Fréttablaðið - 26.01.2005, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 26.01.2005, Blaðsíða 1
● tilnefnd í ellefu flokkum Óskarsverðlaunin: ▲ SÍÐA 27 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI MIÐVIKUDAGUR TÓNLEIKAR Í RÁÐHÚSINU Stór- sveit Reykjavíkur heldur tónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan átta í kvöld. Stjórnandi verður Eero Koivistoinen, einn fremsti jazztónlistarmaður Finna um langt árabil. DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG 26. janúar 2005 – 24. tölublað – 5. árgangur LEYFI TIL YFIRFLUGS EKKI STUÐNINGUR VIÐ STRÍÐ Halldór Ás- grímsson forsætisráðherra staðfesti á Al- þingi í gær að veitt hefði verið leyfi til yfir- flugs yfir Ísland þremur vikum áður en ráð- ist var inn í Írak. Hann segir þetta ekki hafa verið stuðning við stríð. Sjá síðu 2 MÁTTU GIFTAST EN EKKI BÚA SAMAN Ásthildur Albertsdóttir, eiginkona Said Hasan, 23ja ára Jórdaníumanns, hefur kært ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa Hasan úr landi og banna honum að koma aftur hingað, bæði til Útlendingaeftir- litsins og dómsmálaráðuneytisins. Sjá síðu 4 REGLUGERÐ FLÝTT OG VOTT- ORÐA KRAFIST EES-borgarar hafa for- gang að vinnu hér, heilbrigðisvottorða verð- ur krafist með umsókninni og reglugerð flýtt. Þannig bregst félagsmálaráðherra við gagnrýni ASÍ á Impregilo og atvinnuleyfin. Sjá síðu 6 Kvikmyndir 30 Tónlist 28 Leikhús 28 Myndlist 28 Íþróttir 24 Sjónvarp 32 Benedikt H. Alfonsson: ▲ Í MIÐJU BLAÐSINS Hagar seglum eftir vindi ● nám ÁFRAM MILT OG BJART FYRIR AUSTAN Það má reikna með strekkings- vindi á Norðausturlandi en annars fremur hægum vindi. Úrkomulítið í dag. Sjá síðu 4 Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 ALÞINGI Þingmenn ríkisstjórnarinn- ar hafa viðurkennt að eftirlauna- frumvarpið sem samþykkt var á Al- þingi 2003 hafi verið gallað. Þó nokkur dæmi eru um að Alþingi hafi samþykkt lög sem síðan hafi verið dæmd ólögmæt af dómstólum á síðustu árum. „Þekktustu dæmin tengjast málefnum öryrkja en ríkisstjórnin hefur tapað tveimur málum fyrir Hæstarétti sem Öryrkjabandalagið höfðaði á hend- ur henni,“ segir Svanur Kristjáns- son, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. „Valdimarsdómurinn 1998 var upphaf þess að dómstólar á Íslandi fóru að veita stjórnvöldum virkt aðhald,“ bendir Svanur á en þá úr- skurðaði Hæstiréttur að ríkis- stjórnin hefði brotið stjórnarská með því að takmarka veiðileyfi. Mannréttindaákvæðin voru inn- leidd í íslenska stjórnarskrá og EES-samningurinn var samþykktur en með því urðu Íslendingar að leiða í gildi Evrópulög. „Frægur dómur í máli Erlu Maríu Sveinbjörnsdóttur féll í Mannréttindadómstólnum í Strassborg og varðaði ábyrgðarsjóð launa,“ segir Svanur. Þá féll annar dómur gegn íslenskum stjórnvöldum í Strass- borg og leiddi til grundvallarbreyt- inga á stjórnskipun landsins þegar aðskilja þurfti valdsvið dómara og sýslumanna. Drífa Hjartardóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að Al- þingi verði einfaldlega að vanda sig betur við lagasetningar. „Við verð- um að gefa okkur meiri tíma til að skoða betur áhrif laganna, bæði aftur í tímann og fram í tímann. Þegar við erum að setja lög eru þau að vissu leyti afturvirk eins og með eftirlaunafrumvarpið,“ segir Drífa. „Við erum með mjög góða lögfræði- deild hjá Alþingi en oft erum við að afgreiða frumvörp á mjög skömm- um tíma,“ segir hún. - sda Gölluð lög ítrekað verið samþykkt Eftirlaunafrumvarpið er ekki eina lagafrumvarpið sem samþykkt hefur verið á Alþingi og reynst gallað eftir á. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að vanda verði vinnubrögð. Aukinn hagvöxtur: Ekki hætta á ofhitnun EFNAHAGSMÁL Hagvöxtur verður 5,5 prósent í ár og 4,7 prósent á næsta ári en þrátt fyrir það eru að mati fjármálaráðuneytisins ekki líkur á því að hagkerfið ofhitni. Þetta kemur fram í þjóðhagsspá ráðuneytisins. Hagvaxtarspá ráðuneytisins er nokkru meiri nú en áður og segir Þorsteinn Þorgeirsson, skrifstofu- stjóri efnahagsskrifstofu, ástæð- una þá helsta að stækkun Norður- áls fór fyrr af stað en gert var ráð fyrir. Hún bætist við stóriðju- framkvæmdir á Austfjörðum sem ná hápunkti í ár og á næsta ári. sjá síðu 20 LEITAÐ Í RÚSTUNUM Í BANDA ACEH Kona leitar í rústum heimilis í Banda Aceh. Dag hvern finnast rúmlega þúsund lík í héraðinu, sem varð verst úti allra landsvæða sem flóðbylgjan skall á. ASÍA Ljóst þykir að ekki færri en 280 þúsund manns hafi farist þegar flóðbylgjan mikla reið yfir ellefu ríki Asíu og Austur-Afríku á annan dag jóla. Óttast er að tug- þúsundir til viðbótar kunni að hafa farist. Til samanburðar má nefna að Íslendingar voru 293 þúsund talsins 1. desember síð- astliðinn. Heilbrigðisyfirvöld í Indónesíu birtu í gær nýjar dánartölur. Sam- kvæmt þeim hafa meira en 220 þúsund manns látist eða er saknað og taldir af í Indónesíu einni sam- an. Þar finnast um þúsund lík dag hvern. Þau eru mjög illa farin eftir að hafa legið undir braki og leðju, og því er afar erfitt að bera kennsl á þau. Þá er talið að mikinn fjölda líka hafi borið á haf út og litlar líkur eru á að þau finnist. Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki og stjórnvöld víða um heim hafa heitið háum fjárhæð- um til styrktar uppbyggingar- starfi. Flóttamannahjálp Sam- einuðu þjóðanna hvatti í gær til þess að hluta þess fjár yrði varið til aðstoðar við fólk sem hefur hrakist frá heimilum sínum á Srí Lanka vegna borgarastríðsins þar. ■ Tala látinna vegna flóðbylgjunnar miklu í Asíu fer enn hækkandi: Þeir látnu jafnmargir Íslendingum The Aviator ● sestur á skólabekk Sigursteinn Másson: ▲ SÍÐA 34 Á framboðslista Röskvu ● íslenska liðið gaf eftir undir lokin HM í handbolta í Túnis: ▲ SÍÐA 24 Eins marks tap gegn Slóvenum í gær 20-40 ára Me›allestur dagblaða Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups nóvember 2004 MorgunblaðiðFréttablaðið 61% 37% EFTIRLIT Í VERSLUNUM Heilbrigðisyfirvöld bregðast við ábending- um eins og þau fengu vegna Hollywood- kúrsins. Hollywood-kúrinn: Tekinn úr umferð MATVÆLI Umboðsaðila Hollywood- kúrsins hefur verið synjað um leyfi til að markaðssetja vöru sína af Umhverfisstofnun. Umboðs- aðilinn hefur samkvæmt Heil- brigðiseftirliti Hafnarfjarðar og Kópavogs fjarlægt drykkinn af sölustöðum. Steinar B. Aðalbjörnsson, fag- sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun, segir heimildina ekki hafa fengist þar sem of mikið af A-vítamíni sé í kúrnum. Mikil neysla á A- vítamíni geti valdið ógleði, höfuð- verk og lifrarskemmdum. Hjá þunguðum konum geti of mikið A- vítamín valdið fósturskaða. Steinar segir Lýðheilsustöð hafa reiknað að dagleg neysla þeirra sem neyti kúrsins geti orðið allt að 5.000 míkrógrömm- um, sem sé 2.000 míkrógrömmum yfir hættumörkum. - gag Oxford-háskóli: Vill færri breska nema BRETLAND, AP Skólayfirvöld Ox- ford-háskóla hafa ákveðið að fækka þeim bresku námsmönnum sem fá inni í skólanum. Þess í stað á að veita fleiri erlendum náms- mönnum skólavist og er ástæðan einkum sú að þeir borga hærri skólagjöld en Bretar. Skólastjórnendur hafa kvartað undan fjárskorti. Eitt af því sem þeir segja mögulegt með því að veita fleiri erlendum námsmönn- um skólavist er að greiða kennur- um hærri laun og geta því betur keppt við bandaríska skóla. Stjórnmálamenn og námsmenn hafa tekið hugmyndinni illa. ■ M YN D /A P
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.