Fréttablaðið - 26.01.2005, Page 2

Fréttablaðið - 26.01.2005, Page 2
2 26. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR Mannréttindasamtök harðorð í garð Íraksstjórnar: Fangar enn pyntaðir ÍRAK Saddam Hussein og sam- verkamenn hans hafa verið hraktir frá völdum en íraskar öryggissveitir pynta fanga sína ennþá. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu bandarísku mannrétt- indasamtakanna Human Rights Watch, sem hafa skoðað stöðu mannréttinda í Írak. „Íraska bráðabirgðastjórnin undir forystu Ayad Allawi for- sætisráðherra virðist taka virk- an þátt, eða vera í það minnsta samábyrg, í þessum grófu brot- um á grundvallarmannréttind- um,“ segir í skýrslu samtak- anna. Einnig er þar bent á að hvorki bandarísk né bresk stjórnvöld hafi sett sig upp á móti því að íraskar öryggissveitir pynti fanga. „Írösku þjóðinni var lofað einhverju betra en þessu,“ sagði Sara Leah Whitson, svæðisstjóri samtakanna í Mið-Austurlönd- um og Norður-Afríku, í viðtali við AP-fréttastofuna. Hún sagð- ist skilja þann vanda sem örygg- issveitirnar stæðu frammi fyrir vegna hryðjuverkaárása í Írak. „Við fordæmum grimmd upp- reisnarmanna. En alþjóðalög liggja ljós fyrir: engin ríkis- stjórn getur réttlætt pyntingar með vísan til öryggismála.“ ■ Leyfi til yfirflugs – ekki stríðsvilji Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra staðfesti á Alþingi í gær að veitt hefði verið leyfi til yfirflugs yfir Ísland þremur vikum áður en ráðist var inn í Írak. Hann segir þetta ekki hafa verið stuðning við stríð. STJÓRNMÁL Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra staðfesti í um- ræðum um störf þingsins á Al- þingi í gær að íslensk stjórnvöld hefðu veitt Bandaríkjamönnum leyfi til yfirflugs og notkun Kefla- víkurstöðvarinnar vegna vaxandi spennu í Írak þegar í febrúar 2003. Þetta kom fram í máli for- sætisráðherra eftir að Össur Skarphéðinsson, formaður Sam- fylkingarinnar, spurði hann um efni fréttar Stöðvar 2 um málið í gærkvöld. Össur vitnaði til orða Halldórs daginn fyrir innrásina um að ör- yggisráðið ætti að hafa síðasta orðið. „Þetta sagði hann þremur vikum eftir að hann sem utanrík- isráðherra leyfði að flogið yrði um lofthelgi landsins og herflug- vélar hefðu hér viðdvöl vegna inn- rásarinnar í Írak. Nú virðist mega draga þá ályktun að stuðningur Ís- lands hafi komið fram þremur vikum fyrr en áður var sagt.“ Halldór Ásgrímsson vísaði því á bug að með þessu hefði verið lýst yfir stuðningi við stríð í Írak og benti á að liðsflutningar til Persaflóa hefðu hafist löngu fyrir febrúar. Ísland hefði gefið leyfi til yfirflugs á svipuðum tíma og Þjóðverjar, sem hefðu gefið sitt leyfi jafnvel þótt þeir hefðu verið á móti innrásinni. „Við höfum aldrei hafnað beiðni bandamanna okkar um yfirflug en flutningarn- ir fóru að mjög litlu leyti um Keflavík“. Til mjög hvassra orðaskipta kom á milli Halldórs og Össurar og var formaður Samfylkingar- innar sakaður um að nota ræðu- stól Alþingis í baráttu sinni fyrir endurkjöri til formanns. Ögmundur Jónasson, þingmað- ur Vinstri grænna, sagði ástæðu til að ræða þetta mál daglega í þinginu þar til sannleikurinn hefði verið leiddur í ljós: „Listinn yfir hinar vígfúsu þjóðir hafði það að markmiði að grafa undan Sam- einuðu þjóðunum og öryggisráð- inu. Hann hefur stórpólitíska þýðingu og er stórpólitískt utan- ríkismál.“ a.snaevarr@frettabladid.is INNBROT Í TVÆR BIFREIÐAR Brot- ist var inn í tvær bifreiðar í Norð- lingaholti í Reykjavík. Hliðarrúð- ur voru brotnar og hljómflutn- ingstæki tekin. Lögreglunni var tilkynnt um atvikin klukkan tíu í gærmorgun. Málið er í rannsókn. 