Fréttablaðið - 26.01.2005, Qupperneq 30
6 { VINNUVÉLAR 2005 } ®
A F L V É L A R
A ð e i n s þ a ð b e s t a
• Öflugar vélar.
• Áratuga reynsla og
þjónusta.
• Hafið samband og fáið
senda vörulista og tilboð.
Besta ehf • Suðurlandsbraut 26 • 108 Reykjavík • Sími: 510 0000
Beinn sími véladeild: 510 0050 • Fax: 510 0002 • ingi@besta.is • www.besta.is
®
Snjótennur fyrir
bæjarfélög og þjóðvegi.
Burstar í allar
tegundir vélsópa.
Salt/sanddreifarar 0,6 -9,0 rm.
Kasttennur
fyrir vörubíla.
Snjóblásarar með eða án
aflvéla f/ stórar dráttarvélar
og vélskóflur.
Dráttarstólar og
dráttarkrókar
Vörur - þjónusta - upplýsingar
Tangarhöfða 4, sími 515 7200
„Ég kláraði námið árið 1976 en fram að því hafði ég
verið að fikta við að gera við bíla. Bróðir minn, Eiður,
á fyrirtækið Háfell sem sinnir ýmislegum jarðvinnu-
framkvæmdum og hefur mikinn og góðan tækjakost á
sínu bandi. Hann setti mig eiginlega upp í gröfu og ýtti
mér út í vinnuvélabransann. Ég vann hjá honum í
nokkur ár og hef síðan verið að gera við vinnuvélar á
ýmsum stöðum. Ég er búinn að vinna hjá GP krönum í
tæp fjögur ár og hér er gott að vera,“ segir Jón.
Á verkstæði GP krana er einn í vinnu ásamt Jóni að
gera við krana en fyrirtækið gerir út fullt af krönum.
„Hér er mikið talað um krana og allt sem þeim fylgir en
við tökum líka mikið í spil og spilum brids ef fjórir eru
saman. Við erum eiginlega góðir í öllu,“ segir Jón
spurður um hvort þeir séu jafngóðir í brids og í krana-
viðgerðum. „Hér er fullt af góðum kranamönnum enda
er þetta langstærsta kranafyrirtækið á landinu. Síðasta
ár var mjög gott í þessum iðnaði og eru kranarnir okk-
ar búnir að fara vítt. Við vorum mest með fimm krana
í Kárahnjúkum og núna erum við með einn krana í
Færeyjum. Þessi floti er óðum að stækka og yngjast,“
segir Jón en hann hefur lært sjálfur að gera við krana.
„Við reynum að fylgja viðgerðarbókum því það er í
raun enginn sem getur kennt okkur þetta. Við sækjum
bara þá þekkingu sem við þurfum.“
Jón er enginn bíladellukarl og reynir að skilja vinn-
una eftir á vinnustaðnum í lok dags. „Ég á reyndar tvo
bíla, einn sem ég er að gera upp og einn sem ég er bú-
inn að gera upp. Mér finnst voðalega gaman að kom-
ast til botns í hlutum. En núna er þetta meira lífsviður-
væri. Þegar ég kem heim þá er vinnudagurinn búinn
og ég reyni að aðskilja vinnuna frá einkalífinu. En þeg-
ar koma upp vandamál sem ég hef ekki getað leyst í
vinnunni þá reyni ég að leysa þau í huganum heima.
En mig dreymir ekkert kranana,“ segir Jón sem er fylli-
lega sáttur við lífið.
DREYMIR EKKI KRANA
Jón Ingvar Haraldsson er bifvélavirki og hefur komið víða við á starfsferli
sínum. Nú vinnur hann hjá GP krönum og gerir við krana og gæti ekki verið
sáttari við vinnuna sína.
Hér stendur Jón við flaggskipið í kranaflotanum, þrjú hundruð tonna bómu.
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/G
VA
Stærsta
GRJÓTMULNINGS-
VÉL landsins
Brjóturinn Dofri í
grunni álvers Alcoa.
Vélasvið Heklu afhenti á dög-
unum verktakafyrirtækinu
Suðurverki stærstu grjót-
mulningsvél sem flutt hefur
verið til landsins. Tækið er af
gerðinni Metso Nordberg LT
140 og vegur um 140 tonn.
Tækið er knúið af 520
hestafla Caterpillar C15 vél
og kostar hingað komið um
hundrað milljónir króna. Suð-
urverk mun nota þennan af-
kastamikla brjót sem afkastar
átta hundruð tonnum á
klukkustund við framkvæmdir
við grunn álvers Alcoa við
Reyðarfjörð en brjóturinn
hefur hlotið nafnið Dofri.