
Barcelona en sögu-
sagnir herma að þar
hyggist menn bjóða
honum samning
fljótlega enda renn-
ur samningur hans
við Real út í sumar.
Solari heldur þó
enn í vonina að fá lengri samning og
vill ógjarna fara til Katalóníu.
Vanderlei Luxemburgo, nýr þjálf-ari Real, hefur sent þá Arrigo
Sacchi og Emilio Butragueno af örk-
inni og leita þeir nú
logandi ljósi að öfl-
ugum miðjumanni
fyrir átökin
framundan. Telur
Luxemburgo að
það sé það púsl í lið
Real sem nauðsyn-
lega þarf að fá sem fyrst og horfa
þeir helst til Þjóðverjans Sebastian
Kehl hjá Borussia Dortmund.
Ralf Schumacher hefur skotiðföstum skotum
að sínu gamla Willi-
ams liði í Formúl-
unni og segir að
möguleikar hans
með hinu nýja liði
Toyota séu miklu
betri en með Willi-
ams áður. Segir
hann Toyota hafa yfir meira fjár-
magni að spila og metnaður sé á
þeim bænum fyrir komandi tímabil.
Vonir Lundúnabúa um að fá aðhalda ólympíuleikanna árið 2012
dvína nú dag frá degi enda virðast
mörg yfirsambönd íþróttagreina sem
þegar eru í landinu vera að hugsa sér
til hreyfings. Þannig
er Alþjóðaskútusigl-
ingasambandið sem
hefur höfuðstöðvar í
Southampton að
íhuga flutning til
Frakklands og Al-
þjóða badminton-
sambandið sem
verið hefur í London í áratugi hefur
þegar flutt sig um set til Asíu.
Frakkinn Stephane Peterhanselhefur náð sér í þægilega 20 mín-
útna forystu í flokki
bíla í Dakar rallinu
sem nú er rúmlega
hálfnað. Hans helsti
keppinautur fyrstu
umferðirnar, Skot-
inn Colin McCrea,
féll úr keppni fyrr í
vikunni og missti
þar með toppsætið og nú virðist fátt
annað en slæmt óhapp koma í veg
fyrir að Frakkinn taki titilinn í þessari
geysierfiðu keppni.
Ekkert virðist geta stöðvað Sviss-lendinginn Roger Federer í tenn-
isheiminum. Hann
gerði sér lítið fyrir og
sigraði sitt fjórtánda
mót í röð í Katar um
helgina og er í al-
gjörum sérflokki í
greininni. Hefur
hann þar með leikið
21 leik án taps og
áttti ekki í neinum
vandræðum með
að klára Króatann Ivan Ljubicic auð-
veldlega þrátt fyrir að jólafrí hafi ver-
ið í tennisheiminum sem annars
staðar.
Fimmtán félög í NBA deildinnibandarísku hafa tekið höndum
saman og safnað fé með ýmsu móti
til handa fórnarlömbum flóðbylgj-
unnar í Asíu. Flest munu halda
ágóðaleiki næstu daga og vikur þar
sem allur ágóði og aðgangseyrir
rennur óskiptur til þeirra sem á þurfa
að halda.
Það var víðar en á Englandi þarsem óvænt úrslit litu dagsins ljós
í bikarkeppni. Í þeirri frönsku töpuðu
tífaldir franskir bikarmeistarar
Marseille á heimavelli gegn annarrar
deildar liðinu Angers, 2-3. Marseille
tefldi fram sínu besta liði en hugur
og hjarta andstæðinganna reyndist
stærri þegar á reyndi.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
Frjálsar íþróttir:
Gullmótin
vekja áhuga
FRJÁLSAR Gullmót Alþjóðafrjáls-
íþróttasambandsins hafa skilað
því sem skipuleggjendur þeirra
vonuðust eftir; fleiri áhorfendum
og auknu áhorfi í sjónvarpi.
Samanlagt áhorf jókst um tæp 140
prósent frá árinu áður og verður
slíkt að teljast með eindæmum vel
heppnað. Sambandið hefur tekið
saman dagskrá Gullmótanna fyrir
árið 2005 og verða þau með sama
sniði og síðasta ár en dagskrá
þeirra verður þéttari og styttra
verður milli móta.
Sambandið vonast þannig til að
byggja enn frekar á vaxandi
áhuga almennings en frjálsar
íþróttir hafa um langt árabil átt
undir högg að sækja eins og svo
margir aðrir íþróttaviðburðir að
fótbolta undanskildum. Væri
kannski ráð fyrir forkólfa ýmissa
íþróttagreina að klóra í bakkann
með sama móti og frjálsíþrótta-
sambandinu hefur tekist með
gullmótununum. ■
KEPPT UM GULLIÐ Sú ákvörðun Al-
þjóðafrjálsíþróttasambandsins að setja á
fót Gullmótin svokölluðu þar sem kepp-
endur geta unnið raunverulegt gull hefur
vakið verðskuldaða athygli og áhugi á
frjálsum íþróttum aukist til muna.
FERILL PETERSSONS
til 1998 Lettland
1998-1999 Grótta/KR
1999-2000 Grótta/KR
2000-2001 Grótta/KR
2001-2002 Grótta/KR
2002-2003 Grótta/KR
2003-2004 HSG Düsseldorf
2004-2005 HSG Düsseldorf
Landsleikir:
Lettland 25
Ísland 2
Viggó Sigurðsson um Alexander Petersson:
Vænti mikils af honum
HANDBOLTI Viggó Sigurðsson lands-
liðsþjálfari var mjög ánægður
með Alexander Petersson í
frumraun hans með íslenska
landsliðinu í leikjunum tveimur
gegn Svíum í síðustu viku. Viggó
sagði í samtali við Fréttablaðið í
gær að innkoma Peterssons í
landsliðið hefði verið mjög já-
kvæð.
„Ég er mjög ánægður með
hann. Hann smellur vel inn í hóp-
inn og spilaði mjög vel bæði í
vörn og sókn í leikjunum tveim-
ur gegn Svíum. Það var alveg
greinilegt að hann var hungraður
og langaði mikið til að sýna sig
og sanna. Ég vænti mikils af hon-
um í Túnis og tel að hann geti
verið í lykilhlutverki þar.“
Spurður um hvaða stöðu
Petersson myndi spila í Túnis
sagði Viggó að líklegast yrði
hann mest í hægra horninu.
„Hann getur líka spilað fyrir
utan og ég treysti honum til að
leysa þá stöðu en við erum með
bæði Ólaf Stefánsson og Einar
Hólmgeirsson þar þannig að það
má segja að hægri helminguirnn
sé ótrúlega vel mannaður,“ sagði
Viggó.
Petersson byrjaði báða leikina
gegn Svíum í hægra horninu en
Viggó sagði það ekki vera ávísun
á sæti í byrjunarliðinu í fyrsta
leik í Túnis. „Það er enginn núm-
er eitt í neinni stöðu. Þeir sem
standa sig spila – svo einfalt er
það,“ sagði Viggó og benti á að
Einar Hólmgeirsson hefði ýtt
Ólafi Stefánssyni á bekkinn í
seinni leiknum gegn Svíum. -ósk
SÁTTUR MEÐ PETERSSON Viggó Sig-
urðsson landsliðsþjálfari hrósar Alexand-
er Petersson fyrir góða frammistöðu
gegn Svíum. Fréttablaðið/Pjetur