Fréttablaðið - 10.01.2005, Side 65
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Dreifing: 515 7520 Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 – fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R
Innritun fyrir vorönn 7. – 17. janúar á www.fa.is
Skólameistari
SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Sendu SMS skeytið JA TBF á
númerið 1900 og þú gætir unnið.
SMS LEIKUR
Vinningar eru miðar á myndina TAXI, DVD myndir og margt fleira.
Bíómiði á 99 kr?
9. H
VER
VIN
N
U
R
!
Í B
ÍÓ
6
.J
A
N
.
99 kr/skeytið
Að hætta við
uppskurð?
Ekki nóg með að pólitísk umræðaá landinu sé á villigötum heldur
rekur skoðanakönnun Gallup smiðs-
höggið á delluna með því að spyrja
þjóðina spurninga sem eru svo vit-
lausar, að utanríkisráðherrann seg-
ist hefði lent í vandræðum að svara
þeim. Gallup asnaðist til að spyrja
fólk hvort Ísland eigi að vera á lista
með þeim þjóðum sem styðja hern-
aðaraðgerðir Bandaríkjamanna og
Breta í Írak. Þótt það sé of seint í
rassinn gripið er augljóst að vís-
indalegra hefði verið að spyrja:
Viltu að utanríkisráðherrann hætti
að fara í uppskurðinn í fyrrasumar?
AUÐVITAÐ er þetta öldungis rétt
hjá ráðherranum sem bendir á að
hann yrði settur á Klepp ef hann
gerði sér ferð upp á Landspítala til
að heimta að uppskurðurinn sem
hann fór í fyrir nokkrum mánuðum
verði tekinn til baka.
SVONA rök getur enginn hrakið,
og allra síst þegar ráðherrann bætir
því við að Íslendingar hafi aldrei
verið í hópi svonefndra „staðfastra
þjóða“ – og reyndar aldrei í „nein-
um sérstökum hópi“. Þar fyrir utan
bendir hann á að villandi upplýsing-
ar hafi borist úr utanríkismála-
nefnd: Formaður Framsóknar-
flokksins og óbreyttur framsóknar-
maður (reyndar bara kona) í nefnd-
inni eru missaga um hvort málið
hafi komið fyrir nefndina. Þar
stendur orð á móti orði, og því er
ástæðulaust að ræða það frekar. Og
hvað ákvörðunina um stuðninginn
varðar var þessi ákvörðun ekki
beinlínis „ákvörðun“ heldur meira
svona „pólitísk yfirlýsing“ og þeir
sem gáfu hana voru þeir sem eiga
að gefa „pólitískar yfirlýsingar“
samkvæmt íslenskri stjórnskipan.
Þetta hljóta allir að sjá að er fínasta
lögfræði.
VIÐ ÞETTA léttir af manni þungu
fargi. Maður hélt að Íslendingar
væru staðfastir stuðningsaðilar inn-
rásar í fullvalda ríki og bæru
ábyrgð samkvæmt því. Nú kemur á
daginn að þetta er allt saman tóm
della og enginn ber ábyrgð á
nokkrum sköpuðum hlut, nema því
að hafa látið stjórnarandstöðuna og
Gallup leiða sig á villigötur. Maður
vonar bara að utanríkisráðherrann
taki ekki skyndilega upp á því að
afturkalla uppskurðinn sem forsæt-
isráðherrann samþykkti að undir-
gangast.
BAKÞANKAR
ÞRÁINS BERTELSSONAR