Fréttablaðið - 26.01.2005, Page 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
62,25 62,55
116,88 117,44
81,23 81,69
10,91 10,98
9,90 9,96
8,96 9,01
0,60 0,61
94,63 95,19
GENGI GJALDMIÐLA 25.01.2005
GENGIÐ
Heimild: Seðlabanki Íslands
SALA
111,71 +0,18%
4 26. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR
Fyrrverandi skipstjóri á Hauki ÍS:
Fékk sjö mánaða skilorð
DÓMSMÁL Skipstjórinn í ferð
Hauks ÍS til Þýskalands þar sem
tveir skipverjanna voru hand-
teknir fyrir tilraun til fíkniefna-
smygls var dæmdur í sjö mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir
ræktun kannabisplantna.
Maðurinn, sem er fertugur,
var dæmdur í tuttugu mánaða
fangelsi í Suður-Ameríku fyrir
að reyna að smygla fjórtán kíló-
um af kókaíni. Sá dómur hefur
engin áhrif á dóm mannsins nú
þar sem hann braut af sér í öðru
landi. „Samkvæmt sakavottorði
ákærða hefur hann ekki áður
gerst sekur um brot gegn lögum
um ávana- og fíkniefni, svo vitað
sé,“ segir í dómnum.
Maðurinn var fundinn sekur
um ræktun á tæplega tvö hundr-
uð kannabisplöntum og fyrir að
vera með nokkur grömm af
maríjúana í fórum sínum. Hann
játaði brot sitt greiðlega. Með
brotum sínum sem maðurinn
framdi árin 2002 og 2003 rauf
hann skilorð, en árið 2000 var
hann dæmdur í fimm mánaða
skilorðsbundið fangelsi til
þriggja ára fyrir brot gegn
almennum hegningarlögum. - hrs
Máttum giftast en
ekki búa saman
Ásthildur Albertsdóttir, eiginkona Said Hasan, hefur kært ákvörðun Útlend-
ingastofnunar um að vísa Hasan úr landi og banna honum að koma aftur
hingað, bæði til Útlendingaeftirlitsins og dómsmálaráðuneytisins.
ÚTLENDINGAR Said Hasan, 23ja ára
Jórdana sem er giftur íslenskri
konu, Ásthildi Albertssdóttur,
hefur verið neitað um dvalarleyfi
vegna aldurs og honum er bannað
að koma hingað í þrjú ár þar sem
hann fór ekki úr landi innan til-
skilins tíma. Ásthildur segir að
það hafi gerst vegna ónógra upp-
lýsinga.
Hasan verður 24 ára í ágúst og
samkvæmt íslenskum lögum á
hann þá að geta fengið dvalar-
leyfi. Vegna misskilnings hefur
hann fyllt út vitlaus eyðublöð og
sótti um makaleyfi en það var
aldrei grundvöllur fyrir því. Þar
sem hjónunum var aldrei bent á
mistökin gátu þau ekki leiðrétt
þau.
Hasan hefur tvisvar sinnum
fengið vinnu á Kárahnjúkum og
sótt um atvinnuleyfi en ekki feng-
ið þar sem hann hefur ekki
dvalarleyfi.
Ásthildur gagnrýnir stjórn-
sýsluna harkalega og telur seint
og illa svarað ef svar á annað borð
berst. Bréfaskipti fari fram á ís-
lensku, sem Hasan ekki skilur,
auk þess sem hann hafi ekki feng-
ið arabískan túlk nema einu sinni
og hann hafi þá talað egypska
arabísku, ekki jórdanska, og því
hafi misskilnings gætt. Búið er að
kæra það. Þá telur hún að verið sé
að teygja lögin, til dæmis varð-
andi aldurinn.
„Maður má gifta sig hvenær
sem maður vill. Við erum ósátt við
að mega ekki búa saman en geta
gift okkur,“ segir hún og vísar í
plögg frá stofnuninni þar sem
kemur fram að „ekkert er því til
fyrirstöðu að kærandi og kona
hans búi saman utan Íslands,“
segir Ásthildur og spyr:
„Á að reka mig úr landi? Hasan
á barn á Íslandi og vill því gjarn-
an búa hér. Hann er kominn til
Jórdaníu en er ekki velkominn hjá
fjölskyldu sinni þar sem það þyk-
ir ekki gott að hann búi ekki með
barnsmóður sinni.“
Embættismenn í Útlendinga-
stofnun gátu engin svör gefið í
gær. ghs@frettabladid.is
HANDBENDI MAFÍÓSA HAND-
TEKIN Lögreglan á Sikiley hefur
handtekið 46 einstaklinga sem
grunaðir eru um að hafa aðstoð-
að mafíuforingjann Bernardo
Provenzano á flótta hans undan
lögreglunni. Provenzano hefur
forðast lögregluna í meira en
fjóra áratugi.