68 VERKEFNI Í VIKUNNI Rólegt var í umdæmi lögreglunnar á Hvols- velli í síðustu viku. Samkvæmt vef lögreglunnar voru 68 verkefni skráð á tímabilinu. Meðal þeirra voru tveir ökumenn sem teknir voru fyrir of hraðan akstur á Suður- landsvegi. Mældist sá sem hraðar ók á 135 km hraða við erfiðar að- stæður, myrkur og blautur vegur. HVASSVIÐRI FYRIR VESTAN Kyrr- stæður bíll fauk á annan við flug- völl Ísafjarðarbæjar í fyrrinótt. Lágu bílarnir saman þegar menn komu að flugstöðvarbyggingunni í morgun. Tjón er lítið að sögn lög- reglunnar á Ísafirði. Mjög hvasst var fyrripart nætur en lægði og var veður gott í gær, að sögn lög- reglunnar. Umfangsmikið fíkniefnamál: Rannsókn á lokastigi FÍKNIEFNI Rannsókn á einu um- fangsmesta fíkniefnamáli síðustu ára, sem staðið hefur yfir síðan í mars á síðasta ári, er á lokastigi að sögn Ásgeirs Karlssonar, yfir- manns fíkniefnadeildar lögregl- unnar í Reykjavík. Fimm sitja enn í gæsluvarð- haldi vegna málsins en í gær stað- festi Hæstiréttur gæsluvarðhalds- úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir einum gæsluvarðhaldsfang- anna. Sá er undir sterkum rök- studdum grun um að hafa framið fíkniefnabrot sem varðað geta allt að tólf ára fangelsi. Upphaf málsins var þegar tæp- lega þrjú kíló af amfetamíni og nokkurt magn af kókaíni fundust um borð í Dettifossi, skipi Eim- skipafélagsins, í mars. Átta kíló af amfetamíni sem fundust síðan í vörusendingu í einu skipa Eim- skips í júlí. - hrs MANNSKÆÐIR JARÐSKJÁLFTAR Tveir létust og 22 slösuðust í hrinu jarðskjálfta á landamærum Tyrklands og Íran. Skjálftarnir í gær voru ekki mjög öflugir, sá stærsti mældist 5,5 á Richter- kvarða. FÓRNFÝSNIN LOFUÐ Vatíkanið lofaði í gær konu sem neitaði að gangast undir fóstureyðingu og lést í í fyrra úr krabbameini. Læknar sögðu henni að til að geta leitað sér lækninga við krabba- meini yrði að eyða fóstrinu og því neitaði hún. STUÐLUÐU AÐ HRYÐJUVERKUM Franska lögreglan hefur handtekið sjö einstaklinga sem eru grunaðir um að hafa fengið Frakka til að berjast gegn yfirvöldum í Írak. Fólkið, fimm karlar og tvær konur, reyndi að fá franska múslima til að berjast í Írak. SPURNING DAGSINS Ágúst, kom einhvern tíma sumar? „Það er ennþá vor.“ Í gær voru 25 ár frá frumsýningu Lands og sona, myndar Ágústs Guðmundssonar sem markaði upphaf íslenska kvikmyndavorsins. ■ EVRÓPA ■ LÖGREGLUFRÉTTIR Subaru Legacy Wagon Guðmundur Árni Stefánsson: Vill fund STJÓRNMÁL Guðmundur Árni Stef- ánsson, Samfylk- ingunni, skýrði frá því á Alþingi í gær að hann hefði beðið for- mann utanríkis- málanefndar um að halda fund í nefndinni fyrir hvatningu for- sætisráðherra. Benti Guðmund- ur Árni á að Eiríkur Tómasson pró- fessor hefði sagst hafa farið yfir gögn um Íraksmálið í álitsgerð sinni um lögmæti ákvörðunar forsætis- og utanríkisráðherra um að styðja innrásina í Írak: „Við viljum fá þessi gögn“ sagði Guðmundur Árni. „Hvers vegna þessi tregða við að leggja spilin á borðið?“ - ás GUÐMUNDUR ÁRNI ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Segir að draga megi ályktun um að stuðningur Íslands við innrásina í Írak hafi verið kominn fram þremur vikum fyrr en áður var sagt. ÍRASKIR FANGAR Þessir Írakar voru handteknir í vopnaleitarárás bandarískra hermanna á bensínstöð í Mosul í norðurhluta Íraks. Fjöldi fanga íraskra öryggissveita hefur verið pyntaður, að sögn mannréttindasamtakanna Human Rights Watch, sem ræddu við 90 fanga. FÆÐINGAR Meðalaldur mæðra hefur farið stighækkandi á síð- ustu áratugum, samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Hann hefur hækkað um 2,2 ár á tímabilinu 1963-2003, miðað við öll fædd börn, en um 4,2 ár sé eingöngu miðað við frumburði. Elsta íslenska konan sem alið hefur frum- burð á árabilinu 1971-2003 var 48 ára gömul. Hún ól barn sitt 2001. Þá fæddu tvær aðrar 48 ára gaml- ar konur börn þetta sama ár, en í hvorugu tilvikinu var um frum- burði að ræða. Jafnframt leiða tölurnar í ljós að mun fleiri stúlkur undir 15 ára aldri eignuðust börn á árinum á árunum 1971-1981 en á síð- ari áratugum. Á ofangreindum ára- tug ólu 28 stúlkur á umræddum aldri barn. Þar af var ein undir 15 ára aldrinum að eignast sitt annað barn. Það var árið 1978. Hins vegar fæddu þrjár stúlkur undir þessum aldri á ára- tugnum 1993-2003. ■ MEÐALALDUR MÆÐRA – ÖLL BÖRN 2003 29.3 1993 28.5 1983 26.5 1973 25.7 1963 27.1 MEÐALALDUR MÆÐRA – FRUMBURÐIR 2003 26 1993 24.8 1983 22.7 1973 21.6 1963 21.8 ELDRI MÆÐUR Elsta frumbyrjan hér á landi á árabilinu 1971- 2003 var 48 ára. Myndin er tekin á fæðingardeild Landspítalans, en er ekki í tengslum við fréttina. Mæður sem fæða sitt fyrsta barn: Meðalaldur hefur hækkað um 4,2 ár

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.