BÆNDUR MÓTMÆLA Grískir
bómullarbændur lokuðu fjöl-
mörgum vegum í norðurhluta
landsins fyrir allri umferð til að
krefjast hærri niðurgreiðslna úr
ríkissjóði. Stjórnvöld sögðust
hins vegar ekki geta hækkað nið-
urgreiðslur til bændanna þar
sem reglur Evrópusambandsins
bönnuðu slíkt, og skipti þá engu
þó bændur legðu þúsundum
dráttarvéla á vegi og hraðbrautir.
MUSTERIÐ Í WAI
Sjónarvottar standa við rústir musterisins í
Wai þar sem 200 dóu og 200 slösuðust.
Pílagrímar á Indlandi:
200 tróðust
til bana
BOMBAY, AP Um 200 manns dóu
þegar þeir tróðust undir í örtröð
sem myndaðist þegar þúsundir
pílagríma þustu úr musteri á fjall-
stoppi í vesturhluta Indlands eftir
að eldur kom þar upp. Annars eins
fjöldi slasaðist í troðningnum.
Örtröðin myndaðist í þröngum
stigagangi í musteri hindúa í
borginni Wai, sem er um 250 kíló-
metra sunnan af Bombay
(Mumbai). Að sögn sjónarvotta
voru flestir hinna látnu konur.
Brunaliðsmenn kepptust við að
slökkva eldinn sem breiddist um
musterisbygginguna en talið er að
kviknað hafi í af völdum skamm-
hlaups í öryggi. ■
KOSNINGAAUGLÝSINGAR
Kosningarnar eru í algleymi eins og sjá má
á þessari götumynd frá Kaupmannahöfn.
Skoðanakönnun:
Sterk staða
stjórnarliða
DANMÖRK Dönsku stjórnarflokk-
arnir myndu vinna öruggan sigur
á stjórnarandstöðuflokkunum ef
gengið yrði til kosninga nú, sam-
kvæmt nýrri skoðanakönnun
Gallups fyrir Berlingske Tidende.
Samkvæmt könnuninni bættu
stjórnarflokkarnir við sig fjórum
þingsætum og fengju 102 af 179
sætum á danska þinginu. Jafnað-
armenn og samstarfsflokkar
þeirra fengju einungis 73 sæti en
fjögur sæti skiptast milli Færeyja
og Grænlands.
Kosningarnar fara fram 8.
febrúar. ■
■ EVRÓPA
■ EVRÓPA
MÓÐGAÐI PÁFANN Pólskur út-
gefandi hefur verið dæmdur til
greiðslu sektar fyrir að skrifa
móðgandi grein um Jóhannes
Pál II páfa í vikurit sitt Nie í
ágúst 2002. Jerzy Urban gerði
þar grín að bágri heilsu páfa í
aðdraganda heimsóknar hans og
þarf að greiða andvirði 400 þús-
und króna fyrir það.
SAID HASAN OG ÁSTHILDUR ALBERTSDÓTTIR
Finnst kveðjur Útlendingastofnunnar kuldalegar en stofnunin segir ekkert því til fyrirstöðu
að þau búi saman utan Íslands.
Í HÉRAÐSDÓMI REYKJAVÍKUR
Skipstjórinn var ekki viðstaddur dómsupp-
sögu í héraðsdómi þar sem hann er úti á
sjó en hann mætti við þingfestingu málsins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Vinnumálastofnun:
Gefur út 61
atvinnuleyfi
VINNUMARKAÐURINN Vinnumála-
stofnun gefur í dag út 61 nýtt
atvinnuleyfi.
Impregilo fær 24 atvinnuleyfi
og gilda þau öll fyrir Kínverja,
Fosskraft fær 19 leyfi, aðrir verk-
takar á Austurlandi fá fimm leyfi
og fiskvinnslu-, þjónustufyrirtæki
og íþróttafélög fá 13 leyfi.
Atvinnuleyfin eru gefin út fyrir
24 Kínverja, 22 Pólverja, fjóra Lit-
háa, þrjá Letta, þrjá Serba, einn
Eista, einn Pakistana, einn
Víetnama og einn Albana. - ghs